Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 20218 FRÉTTIR HUGVIT Í VERKI ÖNNUMST ALLAR ALMENNAR VINNUVÉLAVIÐGERÐIR VHE • Me l ab rau t 27 • Ha fna r f j ö r ðu r • H raun 5 Reyða r f i r ð i S ím i 575 9700 • Fax 575 9701 • www.vhe . i s • sa l a@vhe . i s Vönduð og góð þjónusta Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar- ins hefur auglýst eftir nautgripa- bændum til þátttöku í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður, sem er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Verkefnið hófst formlega vorið 2020 þegar fimmtán sauðfjárbændur voru valdir til þátttöku eftir nám- skeiðahald. Í febrúar á þessu ári bætt- ust fimmtán sauðfjárbú við verkefnið. Verkefnið gengur út á að bænd- urnir geri aðgerðaráætlun fyrir búin um að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda og auka kolefnisbindingu. Nú er auglýst eftir fimmtán nautgripabúum til þátttöku í allt að fimm ár, sem hafa áhuga á að setja sér skriflega aðgerðaráætlun fyrir búreksturinn, hrinda markmiðum í framkvæmd og vera virkir þátttak- endur í vegferð landbúnaðarins að loftslagsvænum lausnum. Ýmsir möguleikar skoðaðir til að draga úr losun og auka bindingu Í verkefninu eru skoðaðir ýmsir möguleikar til að draga úr losun; bætt nýting tilbúinna áburðarefna og frekari nýting lífrænna áburð- arefna, möguleikar á ræktun nitur- bindandi jurta, minni olíunotkun, verndun jarðvegs við jarðvinnslu, endurheimt votlendis og draga úr innyflagerjun búfjár. Til auk- innar kolefnisbindingar eru skoð- aðir möguleikar til uppgræðslu, endurheimt skóglendis (birkiskóga og víðikjarrs), skjólbeltaræktun og ræktun hagaskóga og ræktun timburskóga. Auk þess eru þátttakendur hvatt- ir til að hugsa út fyrir rammann og koma með nýjar hugmyndir að lofts- lagsvænum aðgerðum. Umsóknarfrestur um þátttöku er til 8. ágúst næstkomandi. /smh Nautgripir undir Eyjafjöllum. Nautgripabændur í Lofts- lagsvænum landbúnaði Bæirnir sem taka þátt í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður. Bænda 22. júlí Geitfjárafurðir fá sögumiða Slow Food-hreyfingarinnar – Undanþága frá kröfum um ógerilsneydda mjólk og heimaframleiddan ostahleypi Um þessar mundir er unnið að gerð svokallaðra sögumiða fyrir íslenska geitabændur, sem ætlaðir eru framleiðendum í verkefninu Presidia innan alþjóðlegu Slow Food-hreyfingarinnar. Á sögu- miðanum er sögð saga hvers og eins ræktanda, sem tekur þátt í verkefninu. Presidia-verkefnin eru fjöl- breytt en eiga það sameiginlegt að halda utan um ræktun og fram- leiðslu afurða og búfjárkynja vítt og breitt um heiminn sem eru í útrýmingarhættu. Presidia utan um íslensku geitina var skráð árið 2015 og er í raun ákveðinn framleiðenda- hópur sem undirgengst ákveðnar framleiðslureglur sem Slow Food Reykjavík og alþjóðlega hreyfingin hafa komið sér saman um. Hafa Dominique Plédel Jónsson, sem er ritari Slow Food Reykjavík ásamt því að gegna formennsku í Slow Food á Norðurlöndum, og dr. Ólafur Dýrmundsson haft veg og vanda að vinnunni af hálfu Íslands í samstarfi við Geitfjárræktarfélag Íslands. Landnámshænan fyrsta húsdýrið á Norðurlöndum til að bera merkið Íslenska landnámshænan og íslenska skyrið eru einnig í Presidia – og íslenskir ræktendur landnáms- hænunnar fengu sinn sögumiða í lok síðasta árs. Um leið varð hún fyrsta húsdýrið á Norðurlöndunum til að bera merki Slow Food á afurðunum, rauða snigilinn. Að sögn Dominique Plédel Jónsson hafa þau dr. Ólafur unnið saman að þessum framgangi, sem felst til að mynda í stofnun framleið- endahópa. „Sögumiðinn fyrir íslensku geitabændurna er á leiðinni til okkar og verður þeim leyft að merkja afurðir sínar með honum.“ Framleiðslureglurnar tilbúnar Dominique segir að framleiðslureglur framleiðendahópsins séu tilbúnar og allir þurfi að samþykkja þær formlega. Þetta eru uppfærðar framleiðslureglur frá 2015. Í þeim segir í greininni um ræktun: „Dýrin verða að vera í lausagöngu á beitartímabilinu, og skulu fóðruð með heyi innanhúss yfir vetrartímann og njóta útivistar þegar veður leyfir. Innanhúss verða dýrin að hafa að minnsta kosti 1 m2 legurými hver og 50 cm við garðann (íslensk reglugerð um velferð dýra). Húsin verða að hafa náttúrulega dagsbirtu.“ Í greininni um afurðir segir: „Kynið er einstakt hvað varðar gæði kjötsins og mjólkin stenst vel sam- anburð við mjólk annarra geitakynja frá næringarfræðilegu sjónarmiði (fitu, prótein, laktósa). Kjötið, þó það sé magurt og bragðmikið, er minna en hjá öðrum geitategund- um og vinnsla á íslenskri geitaka- smírull var næstum horfin. Sú hefð að framleiða osta, aðallega ferskan eins og skyr, féll í gleymsku þegar stórt samvinnufyrirtæki hóf að safna kúamjólk víðs vegar um landið til að vinna hana á miðstýrðan hátt með iðnaðaraðferðum. Í dag eru nokkrir framleiðendur sem nota mjólkina til að framleiða osta og jógúrt en í mjög litlum mæli og eru þeir fúsir til að endurheimta fyrri þekkingu fyrir geitamjólkur- osta og aðrar mjólkurafurðir úr þessum sjaldgæfa íslenska búfjár- kyni. Þar að auki kjósa nokkrir bændur, þó í mjög litlum mæli, að rækta þetta kyn og selja kjöt sitt og halda hefðinni á lofti þrátt fyrir lítinn fjárhagslegan ávinning.“ Undanþágur vegna hrámjólkur til 2022 Í framleiðslureglunum eru til- greind ar undanþágur fyrir mjólkur- afurðirnar vegna þess að Slow Food leiðbeiningar og hefð bundnar fram- leiðslukröfur gera ráð fyrir að hrá- mjólk sé notuð og heimaframleiddur ostahleypir. Íslenskrar reglugerðir heimila ekki notkun á ógerilsneyddri mjólk til matvælaframleiðslu. Fá framleiðendur undanþágur til árs- loka 2022 til að mæta þeim kröfum. Hið sama gildir til að fá leyfi til að bera merki Slow Food á íslensk- um geitaostum, þá verða þeir að vera unnir úr hrámjólk – ógerilsneyddir og úr heimgerðum ostahleypi. Dominique bindur vonir við að hægt verði að breyta þessu á næstu misserum, enda séu fordæmi til að mynda frá Svíþjóð, Danmörku og Noregi þar sem ógerilsneydd osta- gerð er heimil með ákveðnum skil- yrðum. „Við vinnum að því núna að afla þekkingar og reynslu frá Eldrimner, samtökum smáfram- leiðenda matvæla í Svíþjóð. Óli Þór Hilmarsson og Ólafur Reykdal, starfsmenn Matís, hafa rannsak- að íslenska geitamjólk og skrif- að skýrslu þar sem mælt er með því að við geitaostagerð sé notuð ógerilsneydd mjólk, til að smá- skalaframleiðsla á slíkum ostum geti náð sér á strik. Þar kemur líka fram að víða erlendis séu geita- ostar framleiddir úr ógerilsneyddri mjólk og látnir þroskast í marga mánuði. „Á fyrstu einum til þrem- ur mánuðunum kemur í ljós hvort ostarnir eru í lagi, því ef óæskilegir gerlar hafa leynst í mjólkinni, þá yfirtaka þeir fljótt vöxt þeirra gerla sem bætt hefur verið í mjólkina,“ segir í skýrslunni. Þá benda þeir á misræmi í íslenskri löggjöf, því í dag er leyfilegt að flytja inn osta sem hafa verið framleiddir með ógerilsneyddri mjólk, eins og Parmigiano og Grana Padano. Erfðanefnd landbúnaðarins hefur styrkt bæði búfjárverkefnin, sem eru á verkefnasviði Slow Food, sem snýr að því að vernda líffræðilegan fjöl- breytileika. /smh Dominque Plédel Jónsson er formaður Slow Food á Norðurlöndunum og ritari Slow Food Reykjavík. Mynd / smh Anna María Flygenring, formaður Geitfjárræktarfélags Íslands. Mynd / smh Útlitið á sögumiðanum fyrir íslensku landnámshænuna, en að sögn Dominique verður miðinn fyrir geiturnar með svipuðu sniði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.