Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202124 LÍF&STARF þjóðbúning Annríki - Þjóðbúningar og skart ehf. er fyrirtæki í Hafnarfirði sem sérhæfir sig í öllu er viðkem- ur íslenskum þjóðbúningum. Það var stofnað 1. júní 2011 og er því 10 ára. Eigendur eru Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskera- og kjólameistari og sagnfræðingur, og Ásmundur Kristjánsson, vél- virki og gullsmiður. Þau sérhæfa sig í öllu sem viðkemur íslenskum þjóðbúningum og hafa menntað sig til að vera betur fær um að sinna því starfi. Í dag reka þau saumastofu og sérhæfða verslun með efni og til- legg í búningana. Þau smíða líka þjóðbúningaskart og eiga stórt þjóð- búningasafn sem fólk getur komið og skoðað. Auk þess býður Annríki upp á fjölbreytt búninga- og hand- verksnámskeið, bæði í Annríki og víða um land, ásamt fyrirlestrum og fræðslu. Fyrirtækið er staðsett að Suðurgötu 73, Hafnarfirði. Guðrún Hildur, alltaf köllu Hildur, svaraði nokkrum laufléttum spurningum. Þjóðbúningakennsla í 14 ár – Hvað kom til að þið stofnuðuð fyrirtækið á sínum tíma? „Eftir að ég hafði leiðbeint við þjóðbúningakennslu hjá Heimilisiðnaðarfélaginu í 14 ár og rekið Þjóðbúningastofuna frá 2001 var kominn tími til að taka ný skref. Með námi okkar beggja veittust tækifæri til rannsókna á sögu bún- inganna og þeirri þekkingu vildum við deila með fleirum. Með þeirri sérhæfingu sem við höfum nú hefur okkur tekist að vekja enn frekari áhuga fólks á þessum mikilvæga menningararfi,“ segir Hildur. Landsbyggðin þakklát – Hvernig hefur gengið í þessi 10 ár og hvernig hefur starfsemin vaxið frá ári til árs? „Það má segja að fyrirtækið hafi frá upphafi vaxið og dafnað og aldrei skortur á verkefnum. Alger sprenging varð í námskeiðahaldinu strax frá upphafi og stöðugt fjölgar þeim sem vilja sauma sér búninga. Fólk á landsbyggðinni er afar þakk- látt fyrir að fá námskeið í heima- byggð og þeirri þjónustu viljum við sinna vel. Í upphafi voru yfir- leitt tvö námskeið á önn, eitt nám- skeið í Annríki og annað á lands- byggðinni en þau eru kennd um helgar (4 helgar á önn). Nú er svo komið að hægt væri að kenna flest kvöld vikunnar og flestar helgar og því nauðsynlegt að skipuleggja starfsemina vel,“ segir Hildur og bætir við: „Fjöldi nemenda telst í hundruðum og þannig höfum við eignast góða vini í gegnum árin. Í kringum störf okkar á landsbyggð- inni hafa orðið til félög sem nem- endur stofna, t.d. Þjóðbúningafélag Vestfjarða, Þjóðbúningafélagið Auður í Vesturbyggð, Pilsaþytur í Skagafirði og nýjast er Hollvinafélag Annríkis sem skip- að er hópi fólks sem vill styðja við fræðastörf okkar.“ Námskeiðin hafa slegið í gegn – Ef marka má áhugann á nám- skeiðum ykkar þá eruð þið að gera mjög góða hluti þar. Hvers konar námskeið eruð þið aðallega að bjóða upp á og hvaða námskeið eru vinsælust og fá bestu viðtökurnar? „Já, við bjóðum upp á ellefu vikna námskeið í að sauma upp- hlut, peysuföt eða barnabúninga. Þau eru alltaf vinsæl og vel sótt. Herrabúningar eru líka kenndir á ellefu vikna námskeiðum og hefur áhugi karlmanna stóraukist. Stóru fald-, kyrtil- og skautbúningsnám- skeiðin, sem eru þriggja ára nám- skeiðsraðir, hafa gert mikla lukku. Þetta eru mjög umfangsmikil námskeið þar sem nemendur læra fjölbreytt handverk og skreytiað- ferðir við gerð búninganna. Miðað við fjölda slíkra búninga má segja að þau hafi slegið í gegn. Þessi áhugi liggur ekki síst í þeirri þekk- ingu sem við höfum aflað okkur með rannsóknum og fræðastarfi á undanförnum árum og deilum með áhugasömum nemendum.“ Sérsniðnir búningar á hvern og einn – Hvað eru vinsælustu búningarnir til að sauma og af hverju heldur þú að þeir búningar séu vinsælli en aðrir? „Langflestir nemendur eru konur sem koma að sauma sér langþráðan þjóðbúning sem í hugum flestra er upphlutur 20. aldar og peysuföt. Margar konur sauma líka á dætur, tengdadætur og barnabörn. Ekki er óalgengt að þær komi á mörg nám- skeið og fá þá búningana tilsniðna, leiðsögn og mátun. Búningarnir eru því sérsniðnir á hvern og einn og fara vel. Auk þess njóta þær félagsskaparins og fræðslunnar en í þeim hópi eigum við marga trygga vini og félaga. Búningar 20. aldar eru þeir búningar sem landsmenn þekkja best og við munum eftir virðulegum formæðrunum uppá- búnum. Víða í fjölskyldum er líka til skart sem á að nota og Ási sér þá um að lagfæra og fríska upp á það ef með þarf. En eftir því sem við rannsökum betur búninga fortíðar þá vaknar áhugi fólks á þeim líka,“ segir Hildur. Ullin var mikilvæg – Svona að lokum, saga íslenska þjóðbúningsins í stuttu máli, hver er hún og hvað er merkilegt við ÍSLAND ER LAND ÞITT Útskrift og afmælisfögnuður Annríkis 5. júní 2021. Nemendur og gestir mættu prúðbúnir og fögnuðu áfanganum. Myndir / Úr einkasafni Gleði með unnið verk. Katrín Guðbjartsdóttir hefur saumað búninga á alla fjölskyldumeðlimi. Guðmunda Dagbjartardóttir saumaði búninga á synina í vetur auk þess að ljúka við sinn eigin kyrtilbúninginn. Eiginmaðurinn er einnig í búningi eftir hana. Útskrift af námskeiði Annríkis í Varmahlíð, Skagafirði vorið 2016. Glæsilegur hópur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.