Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 55 Framkvæmdum við endurheimt votlendis í landi jarðanna Hnausa og Hamraenda á sunnanverðu Snæfellsnesi lauk í desember 2020. Þó ekki sé lengra síðan hefur landið nú þegar tekið greinilegum breytingum og fram- förum. Í vor kölluðu Sameinuðu þjóð­ irnar eftir áhugaverðum og vel heppnuðum endurheimtarverkefn­ um. Verkefnunum er ætlað að vísa leiðina að því hvernig verkefni er æskilegt að takast á við á nýhöfnum áratugi endurheimtar vistkerfa. Landgræðslan sendi inn umsókn fyrir verkefnið á Hnausum og Hamraendum sem var samþykkt. Verkefnið er þar með komið í alþjóðlegan hóp 50 verkefna sem fylgst verður með til ársins 2030. Yfir 100 hektara Um er að ræða tvær samliggjandi jarðir sem ná yfir 100 hektara svæði þar sem grafnir höfðu verið skurðir sem náðu samtals 16 km að lengd. Á nýlegum loftmyndum af svæðinu sést greinilega að vatnsstaða lands­ ins hefur hækkað og að náttúran hefur þegar hafist handa við að færa landið nær upprunalegu ástandi. Landeigendur hafa séð aukn­ ingu í fuglalífi á svæðinu, ber þar mest á ýmsum tegundum vaðfugla svo sem jaðraka, stelks og hrossa­ gauks. Einnig hefur sést meira af öndum á svæðinu sem nýta sér tjarnir og opið vatn sem myndast hafa eftir að framkvæmdum lauk. Margfaldur ávinningur Ávinningurinn af endurheimtinni er margfaldur. Utan þess að sporna gegn þeirri miklu kolefnislosun sem á sér stað úr framræstu landi skap­ ast betri aðstæður fyrir dýralíf og gróður sem aftur skilar landi og vistkerfi í betra jafnvægi. Votlendissvæði Hnausa og Hamraenda er stærsta samfellda votlendissvæðið sem hefur verið endurheimt á vegum Land­ græðslunnar. Endurheimt votlendis er talsvert vandasamara og flóknara ferli en að „moka ofan í skurði“ eins og stundum er haldið fram. Eftir að landeigendur hafa sótt um þátttöku í verkefninu gerir starfs­ fólk Landgræðslunnar úttekt á svæðinu til að sjá hvort það upp­ fylli sett skilyrði. Í framhaldinu er svæðið kortlagt og vatnsrennsli að og frá svæðinu athugað. Einnig eru allir skurðir og svæðin á milli þeirra kortlögð og svæðin mynduð úr lofti. Í framhaldinu eru fengnir verk­ takar úr heimabyggð eða land­ eigendur framkvæma sjálfir verkið. Mikilvægt er að við jarðvegsvinnu vegna endurheimtar votlendis sé unnið eftir ákveðnu verklagi og heppnaðist vinna verktakans í landi Hnausa og Hamraenda framar vonum. Dýrmæt reynsla Svæðið er fjölbreytt og mis mun­ andi aðferðum þurfti að beita eftir aðstæðum hverju sinni. Dýrmæt reynsla safnaðist því við fram­ kvæmdirnar á svæðinu sem mun nýtast við endurheimt votlendis á öðrum svæðum og víst er að viðurkenning Sameinuðu þjóð­ anna á verkefninu er hvatning til Landgræðslunnar og hennar starfs­ fólks að halda áfram á sömu braut. Á eftirfarandi slóð má sjá stutt myndband sem sýnir vel stöðu landsins eins og það er í dag. https://vimeo.com/manage/vid­ eos/567428483. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is OKKAR ÆR OG KÝR — STARTARAR OG ALTERNATORAR — S: 5272600 - www.velavit.is Varahlutir - Viðgerðir Vélavit Sala Þjónusta www.velavit.is Erum með varahluti og þjónustu fyrir allar JCB vélar S: 527 2600 Starfskraftur óskast á kúabúið á Seljavöllum, í haust Seljavellir eru 7 km vestan við Höfn í Hornafirði. Þar er 70 kúa fjós með Delaval mjaltaþjón auk nautauppeldis. Sér íbúðarhúsnæði er í boði. Ef um par er að ræða eru ýmsir atvinnumöguleikar í nágrenninu. Reynsla af bústörfum æskileg. Nánari upplýsingar gefur Elín í síma 860-7582. Endurheimt votlendis á Snæfellsnesi vekur athygli á vettvangi Sameinuðu þjóðanna Loftmynd af endurheimtu votlendi í landi Hnausa og Hamraenda. Skurðirnir sem voru grafnir á sínum tíma eru samtals 16 km að lengd og sést vel marka fyrir þeim úr lofti. Það tekur langan tíma fyrir þau ummerki að hverfa, náttúran þarf tíma til að ná jafnvægi. Tjaldur fagnar endurheimt votlendis­ ins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.