Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 47
Síðasta ár var fjallað of mikið
um COVID-19 hér í þessum
pistlum, greinar sem ég var
ekki sáttur við að skrifa, en
taldi mig knúinn til að taka þátt í
umræðunni. Með góðri hjálp frá
ýmsum aðilum sem aumkuðust
yfir minni fáfræði, hjálpuðu mér
við efnisval, miðluðu til mín sér-
þekkingu úr sínum viskubrunni
og bentu mér á efnisval í þessa
pistla. Fyrir vikið tel ég mig hafa
komist nokkuð skammlaust frá
þessum pistlaskrifum 2020.
2021 gefur von um batnandi
hag og ferðafrelsi
Fyrstu Íslendingarnir hafa nú verið
bólusóttir fyrir kórónuveirunni og
vonir standa til þess að búið verði
að bólusetja flesta Íslendinga á
vormánuðum (maður kemst þá
vonandi í sauðburð). Fljótlega var
byrjað að bólusetja fyrsta hópinn,
sem voru m.a. elstu íbúar lands-
ins á öldrunarstofnunum. Eins og
eðlilegt er þá deyr gamalt fólk (að
meðaltali 18 manns vikulega), en
eitthvað af þessu fólki hafði stuttu
áður fengið sína fyrri sprautu við
COVID-19 og fóru einhverjir
miðlar að flytja fregnir af þessum
andlátum á þann veg og hátt að
í umsögninni og fréttum mátti
lesa á milli lína að andlátin mætti
rekja til bólusetninganna. Frekar
neikvæður fréttaflutningur sem
virtist í fyrstu litast af „æsifrétta-
mennsku“.
Von um betra framhald má ekki
tala um eða skrifa niður með órök-
studdum neikvæðum greinum.
Guðrún Bergmann skrifaði
grein á frekar neikvætt framsett-
an hátt í andstöðu við bóluefnið
og þær aðgerðir sem verið er að
gera. Hún talaði niður til þrí-
eykisins, Kára Stefánssonar og
þeirra sem unnið hafa þrekvirki
í þessari baráttu við þessa veiru.
Vildi líkja hugmyndum Þórólfs og
Kára um að flýta bólusetningu á
öllum landsmönnum við tilrauna-
starfsemi nasista í seinni heims-
styrjöldinni og leiðir að getgátum
að þetta séu bara hagsmunatengsl
Kára við m.a. Bill Gates. Eftir
lestur greinar Guðrúnar fanst
mér, ólærðum manninum, eitt-
hvað undarlegt við lesturinn, eins
og að lesa grein eftir manneskju
sem lifir og hrærist í neikvæðni og
sé að skrifa sig áfram á öfund út
í þá sem eru jákvæðir (spurning
hvort hún sé ekki ánægð með að
það fari of mikill tími í að þróa
og hanna bóluefnið við Covid-19
hjá Pfizer í stað þess að halda sig
bara við sína frægustu framleiðslu
á Viagra).
Kári sagður hafað flissað
yfir grein Guðrúnar og leiðrétti
margt í greininni
Ég efa ekki að Kári sé ekki galla-
laus, en hann hefur fyrir mér unnið
þrekvirki í þessum faraldri og komið
að sóttvörnum með þekkingu og
fórnfýsi í gegnum sitt fyrirtæki
með aðstoð við greiningu sýna og
sýnatöku. Í grein á vefmiðlinum
man.is má lesa að Kári hafi flissað
að grein Guðrúnar, hún væri full af
rangfærslum og að Bill Gates hafi
og komi Kára fyrir sjónir sem „pirr-
andi nörd“.
Aðspurður um tengsl á milli
dauðsfalla fólks á öldrunar- og
hjúkrunarheimilum eftir bólu-
setningar sagði Kári að það séu
nánast engar líkur á tengingu þarna á
milli. Sé vitnað orðrétt til umræddr-
ar greinar á www.man.is sagði Kári
um þessi dauðsföll: „... þau hafi ekk-
ert að gera með bóluefnið. Það verji
fólk gegn COVID-19 en engum
öðrum sjúkdómum“.
Leitaði ég því til frænku minnar,
Ingunnar Björnsdóttur, um frekari
skýringar, eins og í blaðinu 2. apríl
2020. Ingunn starfar sem dósent
í lyfjafræði við Óslóarháskóla og
hún svaraði mínum spurningum á
eftirfarandi hátt:
1. Hvað er í þessum bóluefnum
sem verið er að gefa og hvað gerir
það fyrir okkur?
Svar: „Urmull er til af fræði-
greinum, upplýsingum frá lyfja-
stofnunum margra landa og
fylgiseðlum sem gera þessu skil í
smáatriðum. Ég ætla að reyna að
svara á aðeins annan hátt: Pfizer
bóluefnið og Moderna bóluefnið
splæsa bút af RNA (sem lítur út
svipað og hálfur hringstigi) inn í
DNA (sem lítur út eins og hring-
stigi) og þessi splæsti bútur veldur
því að veiran missir aðgang sinn
og getur því ekki lengur valdið
skaða. Svipað og ef svæði er styrkt
sem gaddakylfa gæti annars brot-
ið. Þessi splæsingarbóluefni hafa
verið prófuð á tugþúsundum og
sýnt sig að hafa litlar aukaverk-
anir. Öll lyf og bóluefni hafa ein-
hverjar aukaverkanir og flest lyf
eru fyrir markaðssetningu prófuð
á mun færri, kannski þrjú til fimm
þúsund manns. Grein Guðrúnar
Bergmann sem nefnd er hér að ofan
virðist ansi lituð af margs konar
misskilningi, sem ég ætla ekki að
gera nánari skil hér. Ég fjalla held-
ur ekki um AstraZeneca bóluefnið
eða önnur bóluefni sem vænta má
að komi á markað á Íslandi fljót-
lega.“
2. Er hugsanlegt að bóluefnið
hafi átt þátt í að flýta andlátum
þessara einstaklinga sem voru
bólusettir?
Svar: „Bóluefnin hafa ekki verið
prófuð á öldruðu, langveiku og
fjölveiku fólki fyrir markaðssetn-
ingu. Það er yfirleitt ekki gert þegar
lyf eru prófuð. Þess vegna hefur
verið sett upp svokölluð lyfjagát,
fjórða fasa lyfjarannsóknir, sem
alltaf fara fram eftir markaðssetn-
ingu. Í hverri viku deyja einhverjir
aldraðir, langveikir og fjölveikir.
Dauðsföllin nú eru ekki fleiri en á
venjulegum vikum þar sem ekkert
hefur verið bólusett, en af því að þau
gerast stuttu eftir bólusetningu er
sjálfsagt og rétt að kanna þau nánar.
Þótt ekkert annað en tímasetningin
gefi í raun tilefni til þess.“
3. Þú sem lyfjafræðingur, er
það þitt mat að hugmynd Kára og
Þórólfs að tilraunabólusetja alla
þjóðina sé jákvætt skref?
Svar: „Já. Eftir sem áður verður
enginn neyddur í bólusetningu, en
ef af þessu yrði fengjust mikilvægar
upplýsingar um hjarðónæmi. Næsta
víst er að nægur fjöldi Íslendinga
vilji bólusetningu til að þær upplýs-
ingar sem vonast er eftir fengjust.
Þetta myndi að vísu þýða að Ísland
færðist framar í biðröðinni eftir
bóluefninu, en ávinningurinn vís-
indalega er ótvíræður, og því verj-
andi að gengið yrði lítillega á hlut
einhverra þeirra sem bíða í ofvæni.
Þar sem enginn er neyddur í bólu-
setningu þá er ekki gengið á rétt
þeirra sem ekki vilja bólusetningu,“
segir Ingunnn Björnsdóttir.
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
ÁKEFÐ
ANDLIT
REIST
ÞARFNAST
KLEIF
BÆKLINGUR
FJÁLG-
LEGUR
VÆTA
FJAS
AÐHEFST
ORÐA-
GJÁLFUR
GÆFA
GLEÐI
SNYFSI
ÁLÚT
MATJURT
VÍSUHLUTI
HRÆDD
KULDAÞEL
HROTTI
TVEIR EINS
RITRÖÐ
UPP-
TALNINGSLÉTTA
KUSK
VANDRÆÐI
UNNA
BRÁÐRÆÐI
HNAPPUR
ÞÍÐA KYNNGI
SÓLUNDA
KRAP
PIRRAÐAR
BÖÐLAST
SKYLDIR
GILDRA
PÁSA
KVERK-
SIGI
FERMA
YFIRHÖFN
ÚT
TIPL
LEIÐBEINA
TVEIR
EINS
TVÍNÓNA
EMJAR
SKORDÝR
LAUS
MJÖG
GRÓÐUR-
RÍKI
ÓHLJÓÐI
RYK
ÍLÁTI
BRÍARÍ
TRUFLUN
FLÓNSKA
VAFRA
TVÍHLJÓÐI
FLATBAKA
TÓMUR
MEIÐSLIGNAUÐA
MAGRIR
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
144
Árið 2020 er búið sem betur fer, flestir gera miklar væntingar til 2021
Ingunn Björnsdóttir, dósent í
lyfjafræði við Óslóarháskóla.
2021 verður ár COVID-19 sprautunnar.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR