Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 49
Þessir fallegu vettlingar eru
prjónaðir með norrænu mynstri.
Uppskrift að húfu og sokkum í stíl
má finna á garn.is.
DROPS Design: Mynstur me-065-bn
Stærðir: 2 (3/5) 6/9 (10/12) ára
Lengd á vettlingi: 14 (16) 18 (21) cm.
Ummál á vettlingi: 13 (15) 16 (18) cm.
Garn: DROPS MERINO EXTRA FINE (fæst í
Handverkskúnst)
- Milligrár nr 04: 50 g í allar stæðir
- Rjómahvítur nr 01: 50 g í allar stærðir
Prjónfesta: 22L x 30 umferðir í sléttu prjóni =
10x10 cm.
Prjónar: Sokkaprjónar nr 3,5
MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2.
ÚRTAKA-2 (á við um efst á vettlingum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkj-
ur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki
situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og
prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu
lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur
færri við prjónamerki).
ÚRTAKA-3 (á við um þumla):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2
lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins
og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið
lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2
lykkjur færri).
VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 28 (32) 36 (40) lykkjur á sokkaprjóna 3,5
með milligrár. Prjónið 6 umferðir slétt fyrir fald. Næsta
umferð er prjónuð þannig: *2 lykkjur slétt saman,
sláið uppá prjóninn*, prjónið frá *-* út umferðina (=
uppábrot). Stykkið er nú mælt frá uppábroti. Prjónið 6
umferðir slétt með milligrár. Prjónið A.1 hringinn (=
7 (8) 9 (10) mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar
A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn.
A.2 er endurtekið á hæðina til loka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 6 (8) 9 (10) cm
frá uppábroti, prjónið merkiþráð fyrir op á þumli
þannig: Prjónið 6 (8) 9 (11) lykkjur mynstur eins
og áður, prjónið 6 (6) 7 (7) lykkjur slétt fyrir op fyrir
þumal með þræði í öðrum lit en litum í stykki, færið
lykkjurnar 6 (6) 7 (7) aftur yfir á vinstri prjón og prjón-
ið þær í mynstri, prjónið þær 16 (18) 20 (22) lykkjur
sem eftir eru í mynstri eins og áður. Haldið áfram
með mynstur þar til vettlingurinn mælist ca 12 (14)
15 (18) cm frá uppábroti (nú hafa verið prjónaðir 6
(6) 6 (8) cm frá opi fyrir þumal). Nú eru eftir ca 2 (2)
3 (3) cm til loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið
að óskaðri lend.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á stykki og 1 prjóna-
merki eftir 14 (16) 18 (20) lykkjur. Prjónið slétt
hringinn með milligrár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er
lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerki – sjá
ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í
hverri umferð alls 6 (7) 8 (9) sinnum = 4 lykkjur eftir.
Klippið frá, þræðið þráð í gegnum þær lykkjur sem
eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist
ca 14 (16) 18 (21) cm ofan frá og niður að uppábroti.
ÞUMALL:
Dragið út þráðinn sem var prjónaður yfir 6 (6) 7 (7)
lykkjur fyrir opi fyrir þumal. Deilið þessum lykkjum
á sokkaprjóna 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í
hvorri hlið á þumli með milligrár = 14 (14) 16 (16)
lykkjur. Prjónið slétt hringinn með milligrár. Þegar
þumallinn mælist ca 3 (3½) 4 (4½) cm, setjið 1
prjónamerki í hvora hlið á þumli. Nú er eftir ca 1
cm til loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að
óskaðri lengd á þumli. Í næstu umferð er lykkjum
fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá
ÚRTAKA-3 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í
hverri umferð alls 2 sinnum = 6 (6) 8 (8) lykkjur eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem
eftir eru, herðið að og festið vel.
HÆGRI VETTLINGUR:
Prjónið eins og vinstri vettling upp að þumli. Prjónið
merkiþráð fyrir op á þumli þannig: Prjónið 16 (18) 20
(22) lykkjur mynstur eins og áður, prjónið 6 (6) 7 (7)
lykkjur slétt fyrir op fyrir þumal með þræði í öðrum lit
en litum í stykki, færið lykkjurnar 6 (6) 7 (7) aftur yfir
á vinstri prjón og prjónið þær í mynstri, prjónið þær 6
(8) 9 (11) lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður.
Prjónið áfram eins og kemur fram á vinstri vettlingi.
FRÁGANGUR:
Brjótið uppá faldinn að röngu og saumið niður með
litlu, fallegu spori.
Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Norðurstjörnu-
vettlingar
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 1 9 7 8
3 7 2 1 6
9 8 3 4
6 2 4 5 3
8 4 5 1
5 4 2 7 3
2 9 1 5
3 4 6 8 7
5 4 9 6 1
Þyngst
8 6 9 3 5
2 1
1 5 4 3 9
8 7 6 1 9
2 4
7 3 9 1 8
5 8 2 9 7
3 6
7 8 1 4 2
7 5
6 8 4
3 9 6 1 5
7 6
4 5 2 9
6 8
2 1 8 7 3
3 6 8
2 9
1 3
3 5 2 8
8 1 4
9 4 3 7
6 8
8 3 2 1
6 2 9
9 4 2 5
7 3
Hestar og geitur
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ingólfur Birkir Eiríksson, alltaf
kallaður Biggi, býr á Reykhólum
og á þrjár eldri systur. Hann er
hestaáhugamaður, á tvær geitur,
Röskvu og Jörð, og eina gæs sem
heitir Aníta.
Nafn: Ingólfur Birkir Eiríksson.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Reykhólar.
Skóli: Reykhólaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Smíði og knapamerki.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestar og geitur.
.
Uppáhaldsmatur: Píitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Reiðmenn
vindanna.
Uppáhaldskvikmynd: Benjamín
dúfa.
Uppáhaldsbókin þín? Fagri Blakkur.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Er á reiðnámskeiði og æfi
það sem er í boði, t.d. fimleika núna.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Hestamaður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar við fórum að kaupa
geitur og það tók tvo daga.
Hvað verður skemmtilegt að
gera í vetur? Vera í verklegum
knapamerkjum og vera á skíðum og
skautum.
Næst » Biggi skorar á Míu Vattar
Steinólfsdóttur á Akranesi.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KEÐJUR OG
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI
GOTT ÚRVAL