Bændablaðið - 08.07.2021, Síða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202138
Nýtt kynbótamat var keyrt núna í
júní að loknu maíuppgjöri og því
ekki úr vegi að líta á hvað er í boði,
vega og meta nautin og kynna sér
kosti þeirra og galla.
Fagráð í nautgriparækt ákvað að
gera verulegar breytingar á reyndum
nautum í dreifingu. Þannig fjölgar
þeim nú í nítján talsins enda um
að ræða úrval öflugra gripa. Eldri
kappar hverfa úr notkun og yngri
naut hasla sér nú völl. Meðal þeirra
er án efa að finna stjörnunaut, í það
minnsta segir hið háa kynbótamat
þessara gripa svo vera. Þau naut sem
fara úr dreifingu eru Hæll 14008,
Hnykkur 14029, Stáli 14050 og
Ábóti 15029. Segja má að þeir hafi
þjónað hlutverki sínu, séu fullnotaðir
og víki nú fyrir nýrri kynslóð. Fram
á sjónarsviðið geysast nú af fullum
þunga nautin sem fædd voru árið
2016. Við fengum forsmekkinn af
þeim í vetur þegar þrjú þeirra komu
til dreifingar en nú bætast átta naut
í hóp reyndra nauta.
Þau naut sem voru í dreifingu
standa mjög vel við fyrra mat og
gott betur en það. Við skulum byrja
á því að líta aðeins nánar á þau naut
sem áfram verða í dreifingu.
Kláus 14031, f. Hjarði 06029,
mf. Laski 00010. Kláus gefur
sér lega mjólkurlagnar kýr með
góð efnahlutföll í mjólk. Þær
eru einnig ákaflega skapgóðar
en aðrir þættir liggja nærri
meðaltali. Kláus var nautsfaðir
og undanfarið hafa verið keyptir
kálfar undan honum. Hann styrkti
stöðu sína sem slíkur, hækkaði
um tvö stig og er með 111 í
heildareinkunn.
Bjarki 15011, f. Laufás 08003,
mf. Ás 02048. Bjarki hækkar um
eitt stig milli keyrslna og stendur
nú með 107 í heildareinkunn.
Hann fékk mikla notkun eftir
að hann kom til dreifingar sem
reynt naut þó dregið hafi úr
henni undanfarið. Þarna er á
ferðinni góður valkostur varðandi
mjólkurlagni, góða júgurgerð og
úrvalsgóðum mjöltum og skapi.
Risi 15014, f. Laufás 08003, mf.
Hjarði 06029. Risi víkur úr hópi
nautsfeðra fyrir sér yngri nautum
en undan honum verða keyptir
kálfar á stöð á næstu misserum.
Hann er með jákvætt mat fyrir
flesta þætti en hvað öflugastur
hvað afurðagetu snertir, einkum
mjólkurmagn og fituhlutfall. Þá
er júgurgerð dætranna góð, spenar
fremur stuttir, mjaltir góðar og
skapið framúrskarandi. Dætur
Risa eru stórar kýr, nokkuð sem
gott er að hafa í huga við notkun
hans. Risi stendur við fyrra mat
og er með heildareinkunn upp á
108.
Köngull 05019, f. Toppur 07046,
mf. Bambi 08049. Köngull
er öflugt efnahlutfallanaut,
júgurgerð dætra með afbrigðum
góð og spenar vel gerðir en stuttir.
Köngull lækkar um eitt stig og er
með 107 í heildareinkunn.
Steinar 15042, f. Bambi 08049,
mf. Gæi 09047. Steinar víkur úr
hópi nautsfeðra en vænta má þess
að undan honum verði keyptir
kálfar á stöð á næstu misserum.
Dætur hans flagga stórgóðri
júgurgerð, mjög góðum mjöltum
og skapi. Aðrir eiginleikar
liggja nær meðaltalinu en allir
jakvæðu megin línunnar. Benda
má á að Steinar gefur hæfilega
þykka spena, það er ekki of
granna. Steinar er með 110 í
heildareinkunn sem fyrr.
Mikki 15043, f. Sandur 07014,
mf. Bambi 08049. Mikki er
efnahlutfallanaut auk þess sem
dætur hans státa af úrvalsgóðri
júgurgerð og góðum mjöltum og
skapi. Hafa þarf í huga að hann
gefur granna spena. Mikki verður
áfram nautsfaðir og með 110 í
heildareinkunn eftir að lækka um
eitt stig.
Sjúss 15048, f. Flekkur 08029,
mf. Glæðir 02001. Sjúss er
efnahlutfallanaut sem gefur
júgurhraustar kýr með góða
júgurgerð og stutta spena.
Hann er auk þess fjarskyldari
afkomendum Laska en mörg
önnur hinna reyndu nauta sem
eru í notkun. Sjúss er með 107
í heildareinkunn eins og eftir
síðustu keyrslu.
Tanni 15065, f. Sandur 07014,
mf. Koli 06003. Tanni gefur
mjólkurlagnar og ákaflega júg
urhraustar kýr með úrvalsgóða
júgurgerð en spenar eru langir og
grannir. Tanni hækkar um tvö stig
og er með 109 í heildareinkunn
en hverfur engu að síður úr hópi
nautsfeðra. Undan honum verða
þó keyptir kálfar á komandi miss
erum.
Knöttur 16006, f. Bolti 09021,
mf. Bambi 08049. Knöttur kom
með látum til notkunar sem
nautsfaðir í vetur og styrkir stöðu
sína enn frekar nú. Knöttur er
efnahlutfallanaut auk þess sem
dætur hans eru júgurhraustar
með úrvalsgóða júgurgerð,
góðar mjaltir og gott skap.
Knöttur verður áfram notaður
sem nautsfaðir og er með 113
í heildareinkunn sem skipar
honum í röð alhæstu nauta.
Bikar 16008, f. Bambi 08049, mf.
Vindill 05028. Bikar hækkar um
tvö stig milli keyrslna og stendur
nú með 115 í heildareinkunn.
Hann er því efstur allra nauta
ásamt föður sínum, Bamba
08049. Dætur Bikars er miklar
mjólkurkýr með úrtökugóða
júgurgerð og sérlega góðar
mjaltir og skap. Það kemur því
ekki á óvart að Bikar skipar sér
nú í hóp nautsfeðra.
Jarfi 16016, f. Bambi 08049, Stíll
04041. Styrkleikar Jarfa liggja
í mikilli júgurhreysti, frábærri
júgurgerð, góðum mjöltum og
geysigóðu skapi auk þess sem
dætur hans skora hátt í gæðaröð.
Rétt er að hafa bak við eyrað að
spenar eru grannir en gríðarvel
settir. Heildareinkunn hans
hækkar um tvö stig og stendur
nú í 114. Það þýðir að Jarfi er
með alhæstu nautum í dag.
Ný reynd naut í notkun
Að þessu sinni var ákveðið að taka
átta ný naut til notkunar sem reynd
naut og við val þeirra var horft til
þess að dreifa faðerni þeirra eins og
hægt er. Fagráð ákvað jafnframt að
teygja sig eins langt og hægt er út
frá fjölda dætra á bak við afkvæma
dóminn vitandi það að hann getur
tekið breytingum. Þau naut sem
valin eru á þeim grunni eru þó það
há í mati að þetta þykir réttlætanlegt.
Til notkunar koma þrír Gustssynir,
einn Góasonur, einn Bambasonur,
einn Klettssonur, einn Flekkssonur
og einn Keipssonur. Hér verður
farið yfir þau og helstu einkenni
dætrahópa þeirra.
Álmur 16007 er frá Svertings
stöðum 2 í Eyjafirði undan Kletti
08030 og Lenu 522 Glæðisdóttur
02001. Álmsdætur er miklar
mjólkurkýr með góð verðefni í
mjólk auk þess sem mjaltir og
skap er með því besta sem gerist.
Hins vegar er júgurgerð ekki
nema meðalgóð þar sem verulega
skortir á að júgurband sé nógu
greinilegt auk þess sem spenar
eru nokkuð gleitt settir. Það þarf
því að vanda til pörunar með
Álmi en hann hefur kosti sem
vert er að sækja í. Heildareinkunn
hans er mjög góð eða 109.
Skírnir 16018 er frá Miðfelli 5 í
Hrunamannahreppi undan Gusti
09003 og Mánu 384 Síríusdóttur
02032. Þarna er á ferðinni naut
sem gefur góðar mjólkurkýr
með há efnahlutföll í mjólk,
góða júgur og spenagerð auk
mjög góðra mjalta og skaps.
Heildareinkunn hans er 111 og
því ekki að undra að hann kemur
til nota sem nautsfaðir.
Róður 16019 frá StóraDunhaga
í Hörgársveit undan Keip 07054
og Þrumu 451 Lykilsdóttur
02003. Róðursdætur eru góðar
mjólkurkýr með há efnahlutföll
í mjólk, sérstaklega prótein sem
er gríðarhátt. Dæturnar skarta
prýðisgóðri júgurgerð, fremur
stuttum spenum og góðu skapi
en mjaltir eru meðalmjaltir.
Heildareinkunn Róðurs er 111
og á þeim styrka grunni er hann
tekinn í hóp nautsfeðra.
Dalur 16025 er frá Dalbæ í
Flóa undan Bamba 08049 og
Aðalbjörgu 510 Aðalsdóttur
02039. Dætur Dals eru í góðu
meðallagi hvað afurðagetu
snertir, júgurgerðin er góð en
sérstaklega er júgurbandið
greinilegt. Spenar eru vel settir
og fremur þykkir, nokkuð sem
má notfæra sér gagnvart kúm
með granna spena. Þá eru
mjaltir og skap úrvalsgott hvoru
tveggja. Heildareinkunn Dals er
góð eða 109.
Kári 16026 er frá Káranesi í
Kjós undan Gusti 09003 og
Óreiðu 312 Sandsdóttur 07014.
Afurðageta dætra Kára er ekki
nema um meðallag en hann
er valinn á grunni mikillar
júgurhreysti og framúrskarandi
júgurgerðar þar sem hann skorar
jafnhátt og Tanni og Jarfi. Þá eru
mjaltir stórgóðar sem og skapið.
Heildareinkunn Kára er allgóð
eða 107 en hann býður upp á
kosti sem vert er að hafa í huga.
Höttur 16028 er frá Egilsstöðum
á Völlum undan Flekk 08029
og Frævu 978 Glæðisdóttur
02001. Dætur Hattar eru miklar
mjólkurkýr með próteinhlutfall í
mjólk auk þess sem júgurgerðin
er úrvalsgóð. Hann gefur
nokkuð granna en vel setta
spena en skapið er undir
meðallagi. Þá verður ekki horft
framhjá því að dætur hans eru
lágfættar, nokkuð sem hafa
verður í huga við notkun hans.
Heildareinkunn Hattar er mjög
há eða 111.
Jónki 16036 er frá Stóra
Dunhaga í Hörgársveit undan
Góa 08037 og Ingveldi 501
Flóadóttur 02029. Þarna er
á ferðinni naut sem gefur
gríðarmiklar mjólkurkýr með
góðar mjaltir en júgurgerð undir
meðallagi. Þar skortir einkum
á festu og að þau séu nógu
vel borin en júgurbandið er
greinilegt og það skiptir miklu
máli. Jónki breikkar einnig val
manna varðandi skyldleika
verandi sonur Góa 08037.
Heildareinkunn er góð eða 108.
Númi 16038 er frá Gaulverjabæ
í Flóa undan Gusti 09003 og
Hélu 284 Þollsdóttur 99008.
Afurðageta dætra Núma er
meðalmikil en þær flagga mik
illi júgurhreysti sem og frábærri
júgurgerð. Spenar eru hins
vegar stuttir og grannir og því
hentar Númi tæpast nema á kýr
með spena í grófari kantinum.
Dætur Núma eru einnig mjög
skapgóðar og mjaltir þeirra
eru góðar. Heildareinkunn er
há eða 110.
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur
í nautgriparækt
mundi@rml.is
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Nautaárgangurinn 2016 haslar sér völl
Númi 16038 er frá Gaulverjabæ í Flóa. Jónki 16036 frá Stóra-Dunhaga í Hörgársveit.
Kynbótaeinkunnir reyndra nauta í notkun sumarið 2021
Nafn og nr. Mjólk Fitu% Prótein% Afurðir Prót.úth. Frjósemi Frumutala Gæðaröð Skrokkur Júgur Spenar Mjaltir Skap Ending Heild Hæð dætra
Kláus 14031* T 118 102 105 122 103 96 103 106 99 99 102 99 119 116 111 5,4
Bjarki 15011 117 90 93 115 107 77 92 115 100 109 99 122 116 106 107 5,6
Risi 15014 T 115 104 98 119 102 75 111 109 101 97 106 106 118 109 108 5,3
Köngull 15019* 94 118 114 101 109 97 111 86 95 126 102 108 109 116 107 5,5
Steinar 15042* T 107 102 104 107 107 119 110 108 104 114 103 120 106 107 110 5,2
Mikki 15043* 106 113 113 109 95 110 98 99 107 128 100 117 113 112 110 5,2
Sjúss 15048 100 109 122 108 109 106 114 99 103 101 116 97 116 101 107 5,2
Tanni 15065 T 111 106 98 108 102 106 130 82 100 136 106 104 100 107 111 5,2
Knöttur 16006 N 104 116 116 114 82 101 114 118 109 122 102 116 121 100 113 5,8
Álmur 16007* 116 103 107 120 109 102 87 111 104 99 91 121 129 97 109 5,1
Bikar 16008* N 116 101 93 115 110 93 91 106 106 134 113 121 133 100 115 5,2
Jarfi 16016 N 109 101 103 112 96 96 116 121 98 136 130 110 120 103 114 5,2
Skírnir 16018* N 110 108 115 118 101 102 90 109 102 112 105 112 117 100 111 5,6
Róður 16019* N 110 108 127 117 87 111 100 82 107 108 112 101 113 100 111 5,7
Dalur 16025* 106 97 99 107 97 103 107 110 104 106 102 120 122 100 109 4,9
Kári 16026* 96 106 103 92 77 97 119 105 99 136 106 114 120 100 107 5,0
Höttur 16028 112 100 116 118 106 97 106 114 100 123 116 106 86 100 111 4,4
Jónki 16036* 124 107 99 128 111 84 92 97 104 96 108 111 88 100 108 5,2
Númi 16038* 103 93 104 100 93 102 120 98 101 122 123 108 115 100 110 5,2
Skýringar:
N: Nautsfaðir T: Tilkynna nautkálfa *Getur gefið hyrnd afkvæmi
Kynbótaeinkunn = 0,36*afurðir + 0,08*mjaltir + 0,08*frumutala + 0,10*júgur + 0,10*ending + 0,10*spenar + 0,10*frjósemi + 0,08*skap
Afurðir = 0,47*magn mjólkurfitu + 0,48*magn mjólkurpróteins + 0,05*prótein%