Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 1
13. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 8. júlí ▯ Blað nr. 590 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Þjónusta dýralækna á landsbyggðinni í uppnámi Stjórn Dýralæknafélags Íslands sendi nýverið frá sér niður- stöðu könnunar sem félagið lét gera á líðan dýralækna í starfi. Samkvæmt könnuninni er and- leg vanlíðan og streita meðal dýralækna algeng hér á landi. Helmingur svarenda taldi álag í starfi vera við þolmörk en minnihluti taldi álagið lítið eða í meðallagi. Bára Eyfjörð Heimisdóttir, for­ maður Dýralæknafélags Íslands, segir að ástæðurnar fyrir niðurstöð­ unni séu fjölþættar og mismunandi. „Dýralæknar vinna margs konar og ólík störf og í ólíkum geirum. Þjónustudýralæknar í dreifðari byggðum landsins eru fáir og vakt­ svæðin stór.“ Bændasamtök Íslands og Matvæla stofnun sendu fyrr á árinu bréf til menntamálaráðherra þar sem skortur á dýralæknum er tíundaður og óskað er eftir því að ráð herra beiti sér fyrir aðgerðum til úrbóta. Dýravelferð í húfi Dæmi eru um að dýralæknar þurfi að keyra um 200 kílómetra aðra leið við erfiðar aðstæður. Það gerir að verkum að þjónustan verður ekki nógu góð út frá sjónarmiði dýravelferðar, þjónustu til bænda og álags á dýralækna, sem vakta stór svæði og eru mikið á vakt. Skilyrði eins og þessi eru ekki til að trekkja ungt fólk að og því sífellt erfiðara að fá fólk í þessar stöður. Á sama tíma eru of mörg tilfelli um að það getur verið erfitt fyrir bændur að ná í dýralækni eða út frá dýravelferð getur biðin eftir þjónustu verið of löng. Mannekla og þreyta Í skýrslu sem Dýralæknafélag Íslands lét gera kemur fram að helstu ástæður aukins álags eru sagðar vera aukin gæludýraeign landsmanna og auknar og óraun­ hæfar væntingar og kröfur við­ skiptavina. Framfarir í faginu hafa jafnframt aukið þjónustuframboð dýralækna til muna og krafan um aukna tæknivæðingu og endur­ menntun verður sífellt háværari. Auk þess sem stóraukið gælu­ dýrahald á landsvísu, óvægin umræða á samfélagsmiðlum, óraunhæfar kröfur viðskiptavina, einmanaleiki, samúðarþreyta og mannekla eru meðal helstu orsakavalda. Vilja skapa hvata til starfa Í bréfi Bændasamtaka Íslands og Matvælastofnunar til mennta mála­ ráðherra segir meðal annars að í lögum um Menntasjóð námsmanna sé að finna heimild ráðherra til að veita tímabundna ívilnun við endur­ greiðslu námslána vegna tiltekinna námsgreina að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Heimildin er ætluð til þess að gefa ráðherra tækifæri til þess að bregðast við ástandi þar sem skortur er viðvarandi eða fyrirsjáanlegur á fólki með tiltekna menntun með því að skapa sérstakan hvata fyrir fólk til þess að sækja sér þá menntun eða til að starfa í tiltekinni starfsgrein. /VH – Sjá nánar á bls. 2 Hestafræðideild Háskólans á Hólum er vinsæl og eftirsóknarverð fyrir ungt fólk sem langar að mennta sig og vinna við hesta. Erlendir sem og íslenskir nemendur sækja skólann og í haust munu 20 nýir nemendur hefja BS-nám við Hestafræðideildina. – Sjá nánar á bls. 28 og 29 um brautskráningu frá Hestafræðideild Háskólans á Hólum sem fram fór í júní. Mynd / Árni Rúnar Hrólfsson Helga Gunnarsdóttir dýralæknir ómskoðar framfótasinar á hesti. Mynd / Auðunn 20–21 Geitfjárafurðir fá sögumiða Slow Food-hreyfingarinnar 8 Með föstudagspitsurnar í bígerð 22 Sala uppruna-, eða aflátsbréfa, skilar sér enn inn í upprunabókhaldi raforku hjá Orkustofnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.