Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 20214
Það væsir ekki um
hænurnar á bænum
Tyrf ingsstöðum í
Ása hreppi því þær
hafa fengið gaml an
húsbíl, sem „hænsna
kofa“.
„Já, bíllinn er hugs
aður til þess að geta
fært hæn urnar til og
nýtt rótunarhæfileika
þeirra til að vinna með
landinu. Hænurnar eru
þá ekki alltaf að róta
bara í kringum bæinn,
heldur er líka hægt að
fara með þær aðeins
frá og þannig fá þær
fjölbreyttari fæðu líka.
Hænurnar eru átta
og þær virðast vera
mjög sáttar við þennan
nýja íverustað. Þær eru
búnar að vera í honum
í hálfan mánuð og fóru
út og inn strax á fyrsta
degi. Þær hættu til
dæmis ekki að verpa
eða neitt svoleiðis. Hugmyndin
er síðan að keyra með þær í róleg
heitum í bílnum í nýja haga,“ segir
Hulda Brynjólfsdóttir, hænsna
bóndi á Tyrfingsstöðum.
/MHH
FRÉTTIR
Árna R. Örvarssyni brá nokkuð
í brún nýlega þegar hann var
að ganga um æðarvarpið sitt og
fjölskyldunnar að Hraunum í
Fljótum en þar er æðarvarp með
um 3.000 æðarkollum. Árni lýsir
því sem gerðist þannig:
„Já, á göngu minni einn daginn
þar sem ég fór yfir varpið í síð
asta sinn að safna dún, ramba ég
á ósköp venjulega æðarkollu á
hreiðri. Kollan fer af hreiðri þegar
ég nálgast og við mér blasa tveir,
snæhvítir æðarungar og mig rak í
rogastans, þetta hafði ég ekki séð
áður. Ég aflaði mér upplýsinga
og samkvæmt fuglafræðingi hjá
Náttúrufræðistofnun er þetta afar
sjaldgæft að finna hvítan æðarfugl
eða unga og því mjög merkilegt
þegar slíkt gerist,“ segir Árni,
ánægður með nýju, hvítu ungana
sína. /MHH
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
Hvítur æðarungi í lófa. Myndir / Árni R. Örvarsson
Snæhvítir æðarungar komu í
heiminn á Hraunum í Fljótum
Hvít æðarsystkini í hreiðri á Hraunum í Fljótum. Að sögn fuglafræðings
Náttúrufræðistofnunar þykir slíkt afar sjaldgæft. Sennilega er þá enn
sjaldgæfara að það finnist fleiri en einn hvítur æðarungi í sama hreiðrinu.
Hænur í húsbíl á
Tyrfingsstöðum
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir
að búið sé að halda fund vegna
ástandsskoðunar sem gerð var á
Hótel Sögu og í framhaldi af þeim
fundi hafi bæði seljendur og kaup
endur ákveðið að hittast aftur og
halda viðræðum áfram. Gunnar
segir að búið sé að upplýsa Arion
banka um stöðu viðræðnanna.
Viðræður Bændasamtaka Íslands
og hugsanlegra kaupenda á Hótel
Sögu (Bændahöllinni) eru enn í
gangi. Fjárfestahópurinn sem er
að skoða kaupin tengist meðal
annars Hótel Óðinsvéum. Gangi
kaupin eftir áforma nýir eigendur
áframhaldandi rekstur hótels í
fasteigninni.
Vonast eftir farsælli
niðurstöðu
Á fundi sem haldinn var
fyrir hádegi miðvikudaginn
7. júlí var ákveðið að halda
viðræðunum áfram. „Báðir
aðilar vona að viðræðurnar
leiði til far sællar niðurstöðu.
Það eru áformaðar áfram
haldandi viðræður og báðir aðilar
að skoða málið nánar og við komum
því til með að verða aftur í sambandi
fljótlega,“ segir Gunnar.
Rekstrarvandi
Áður en Covid19 faraldurinn skall á
hafði verið farið í ýmsar kostnaðar
samar endurbætur á Hótel
Sögu sem leiddu til mikils
rekstrarvanda. Hótel Saga
er undir ákvæði laga um
fjárhagslega endur skipu
lagningu og hótelrekstri var
lokað um óákveðinn tíma
frá og með 1. nóvember
2020. Fram að því höfðu
verið 236 herbergi í rekstri
auk annarrar starfsemi í þessu 20
þúsund fermetra húsi, þar á meðal
skrifstofur Bændasamtaka Íslands.
Auk þeirra fjárfesta sem
Bænda samtök Íslands hafa átt í
við ræðum við undanfarið um kaup
á Hótel Sögu hefur Háskóli Íslands
lýst áhuga á kaupum á Bænda
höllinni. /VH
Hænurnar og nýi „hænsnakofinn“ þeirra, sem er gamall grænn húsbíll.
Myndir / Hulda Brynjólfsdóttir
Hænurnar og fíni húsbíllinn á Tyrfingsstöðum
í Ásahreppi.
Hótel Saga – Bændahöllin:
Viðræður um kaup standa enn
Gunnar
Þorgeirsson.
Bændahöllin við Hagatorg í Reykjavík. Mynd / HKr.