Bændablaðið - 11.03.2021, Síða 47

Bændablaðið - 11.03.2021, Síða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 47 Margt hefur verið skrifað síðastliðið ár um COVID-19, en það er rétt tæplega ár síðan ég skrifaði í þessum forvarnarpistlum um COVID-19. Satt best að segja var vitneskja mín lítil um þennan faraldur, en eftir mikinn lestur um faraldurinn og hlustun á fróða menn er ég aðeins fróðari um veiruna. Annað er þó víst að miðað við upphafsorð mín í pistli fyrir tæpu ári er ég enn á sömu skoðun varðandi óheftan innflutning á landbúnaðarvörum. Fyrir ári byrjaði greinin svona: COVID – 19. Það verður ekki komist hjá því að skrifa um þessa veiru sem allir eru að tala um og ógnar landinu þessa dagana. Frétt sem var ný fyrir klukkutíma er orðin úrelt klukkutíma seinna og eflaust verður megnið af því sem hér er að neðan orðið úrelt þegar Bændablaðið kemur út þar sem þetta er skrifað nokkrum dögum fyrir prentun blaðsins. Fyrir mér er þessi veira lýsandi dæmi um hættuna sem getur skapast við óheftan innflutning á fersku kjöti. COVID-19 kemur með ferðamönnum erlendis frá og ekkert getur stoppað hana Hins vegar er verið að reyna að hægja á henni með ýmsum höftum. Í áraraðir hefur innflutningur á kjöti verið takmörkum háð og ekki enn komnar umgangspestir við þann innflutning. Ekki hægt að slaka á forvörnum í bráð Ég er enn á sömu skoðun varð andi innflutt kjöt og aðrar landbúnaðar- vörur, vil heldur borga örlítið meira fyrir hreina íslenska vöru sem er ekki með í-sprautuð efni sem ég veit ekkert hvernig virka á minn gamla skrokk. Um síðustu helgi skaut sér niður smit af COVID úr afbrigði sem kennt er við Bretland. Þetta smit sýnir að við verðum að vera vakandi allt þangað til að búið verður að bólusetja landsmenn í það miklum mæli að hættan á útbreiðslu veirunnar verður hverfandi. Mikið hef ég hugsað um hvernig er tekið á smiti og smitvörnum af völdum þessarar veiru síðastliðið ár og líkt þeim aðgerðum í huganum um forvarnir til að forðast slys, bruna og önnur áföll. Ef allir hugsuðu almennt um aðrar forvarnir eins og tekið hefur verið á COVID værum við í góðum málum gagnvart slysum, öðrum áföllum og tjónum. Til samanburðar benti írska heilbrigðisstofnunin (H.S.A. Health and Safety Authority) á að þegar kreppti að í írskum fjármálum og minna fé var varið til forvarna þá sást það strax á auknum slysum á Írlandi (eftir írska fjármálahrunið var skorið niður í fjármálum til forvarna um nálægt 30%, stuttu seinna var aukningin á slysum orðin 30% líka). Það sama virðist vera að gerast hér gagnvart COVID, en greinilegt að það má ekki slaka neitt á forvörnum gagnvart COVID eða öðru. Hvað getum við gert fyrir okkur sjálf Það þarf ekki alltaf skoðunarmenn, námskeið eða úttektaraðila til að koma manni af stað í að huga að forvörnum. Það eitt að eiga nokkra plásturspakka á ýmsum stöðum getur gagnast manni og að vera með alvöru sjúkrakassa á góðum stað þar sem umgangur er mikill upp á vegg minnir mann á það að vonandi þarf maður aldrei að opna þennan kassa. Það að hafa sjúkra- kassann fyrir allra augum hjálpar manni í undirmeðvitundinni að fara varlega. Þeir sem vinna mikið með tæki og tól þar sem aðskotahlutur getur hugsanlega farið í augu ættu að huga að tvennu. Að vera með ör- yggisgleraugu og að eiga augnskol- búnað. Slökkvitæki hafa oftast verið nefnd hér í þessum pistlum rétt fyrir jól, en slökkvitæki má al- veg æfa sig aðeins á. Taka það niður úr festingunni, sem getur vafist fyrir sumum (smellur geta verið ótrú- lega stífar og erfitt að opna, þá er bara að liðka smelluna með smurn- ingu). Öryggispinninn getur verið ryðgaður fastur í slökkvitækinu. Hann þarf að taka reglulega úr og liðka, en passa í leiðinni að sprauta ekki úr tækinu að óþörfu eða óvart þegar öryggispinninn er kominn úr. Höldum áfram að lifa lífinu, en hugsum í forvörnum, sama hvort það er COVID eða aðrar hættur sem hugsanlega læðast að okkur. Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Rétt að verða ár frá fyrstu forvarnarskrifum um COVID-19 Slökkvitæki utan á traktor, en er þetta tæki auðlosanlegt? Svona augnskolsbúnaði hef ég góða reynslu af. Þessi er alltaf sígild og segir allt sem segja þarf. NÝR VALKOSTUR - SMÁHÝSI ÚR STÁLGRIND 5 X 8 M - ÓEINANGRAÐ SMÁHÝSI - 1.550.000 KR. M/VSK. 5 X 8 M - EINANGRAÐ SMÁHÝSI - 2.150.000 KR. M/VSK. Smáhýsi úr Z - stálgrind. Fæst með tvenns konar klæðningum. Stærð grunngerðar er 5 x 8 m / 40 m². Vegghæð 2,8 m. Stærð á hurðargati 3 x 2,5 m. EINFÖLD HÚS - AUÐVELD UPPSETNING GRÓÐURHÚS Tryggðu þér vandað gróðurhús! SMÁHÝSI - 40 M² - 100 M² TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 571-3535 VEFFANG www .bkhonnun . is Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Bænda 25. mars SPLÆSTU SKRÁ GRUNDA SKAGI Í A-ASÍU FÍNGERÐ FRAM AÐ VEIÐAR- FÆRI ÞUS FISKUR VÍÐ- FRÆGING AÐHEFST GRÍPA NÍÐA MISSA EINS AFDREP ÖRK GEYMSLA HVÍLA SMÁN TVEIR EINS FUGL SVEIMDROLLA NÓTA BEYGÐU SNIGIL- SKEL SAMTÖK GRAMUR NASL FRAM MEÐ FÉLAGI PLÁSS GLEÐI BENDU VERKFÆRI VARKÁRNI BORINN GJALD- MIÐILL HJÁ HLUTDEILD ÝFA DÁLKAR EINFALT Á NÝ SÁÐJÖRÐ SLYS SPIL KK NAFN UM- KRINGJA FJÖRGAST HÖFGI ÍÞRÓTTA- FÉLAG SLEKT HLÍFÐAR- LAG MANNA- LÆTI ALA SKIL RIFTUN SKEMMU HÓTUN YRKJA NÆÐI INN- BLÁSTUR H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 147 Það eitt að vera með sjúkrakassann alltaf fyrir augunum, minnir undir­ meðvitundina á að vera á varðbergi.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.