Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202138 Nýtt kynbótamat var keyrt núna í júní að loknu maíuppgjöri og því ekki úr vegi að líta á hvað er í boði, vega og meta nautin og kynna sér kosti þeirra og galla. Fagráð í nautgriparækt ákvað að gera verulegar breytingar á reyndum nautum í dreifingu. Þannig fjölgar þeim nú í nítján talsins enda um að ræða úrval öflugra gripa. Eldri kappar hverfa úr notkun og yngri naut hasla sér nú völl. Meðal þeirra er án efa að finna stjörnunaut, í það minnsta segir hið háa kynbótamat þessara gripa svo vera. Þau naut sem fara úr dreifingu eru Hæll 14008, Hnykkur 14029, Stáli 14050 og Ábóti 15029. Segja má að þeir hafi þjónað hlutverki sínu, séu fullnotaðir og víki nú fyrir nýrri kynslóð. Fram á sjónarsviðið geysast nú af fullum þunga nautin sem fædd voru árið 2016. Við fengum forsmekkinn af þeim í vetur þegar þrjú þeirra komu til dreifingar en nú bætast átta naut í hóp reyndra nauta. Þau naut sem voru í dreifingu standa mjög vel við fyrra mat og gott betur en það. Við skulum byrja á því að líta aðeins nánar á þau naut sem áfram verða í dreifingu. Kláus 14031, f. Hjarði 06029, mf. Laski 00010. Kláus gefur sér lega mjólkurlagnar kýr með góð efnahlutföll í mjólk. Þær eru einnig ákaflega skapgóðar en aðrir þættir liggja nærri meðaltali. Kláus var nautsfaðir og undanfarið hafa verið keyptir kálfar undan honum. Hann styrkti stöðu sína sem slíkur, hækkaði um tvö stig og er með 111 í heildareinkunn. Bjarki 15011, f. Laufás 08003, mf. Ás 02048. Bjarki hækkar um eitt stig milli keyrslna og stendur nú með 107 í heildareinkunn. Hann fékk mikla notkun eftir að hann kom til dreifingar sem reynt naut þó dregið hafi úr henni undanfarið. Þarna er á ferðinni góður valkostur varðandi mjólkurlagni, góða júgurgerð og úrvalsgóðum mjöltum og skapi. Risi 15014, f. Laufás 08003, mf. Hjarði 06029. Risi víkur úr hópi nautsfeðra fyrir sér yngri nautum en undan honum verða keyptir kálfar á stöð á næstu misserum. Hann er með jákvætt mat fyrir flesta þætti en hvað öflugastur hvað afurðagetu snertir, einkum mjólkurmagn og fituhlutfall. Þá er júgurgerð dætranna góð, spenar fremur stuttir, mjaltir góðar og skapið framúrskarandi. Dætur Risa eru stórar kýr, nokkuð sem gott er að hafa í huga við notkun hans. Risi stendur við fyrra mat og er með heildareinkunn upp á 108. Köngull 05019, f. Toppur 07046, mf. Bambi 08049. Köngull er öflugt efnahlutfallanaut, júgurgerð dætra með afbrigðum góð og spenar vel gerðir en stuttir. Köngull lækkar um eitt stig og er með 107 í heildareinkunn. Steinar 15042, f. Bambi 08049, mf. Gæi 09047. Steinar víkur úr hópi nautsfeðra en vænta má þess að undan honum verði keyptir kálfar á stöð á næstu misserum. Dætur hans flagga stórgóðri júgurgerð, mjög góðum mjöltum og skapi. Aðrir eiginleikar liggja nær meðaltalinu en allir jakvæðu megin línunnar. Benda má á að Steinar gefur hæfilega þykka spena, það er ekki of granna. Steinar er með 110 í heildareinkunn sem fyrr. Mikki 15043, f. Sandur 07014, mf. Bambi 08049. Mikki er efnahlutfallanaut auk þess sem dætur hans státa af úrvalsgóðri júgurgerð og góðum mjöltum og skapi. Hafa þarf í huga að hann gefur granna spena. Mikki verður áfram nautsfaðir og með 110 í heildareinkunn eftir að lækka um eitt stig. Sjúss 15048, f. Flekkur 08029, mf. Glæðir 02001. Sjúss er efnahlutfallanaut sem gefur júgurhraustar kýr með góða júgurgerð og stutta spena. Hann er auk þess fjarskyldari afkomendum Laska en mörg önnur hinna reyndu nauta sem eru í notkun. Sjúss er með 107 í heildareinkunn eins og eftir síðustu keyrslu. Tanni 15065, f. Sandur 07014, mf. Koli 06003. Tanni gefur mjólkurlagnar og ákaflega júg­ urhraustar kýr með úrvalsgóða júgurgerð en spenar eru langir og grannir. Tanni hækkar um tvö stig og er með 109 í heildareinkunn en hverfur engu að síður úr hópi nautsfeðra. Undan honum verða þó keyptir kálfar á komandi miss­ erum. Knöttur 16006, f. Bolti 09021, mf. Bambi 08049. Knöttur kom með látum til notkunar sem nautsfaðir í vetur og styrkir stöðu sína enn frekar nú. Knöttur er efnahlutfallanaut auk þess sem dætur hans eru júgurhraustar með úrvalsgóða júgurgerð, góðar mjaltir og gott skap. Knöttur verður áfram notaður sem nautsfaðir og er með 113 í heildareinkunn sem skipar honum í röð alhæstu nauta. Bikar 16008, f. Bambi 08049, mf. Vindill 05028. Bikar hækkar um tvö stig milli keyrslna og stendur nú með 115 í heildareinkunn. Hann er því efstur allra nauta ásamt föður sínum, Bamba 08049. Dætur Bikars er miklar mjólkurkýr með úrtökugóða júgurgerð og sérlega góðar mjaltir og skap. Það kemur því ekki á óvart að Bikar skipar sér nú í hóp nautsfeðra. Jarfi 16016, f. Bambi 08049, Stíll 04041. Styrkleikar Jarfa liggja í mikilli júgurhreysti, frábærri júgurgerð, góðum mjöltum og geysigóðu skapi auk þess sem dætur hans skora hátt í gæðaröð. Rétt er að hafa bak við eyrað að spenar eru grannir en gríðarvel settir. Heildareinkunn hans hækkar um tvö stig og stendur nú í 114. Það þýðir að Jarfi er með alhæstu nautum í dag. Ný reynd naut í notkun Að þessu sinni var ákveðið að taka átta ný naut til notkunar sem reynd naut og við val þeirra var horft til þess að dreifa faðerni þeirra eins og hægt er. Fagráð ákvað jafnframt að teygja sig eins langt og hægt er út frá fjölda dætra á bak við afkvæma­ dóminn vitandi það að hann getur tekið breytingum. Þau naut sem valin eru á þeim grunni eru þó það há í mati að þetta þykir réttlætanlegt. Til notkunar koma þrír Gustssynir, einn Góasonur, einn Bambasonur, einn Klettssonur, einn Flekkssonur og einn Keipssonur. Hér verður farið yfir þau og helstu einkenni dætrahópa þeirra. Álmur 16007 er frá Svertings­ stöðum 2 í Eyjafirði undan Kletti 08030 og Lenu 522 Glæðisdóttur 02001. Álmsdætur er miklar mjólkurkýr með góð verðefni í mjólk auk þess sem mjaltir og skap er með því besta sem gerist. Hins vegar er júgurgerð ekki nema meðalgóð þar sem verulega skortir á að júgurband sé nógu greinilegt auk þess sem spenar eru nokkuð gleitt settir. Það þarf því að vanda til pörunar með Álmi en hann hefur kosti sem vert er að sækja í. Heildareinkunn hans er mjög góð eða 109. Skírnir 16018 er frá Miðfelli 5 í Hrunamannahreppi undan Gusti 09003 og Mánu 384 Síríusdóttur 02032. Þarna er á ferðinni naut sem gefur góðar mjólkurkýr með há efnahlutföll í mjólk, góða júgur­ og spenagerð auk mjög góðra mjalta og skaps. Heildareinkunn hans er 111 og því ekki að undra að hann kemur til nota sem nautsfaðir. Róður 16019 frá Stóra­Dunhaga í Hörgársveit undan Keip 07054 og Þrumu 451 Lykilsdóttur 02003. Róðursdætur eru góðar mjólkurkýr með há efnahlutföll í mjólk, sérstaklega prótein sem er gríðarhátt. Dæturnar skarta prýðisgóðri júgurgerð, fremur stuttum spenum og góðu skapi en mjaltir eru meðalmjaltir. Heildareinkunn Róðurs er 111 og á þeim styrka grunni er hann tekinn í hóp nautsfeðra. Dalur 16025 er frá Dalbæ í Flóa undan Bamba 08049 og Aðalbjörgu 510 Aðalsdóttur 02039. Dætur Dals eru í góðu meðallagi hvað afurðagetu snertir, júgurgerðin er góð en sérstaklega er júgurbandið greinilegt. Spenar eru vel settir og fremur þykkir, nokkuð sem má notfæra sér gagnvart kúm með granna spena. Þá eru mjaltir og skap úrvalsgott hvoru tveggja. Heildareinkunn Dals er góð eða 109. Kári 16026 er frá Káranesi í Kjós undan Gusti 09003 og Óreiðu 312 Sandsdóttur 07014. Afurðageta dætra Kára er ekki nema um meðallag en hann er valinn á grunni mikillar júgurhreysti og framúrskarandi júgurgerðar þar sem hann skorar jafnhátt og Tanni og Jarfi. Þá eru mjaltir stórgóðar sem og skapið. Heildareinkunn Kára er allgóð eða 107 en hann býður upp á kosti sem vert er að hafa í huga. Höttur 16028 er frá Egilsstöðum á Völlum undan Flekk 08029 og Frævu 978 Glæðisdóttur 02001. Dætur Hattar eru miklar mjólkurkýr með próteinhlutfall í mjólk auk þess sem júgurgerðin er úrvalsgóð. Hann gefur nokkuð granna en vel setta spena en skapið er undir meðallagi. Þá verður ekki horft framhjá því að dætur hans eru lágfættar, nokkuð sem hafa verður í huga við notkun hans. Heildareinkunn Hattar er mjög há eða 111. Jónki 16036 er frá Stóra­ Dunhaga í Hörgársveit undan Góa 08037 og Ingveldi 501 Flóadóttur 02029. Þarna er á ferðinni naut sem gefur gríðarmiklar mjólkurkýr með góðar mjaltir en júgurgerð undir meðallagi. Þar skortir einkum á festu og að þau séu nógu vel borin en júgurbandið er greinilegt og það skiptir miklu máli. Jónki breikkar einnig val manna varðandi skyldleika verandi sonur Góa 08037. Heildareinkunn er góð eða 108. Númi 16038 er frá Gaulverjabæ í Flóa undan Gusti 09003 og Hélu 284 Þollsdóttur 99008. Afurðageta dætra Núma er meðalmikil en þær flagga mik­ illi júgurhreysti sem og frábærri júgurgerð. Spenar eru hins vegar stuttir og grannir og því hentar Númi tæpast nema á kýr með spena í grófari kantinum. Dætur Núma eru einnig mjög skapgóðar og mjaltir þeirra eru góðar. Heildareinkunn er há eða 110. Guðmundur Jóhannesson ráðunautur í nautgriparækt mundi@rml.is Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Nautaárgangurinn 2016 haslar sér völl Númi 16038 er frá Gaulverjabæ í Flóa. Jónki 16036 frá Stóra-Dunhaga í Hörgársveit. Kynbótaeinkunnir reyndra nauta í notkun sumarið 2021 Nafn og nr. Mjólk Fitu% Prótein% Afurðir Prót.úth. Frjósemi Frumutala Gæðaröð Skrokkur Júgur Spenar Mjaltir Skap Ending Heild Hæð dætra Kláus 14031* T 118 102 105 122 103 96 103 106 99 99 102 99 119 116 111 5,4 Bjarki 15011 117 90 93 115 107 77 92 115 100 109 99 122 116 106 107 5,6 Risi 15014 T 115 104 98 119 102 75 111 109 101 97 106 106 118 109 108 5,3 Köngull 15019* 94 118 114 101 109 97 111 86 95 126 102 108 109 116 107 5,5 Steinar 15042* T 107 102 104 107 107 119 110 108 104 114 103 120 106 107 110 5,2 Mikki 15043* 106 113 113 109 95 110 98 99 107 128 100 117 113 112 110 5,2 Sjúss 15048 100 109 122 108 109 106 114 99 103 101 116 97 116 101 107 5,2 Tanni 15065 T 111 106 98 108 102 106 130 82 100 136 106 104 100 107 111 5,2 Knöttur 16006 N 104 116 116 114 82 101 114 118 109 122 102 116 121 100 113 5,8 Álmur 16007* 116 103 107 120 109 102 87 111 104 99 91 121 129 97 109 5,1 Bikar 16008* N 116 101 93 115 110 93 91 106 106 134 113 121 133 100 115 5,2 Jarfi 16016 N 109 101 103 112 96 96 116 121 98 136 130 110 120 103 114 5,2 Skírnir 16018* N 110 108 115 118 101 102 90 109 102 112 105 112 117 100 111 5,6 Róður 16019* N 110 108 127 117 87 111 100 82 107 108 112 101 113 100 111 5,7 Dalur 16025* 106 97 99 107 97 103 107 110 104 106 102 120 122 100 109 4,9 Kári 16026* 96 106 103 92 77 97 119 105 99 136 106 114 120 100 107 5,0 Höttur 16028 112 100 116 118 106 97 106 114 100 123 116 106 86 100 111 4,4 Jónki 16036* 124 107 99 128 111 84 92 97 104 96 108 111 88 100 108 5,2 Númi 16038* 103 93 104 100 93 102 120 98 101 122 123 108 115 100 110 5,2 Skýringar: N: Nautsfaðir T: Tilkynna nautkálfa *Getur gefið hyrnd afkvæmi Kynbótaeinkunn = 0,36*afurðir + 0,08*mjaltir + 0,08*frumutala + 0,10*júgur + 0,10*ending + 0,10*spenar + 0,10*frjósemi + 0,08*skap Afurðir = 0,47*magn mjólkurfitu + 0,48*magn mjólkurpróteins + 0,05*prótein%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.