Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 31
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
L or em ipsum
Stál og stansar
stalogstansar.is
2012
2020
Varahlutir
í kerrur
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Lely Center Ísland
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ASPLA rúlluplast
frá 9.900.- + vsk.
CLT Hús ehf útvegar þér krosslímdar timbureiningar,
glugga, hurðir, handrið, klæðningar, festingar og
allt annað sem þarf til að byggja þitt hús.
sumarhús • einbýli • heilsárshús
Sendu okkur teikningar eða hugmynd af þínu draumahúsi á clt@clt.is og við gerum þér tilboð.
Í kjölfar niðurlagningar Nýsköp
unar miðstöðvar Íslands og sam
kvæmt nýjum lögum um opin
beran stuðning við nýsköpun
er kveðið á um nýtt Tæknisetur
byggt á grunni efnis, líf og orku
tækni, Rannsóknastofu bygg
ingar iðnaðarins og frum kvöðla
seturs Nýsköpunar mið stöðvar á
sviði tæknigreina.
Tæknisetur verður rekið sem
óhagnaðardrifið félag sem á ekki
í samkeppni við einkafyrirtæki og
stofnanir og verður alfarið í eigu
ríkisins, þar sem ríkið leggur fram
hluta af tækjabúnaði og eignum
Nýsköpunarmiðstöðvar sem stofn-
framlag. Atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytið mun leggja félaginu
til árlegt fjárframlag gegnum þjón-
ustusamninga.
Ráðherra skipar stjórn
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra hefur skipað
stjórn Tækniseturs og stendur
undirbúningur fyrir stofnun þess
yfir.
Í tilkynningu vegna setursins
er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu að
með stofnun hins nýja tækniseturs
rætist gamall draumur og tekið
mikilvægt skref í átt að auknum
og bættum stuðningi við íslenska
hátæknisprota, auknu samstarfi
um betri nýtingu tæknilegra inn-
viða og aukinn stuðning við háskóla
og atvinnulíf hvað varðar hagnýtar
rannsóknir, þjónustumælingar og
greiningar um allt land. Þetta auki
einnig samtalið milli atvinnulífsins
og háskólasamfélagsins.
Í stjórn Tæknisetursins sitja
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir,
fjárfestingastjóri hjá Brunni
Ventures og frumkvöðull, sem er
stjórnarformaður, Sigurður Magnús
Garðarsson, forseti Verkfræði-
og náttúruvísindasviðs Háskóla
Íslands, Ari Kristinn Jónsson, rektor
Háskólans í Reykjavík, Ragnheiður
Inga Þórarinsdóttir, rektor Land-
búnaðarháskóla Íslands og Þór
Sigfús son, forstjóri Sjávarklasans.
Varamenn eru þau Ólöf Vigdís
Ragnarsdóttir, verkefnisstjóri
á Vísinda- og nýsköpunarsviði
Háskóla Íslands, og Alexander
Jóhönnuson frumkvöðull.
Samstarf háskóla,
atvinnulífs og ríkis
Viljayfirlýsing um Tæknisetrið
var undirrituð á vormánuðum
milli atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytisins, Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík. Þar lýsa
þessir aðilar yfir vilja sínum til að
leggja þann búnað sem stofnanirnar
eiga hlut í með forvera Tækniseturs,
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, inn
í Tæknisetur.
Tæknisetrið verður jafnframt
vettvangur fyrir byggingarann-
sóknir. Þær verða efldar með sér-
stökum framlögum í samráði við
félagsmálaráðuneytið og unnið
er að því að útgáfa fræðsluefn-
is um mannvirkjagerð flytjist á
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Framtíðarhúsnæði
í Vatnsmýrinni
Starfsemin verður til húsa í
Keldnaholti til að byrja með en
stefnt er að því að flytja starfsem-
ina í Vatnsmýrina innan tveggja ára
og taka þannig þátt í uppbyggingu
svæðisins sem kjarna vísinda-
og nýsköpunarstarfs á Íslandi.
Samþjöppun tengdrar starfsemi
háskóla, frumkvöðlastarfsemi og
atvinnulífs er þekkt víða um heim
og er þá gjarnan vísir að enn frekara
samstarfi. Aukin nálægð fyrirtækja
og stofnana er til þess fallin að auka
aðgengi og tengslamyndun með
þekkingarsköpun og virðisauka
að leiðarljósi.
Alþjóðlegt samstarf
Í tilkynningunni segir að mikilvægt
sé að Tæknisetrið taki þátt í öflugu
alþjóðlegu samstarfi á sviði tækni-
greina.
Svafa Grönfeldt, pró fessor
við Massachusetts Institute of
Technology í Boston, verð-
ur Tæknisetri til ráðgjafar um
alþjóðlegt samstarf og Tækni setrið
mun gerast aðili að samstarfs-
samningi sem nú er í gildi milli
Industrial Liason Program hjá MIT,
íslensks atvinnulífs og Háskólans
í Reykjavík. Samningurinn felur
í sér að Tæknisetur hafi aðgengi
að sérfræðiþekkingu innan MIT,
ýmist gegnum bein samskipti eða
í gegnum sérstaka viðburði á þeirra
vegum.
/VH
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa
dóttir ferðamála, iðnaðar og
nýsköpunarráðherra hefur skipað
stjórn Tækniseturs og stendur
undirbúningur fyrir stofnun þess
yfir.
Undirbúningur Tækniseturs:
Tæknisetur komið á koppinn
– Samstarf háskóla, atvinnulífs og ríkis