Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 31 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og L or em ipsum Stál og stansar stalogstansar.is 2012 2020 Varahlutir í kerrur Lífræn hreinsistöð • Fyrirferðalítil fullkomin sambyggð skolphreinsistöð • Uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði hreinsunar • Engin rotþró eða siturlögn 25 ára ábyrgð • Tæming seyru á þriggja til fimm ára fresti • Engir hreyfanlegir hlutir • Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík Sími 517 2220 - petur@idnver.is G ra fik a 19 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Lely Center Ísland Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ASPLA rúlluplast frá 9.900.- + vsk. CLT Hús ehf útvegar þér krosslímdar timbureiningar, glugga, hurðir, handrið, klæðningar, festingar og allt annað sem þarf til að byggja þitt hús. sumarhús • einbýli • heilsárshús Sendu okkur teikningar eða hugmynd af þínu draumahúsi á clt@clt.is og við gerum þér tilboð. Í kjölfar niðurlagningar Nýsköp­ unar miðstöðvar Íslands og sam­ kvæmt nýjum lögum um opin­ beran stuðning við nýsköpun er kveðið á um nýtt Tæknisetur byggt á grunni efnis­, líf­ og orku­ tækni, Rannsóknastofu bygg­ ingar iðnaðarins og frum kvöðla­ seturs Nýsköpunar mið stöðvar á sviði tæknigreina. Tæknisetur verður rekið sem óhagnaðardrifið félag sem á ekki í samkeppni við einkafyrirtæki og stofnanir og verður alfarið í eigu ríkisins, þar sem ríkið leggur fram hluta af tækjabúnaði og eignum Nýsköpunarmiðstöðvar sem stofn- framlag. Atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið mun leggja félaginu til árlegt fjárframlag gegnum þjón- ustusamninga. Ráðherra skipar stjórn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað stjórn Tækniseturs og stendur undirbúningur fyrir stofnun þess yfir. Í tilkynningu vegna setursins er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu að með stofnun hins nýja tækniseturs rætist gamall draumur og tekið mikilvægt skref í átt að auknum og bættum stuðningi við íslenska hátæknisprota, auknu samstarfi um betri nýtingu tæknilegra inn- viða og aukinn stuðning við háskóla og atvinnulíf hvað varðar hagnýtar rannsóknir, þjónustumælingar og greiningar um allt land. Þetta auki einnig samtalið milli atvinnulífsins og háskólasamfélagsins. Í stjórn Tæknisetursins sitja Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures og frumkvöðull, sem er stjórnarformaður, Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Land- búnaðarháskóla Íslands og Þór Sigfús son, forstjóri Sjávarklasans. Varamenn eru þau Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, verkefnisstjóri á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands, og Alexander Jóhönnuson frumkvöðull. Samstarf háskóla, atvinnulífs og ríkis Viljayfirlýsing um Tæknisetrið var undirrituð á vormánuðum milli atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Þar lýsa þessir aðilar yfir vilja sínum til að leggja þann búnað sem stofnanirnar eiga hlut í með forvera Tækniseturs, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, inn í Tæknisetur. Tæknisetrið verður jafnframt vettvangur fyrir byggingarann- sóknir. Þær verða efldar með sér- stökum framlögum í samráði við félagsmálaráðuneytið og unnið er að því að útgáfa fræðsluefn- is um mannvirkjagerð flytjist á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Framtíðarhúsnæði í Vatnsmýrinni Starfsemin verður til húsa í Keldnaholti til að byrja með en stefnt er að því að flytja starfsem- ina í Vatnsmýrina innan tveggja ára og taka þannig þátt í uppbyggingu svæðisins sem kjarna vísinda- og nýsköpunarstarfs á Íslandi. Samþjöppun tengdrar starfsemi háskóla, frumkvöðlastarfsemi og atvinnulífs er þekkt víða um heim og er þá gjarnan vísir að enn frekara samstarfi. Aukin nálægð fyrirtækja og stofnana er til þess fallin að auka aðgengi og tengslamyndun með þekkingarsköpun og virðisauka að leiðarljósi. Alþjóðlegt samstarf Í tilkynningunni segir að mikilvægt sé að Tæknisetrið taki þátt í öflugu alþjóðlegu samstarfi á sviði tækni- greina. Svafa Grönfeldt, pró fessor við Massachusetts Institute of Technology í Boston, verð- ur Tæknisetri til ráðgjafar um alþjóðlegt samstarf og Tækni setrið mun gerast aðili að samstarfs- samningi sem nú er í gildi milli Industrial Liason Program hjá MIT, íslensks atvinnulífs og Háskólans í Reykjavík. Samningurinn felur í sér að Tæknisetur hafi aðgengi að sérfræðiþekkingu innan MIT, ýmist gegnum bein samskipti eða í gegnum sérstaka viðburði á þeirra vegum. /VH Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­ dóttir ferðamála­, iðnaðar­ og nýsköpunarráðherra hefur skipað stjórn Tækniseturs og stendur undirbúningur fyrir stofnun þess yfir. Undirbúningur Tækniseturs: Tæknisetur komið á koppinn – Samstarf háskóla, atvinnulífs og ríkis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.