Bændablaðið - 14.01.2021, Page 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202146
vistvænum
Árið 2020 var frekar vistvænt
prófunarár í ökutækjum hér í
Vélarbásnum í Bændablaðinu.
Strax í byrjun árs var úrval af
rafmagnsökutækjum meira en yfir
var komist í þessum 24 blöðum
sem komu út á síðasta ári. Reynt
var að komast yfir sem flest og
fjölbreyttust ökutæki til að fjalla
um, en eins og svo oft áður þá
vantaði að fá dráttarvélar til
prufuaksturs og umfjöllunar.
Einn bíl prófaði ég sem virðist
vera rangt tollaður inn í landið og því
of dýr, en bílinn kalla ég „Bóndabíl“,
vinnutæki sem engum dettur í hug að
nota sem leiktæki, en er bráðsniðugt
vinnutæki til ýmissa verka. Þetta er
Corvus Terrain frá Vallarbraut.
Rafmagnsbílar og tæki
Alls voru prófaðir fimm rafmagns
fólksbílar, einn sendibíll, einn
liðléttingur og eitt rafmagns fjórhjól.
Að gefa þessum ökutækjum einkunn
og raða niður í sæti var ekki auðvelt,
en eingöngu frá mínu persónulega
mati með hliðsjón af notkunargildi
og þægindum í akstri á íslenskum
„ónýtum“ vegum væri valið svona:
1. KIA Soul (þar skoraði hæst
frábær fjöðrun og stöðugleiki
við akstur á malarvegi).
2. MG frábært verð, góð drægni á
rafmagninu og fín snerpa.
3. Tesla 3 (lang söluhæsti bíll
landsins 2020), ógnarkraftur,
fjórhjóladrifinn, en það var
verð og umhverfishljóðin inni
í bílnum sem settu hann niður
í 3. sæti (mín skoðun er að ef
keyptur er rafmagnsbíll til að
njóta verður hann að mælast
undir 70 db. í farþegarými).
Sendibíllinn Maxis er fínn fyrir
borgarsnatt, en ekki neitt spennandi
fyrir langkeyrslur.
Rafmagns liðléttingurinn Multi
One EZ7 er tæki sem allir ættu
að skoða vandlega sem innitæki á
fóðurgöngum og í nálægð við dýr
og matvælaframleiðslu.
Rafmagns fjórhjólið er nýjung
og spennandi kostur framtíðarinnar,
kæmi mér ekki á óvart ef maður sæi
það í notkun á götum Reykjavíkur í
þjónustu Íslandspósts sem öruggara
og burðarmeira en núverandi
„póstþríhjól“.
Rafmagns torfæruhjólið
(rafmagnscrossarinn) var eitthvert
skemmtilegasta leiktæki sem ég hef
prófað, langt síðan ég hef skemmt
mér svona mikið við að prófa „dót“.
Plug-in Hybrid og aðrir
vistvænir bílar
Nokkra vistvæna bíla prófaði ég og
af þeim stóð upp úr Jeep Compass
Trailhawk, jeppi eða jepplingur? Þó
svo að ég hafi alltaf nefnt hann í
umfjölluninni sem jeppling verð ég
að setja hann í flokk jeppa þar sem
hann er hár á vegi, með hátt og lágt
drif og að mínu mati skoraði hæst
að hann er með fullbúið varadekk.
Aðrir bílar komu á eftir þó svo að
Suzuki A-Cross hafi verið kraftmeiri
og snarpari í akstri og þar af leiðandi
skemmtilegri á malbiki, þá vantaði
betra varadekk, meiri hæð undir
bílinn og verðið fullhátt.
Mótorhjól og fjórhjól
voru tvö og tvö
Tvö fjórhjól prófaði ég, annars
vegar Yamaha 700 með snjótönn.
Það hjól keyrði ég eingöngu á ís og
því hef ég enga umsögn um fjöðrun,
en hjólið skilaði sínum snjómokstri
vel en stýrið mætti vera breiðara.
CanAm 1000 er öflugt fjórhjól sem
þægilegt er að keyra ýmist á vegum
og torfærum (mér hefði alveg dugað
færri hestöfl). Mótorhjólin tvö voru
mjög ólík, annars vegar BMW
750F sem er ferðahjól fyrir alla
venjulega malar- og malbiksvegi,
mjög tæknilega fullkomið mótorhjól
og lágt til ásetu sem hentar jafnt
lágvöxnum sem þeim hærri. SWM
650 ferðahjólið er fullkomið
ferðahjól fyrir hálendisslóða og
vegi, skemmtileg vinnsla í mótor
og á verði sem er hreint hlægilegt.
Besti bíllinn var
Landrover Defender
Það var enginn bíll af þeim sem
prófaðir voru 2020 sem komst
nálægt Landrover Defender í
gæðum, þessi bíll er einfaldlega
bara snilldin ein í hönnun, útliti
og gæðum. Það eru engan veginn
allir sammála mér því ég hef heyrt
menn segja að þessi bíll sé forljótur,
en þetta er mín skoðun á bílnum
og þarf ekkert að orðlengja það. Í
öðru sæti var SsangYong Korando
sem hefur fengið nýtt útlit, en sá
bíll skoraði hæst hjá mér með því
að mælast ekki með meiri hávaða
á 90 km hraða en 70 db.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Landrover Defender, bíll ársins 2020 – bara einfaldlega bestur. Myndir / HLJ
Tesla 3 var í 3. sæti rafmagns, snerpa og kraftur, en fullmikill hávaði inni í bíl.
MG var í 2. sæti rafmagnsbíla. Verð og hljóðeinangrun skoraði þar hæst.
KIA Soul í 1. sæti af rafmagnsbílum, þar skoraði hæst góð fjöðrun.
BMW 750F er mjög fullkomið alhliða
mótorhjól fyrir Íslenska malar- og
malbiksvegi.
Multi One EZ7. Sniðugt vinnutæki
við matvælaframleiðslu.
Jepplingur eða jeppi, rafmagn og bensín. Jeep Compass Trailhawk –
Gallalaus bíll.
SWM 650. Ódýrt ferðahjól fyrir
ævintýraferðir.
Rafmagnsfjórhjól fyrir 15 ára og eldri
á góðu verði.
Öflugt fjórhjól frá CanAm.
Svona tæki kalla ég Bóndabíl.
SsangYong Korando er einstaklega vel hljóðeinangraður og velheppnaður
jepplingur.