Bændablaðið - 08.07.2021, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202124
LÍF&STARF
þjóðbúning
Annríki - Þjóðbúningar og skart
ehf. er fyrirtæki í Hafnarfirði
sem sérhæfir sig í öllu er viðkem-
ur íslenskum þjóðbúningum. Það
var stofnað 1. júní 2011 og er því
10 ára. Eigendur eru Guðrún
Hildur Rosenkjær, klæðskera- og
kjólameistari og sagnfræðingur,
og Ásmundur Kristjánsson, vél-
virki og gullsmiður. Þau sérhæfa
sig í öllu sem viðkemur íslenskum
þjóðbúningum og hafa menntað
sig til að vera betur fær um að
sinna því starfi.
Í dag reka þau saumastofu og
sérhæfða verslun með efni og til-
legg í búningana. Þau smíða líka
þjóðbúningaskart og eiga stórt þjóð-
búningasafn sem fólk getur komið
og skoðað. Auk þess býður Annríki
upp á fjölbreytt búninga- og hand-
verksnámskeið, bæði í Annríki og
víða um land, ásamt fyrirlestrum og
fræðslu. Fyrirtækið er staðsett að
Suðurgötu 73, Hafnarfirði. Guðrún
Hildur, alltaf köllu Hildur, svaraði
nokkrum laufléttum spurningum.
Þjóðbúningakennsla í 14 ár
– Hvað kom til að þið stofnuðuð
fyrirtækið á sínum tíma?
„Eftir að ég hafði leiðbeint
við þjóðbúningakennslu hjá
Heimilisiðnaðarfélaginu í 14 ár og
rekið Þjóðbúningastofuna frá 2001
var kominn tími til að taka ný skref.
Með námi okkar beggja veittust
tækifæri til rannsókna á sögu bún-
inganna og þeirri þekkingu vildum
við deila með fleirum. Með þeirri
sérhæfingu sem við höfum nú hefur
okkur tekist að vekja enn frekari
áhuga fólks á þessum mikilvæga
menningararfi,“ segir Hildur.
Landsbyggðin þakklát
– Hvernig hefur gengið í þessi 10
ár og hvernig hefur starfsemin
vaxið frá ári til árs?
„Það má segja að fyrirtækið hafi
frá upphafi vaxið og dafnað og
aldrei skortur á verkefnum. Alger
sprenging varð í námskeiðahaldinu
strax frá upphafi og stöðugt fjölgar
þeim sem vilja sauma sér búninga.
Fólk á landsbyggðinni er afar þakk-
látt fyrir að fá námskeið í heima-
byggð og þeirri þjónustu viljum
við sinna vel. Í upphafi voru yfir-
leitt tvö námskeið á önn, eitt nám-
skeið í Annríki og annað á lands-
byggðinni en þau eru kennd um
helgar (4 helgar á önn). Nú er svo
komið að hægt væri að kenna flest
kvöld vikunnar og flestar helgar
og því nauðsynlegt að skipuleggja
starfsemina vel,“ segir Hildur og
bætir við: „Fjöldi nemenda telst í
hundruðum og þannig höfum við
eignast góða vini í gegnum árin. Í
kringum störf okkar á landsbyggð-
inni hafa orðið til félög sem nem-
endur stofna, t.d. Þjóðbúningafélag
Vestfjarða, Þjóðbúningafélagið
Auður í Vesturbyggð, Pilsaþytur
í Skagafirði og nýjast er
Hollvinafélag Annríkis sem skip-
að er hópi fólks sem vill styðja við
fræðastörf okkar.“
Námskeiðin hafa slegið í gegn
– Ef marka má áhugann á nám-
skeiðum ykkar þá eruð þið að gera
mjög góða hluti þar. Hvers konar
námskeið eruð þið aðallega að
bjóða upp á og hvaða námskeið eru
vinsælust og fá bestu viðtökurnar?
„Já, við bjóðum upp á ellefu
vikna námskeið í að sauma upp-
hlut, peysuföt eða barnabúninga.
Þau eru alltaf vinsæl og vel sótt.
Herrabúningar eru líka kenndir á
ellefu vikna námskeiðum og hefur
áhugi karlmanna stóraukist. Stóru
fald-, kyrtil- og skautbúningsnám-
skeiðin, sem eru þriggja ára nám-
skeiðsraðir, hafa gert mikla lukku.
Þetta eru mjög umfangsmikil
námskeið þar sem nemendur læra
fjölbreytt handverk og skreytiað-
ferðir við gerð búninganna. Miðað
við fjölda slíkra búninga má segja
að þau hafi slegið í gegn. Þessi
áhugi liggur ekki síst í þeirri þekk-
ingu sem við höfum aflað okkur
með rannsóknum og fræðastarfi á
undanförnum árum og deilum með
áhugasömum nemendum.“
Sérsniðnir búningar
á hvern og einn
– Hvað eru vinsælustu búningarnir
til að sauma og af hverju heldur
þú að þeir búningar séu vinsælli
en aðrir?
„Langflestir nemendur eru konur
sem koma að sauma sér langþráðan
þjóðbúning sem í hugum flestra er
upphlutur 20. aldar og peysuföt.
Margar konur sauma líka á dætur,
tengdadætur og barnabörn. Ekki er
óalgengt að þær komi á mörg nám-
skeið og fá þá búningana tilsniðna,
leiðsögn og mátun. Búningarnir
eru því sérsniðnir á hvern og einn
og fara vel. Auk þess njóta þær
félagsskaparins og fræðslunnar en
í þeim hópi eigum við marga trygga
vini og félaga. Búningar 20. aldar
eru þeir búningar sem landsmenn
þekkja best og við munum eftir
virðulegum formæðrunum uppá-
búnum. Víða í fjölskyldum er líka
til skart sem á að nota og Ási sér þá
um að lagfæra og fríska upp á það
ef með þarf. En eftir því sem við
rannsökum betur búninga fortíðar
þá vaknar áhugi fólks á þeim líka,“
segir Hildur.
Ullin var mikilvæg
– Svona að lokum, saga íslenska
þjóðbúningsins í stuttu máli, hver
er hún og hvað er merkilegt við
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Útskrift og afmælisfögnuður Annríkis 5. júní 2021. Nemendur og gestir mættu prúðbúnir og fögnuðu áfanganum. Myndir / Úr einkasafni
Gleði með unnið verk. Katrín Guðbjartsdóttir hefur
saumað búninga á alla fjölskyldumeðlimi.
Guðmunda Dagbjartardóttir saumaði búninga á synina
í vetur auk þess að ljúka við sinn eigin kyrtilbúninginn.
Eiginmaðurinn er einnig í búningi eftir hana.
Útskrift af námskeiði Annríkis í Varmahlíð, Skagafirði vorið 2016. Glæsilegur hópur.