Bændablaðið - 11.03.2021, Qupperneq 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202154
Mjólkurbúið Biobú, sem fram-
leiðir lífrænt vottaðar mjólkur-
vörur, er nú með lífrænt vottað
húðkrem í vöruþróun sem nýtir
virku efni mysunnar og ætlað
verður til útflutnings en einnig
markaðssetningar innanlands.
Sverrir Örn Gunnarsson,
framleiðslustjóri hjá Biobú, hefur
stýrt verkefninu og hann segir að
það sé á lokastigi.
„Búið er að prófa kremið í
neytendakönnun og niðurstöður
voru afgerandi jákvæðar. Því er
tilhlökkunin enn meiri að koma
vörunni á markað.“
Kúabóndinn og máttur mysunnar
Sverrir segir að forsaga vöruþró-
unarinnar sé orðin nokkuð löng.
„Ætli megi ekki rekja hana alveg
aftur til kynna minna af bónda einum
sem hugsaði alla tíð vel um dýrin sín.
Hann sagði mér frá mætti mysunnar.
Þegar kálfarnir hjá honum fengu
einhvers konar exem þá gaf hann
þeim vel af mysu, úr varð að þeir
fengu skjótan bata og enduðu með
silkimjúkan feldinn. Ég hlustaði
vel á bóndann því sjálfur er ég með
exem, sem blossar upp þá og þegar,
og hef prófað mörg kremin í gegnum
ævina. Úr varð að ég talaði
við sérfræðinga hjá Matís um
hvort ekki væri hægt að vinna
heilsubætandi efni úr mysunni
sem fellur frá við gerð skyrs
og grískrar jógúrtar. Fengum
við frábærar undirtektir hjá
Matís sem er með mjög færa
sérfræðinga á sínum snærum,
tæki og tól sem geta unnið
faglega vinnu sem þessa.“
Snyrtivöruafurð
með virk efni
„Markmið verkefnisins var
að þróa snyrtivöruafurð sem
inniheldur virk efni úr ís-
lenskri lífrænt vottaðri mysu.
Megnið af mysu sem fellur til
við mjólkurvinnslu er hent og
því eru möguleikar á mikilli
verðmætaaukningu út úr þessu
verkefni.
Hugmyndin þróaðist og
hafist var handa með að
finna virku efnin í mysunni, þau
einangruð og á endanum blandað
út í lífrænan kremgrunn sem tók
einnig tíma að finna. Þetta kann að
hljóma sem einfalt ferli, en það var
svo sannarlega ekki raunin,“ segir
Sverrir.
Andoxunarvirkni
Hann lýsir ferlinu svo nánar sem
tók alls fimm ár.
„Prófað var að aðskilja
mismunandi þætti mysunnar með
himnusíubúnaði á tilraunaskala
sem er staðsettur hjá Matís. Einnig
voru mismunandi ensím prófuð til
að brjóta niður prótein í mysunni
niður í smærri einingar sem kallast
peptíð. Þau voru flokkuð eftir stærð
með síubúnaðinum og frostþurrkuð.
Virkni þessara mismunandi
efnisþátta var prófuð hjá Matís þar
sem til dæmis var kannað hvort
þeir hefðu andoxunarvirkni eða
hvort þeir hefðu virkni til að hemja
vöxt bólumyndandi örvera. Þeir
efnisþættir sem komu best út voru
notaðir við þróun á kremi.
Þar voru prófaðir mismunandi
kremgrunnar, framleiðsluaðferðir,
framkvæmdar geymsluþolsprófanir
og umbúðir valdar. Kremið var að
því loknu prófað í neytendakönnun
þar sem þátttakendur fengu krem
með eða án efnisþátta úr mysu,“
segir Sverrir um hið flókna til-
raunaferli.
Jafnast á við bestu
húðkrem á markaði
„Ég er mjög sáttur með teymið sem
kom að rannsókninni hjá Matís, en
markmið númer eitt, tvö og þrjú
var að vanda til verka og fullgera
gæðavöru sem er samkeppnisfær
við bestu húðkrem sem eru á
markaðnum. Hátt var stefnt enda
einvala lið vísindamanna sem Biobú
fékk aðgang að.
Þessi vinna hefði seint farið
af stað nema með aðkomu
nýsköpunarstyrkja, vísindavinna sem
þessi er ekki á færi allra fyrirtækja.
Við fengum fyrst styrk frá MiMM
(Mjólk í mörgum myndum) og síðar
frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins
og að lokum styrk frá Matvælasjóði
í byrjun þessa árs. Að því sögðu
stefnum við að því að klára
vöruþróun á þessu ári og koma
vörunni á markað ef allt gengur
upp,“ segir Sverrir að lokum. /smh
Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
TS 19
Teygjubolur
TS 13
Frábærir bolir frá
Texstar. Halda stærð
og lit mjög vel í þvotti.
100% burstaður bómull
Verð: 2.096 kr.
95% bómull, 5% spandex
Verð: 2.592 kr.
Varmadæluskjól
Vönduð - evrópsk framleiðsla
Tilboð
kr. 27.990
Verð áður kr. 39.986
á meðan birgðir endast
Varmadælubúðin Allar frekari upplýsingar: www.kgg.iswww.kgg.is - 55-20000 - kgg@kgg.is
-heildverslun síðan 1941
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
VÉLBOÐA mykjudreifarar!
VÉLBOÐI
S: 565-1800
www.velbodi.is
Í fjórum útfærslum
og mörgum stærðum
TIL SÖLU
SCANIA R500
CAT 444F
NÝTT TÆKI: EP20AN
SCANIA R420
CAT 305C
Árgerð: 2010
Notaður: 8.335 vst
Ný vökvadæla, hraðtengi, 1 skófla
Verð: 8.500.000 + vsk
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband
í síma 5905100 eða sala@klettur.is
Árgerð: 2007
Engcon rototilt og 3 skólfur,
vinnuþyngd uþb. 5300 kg,
gúmmíbelti
Verð: 4.950.000 + vsk
Árgerð: 2006
6x4, glussakerfi fyrir sideloader,
keyrður 515.000 km, 500 hestöfl
Verð: 2.700.000 kr. + vsk
Árgerð: 2014
Notaður: 4.800 vst
engcon rototilt, 2 skóflur
Verð: 11.200.000 + vsk
Lyftigeta 2000kg, lyftimiðja 500mm.
Þrefalt mastur. Lyftihæð 4800 mm.
Hliðarfærsla á göfflum, strikfrí dekk
öryggisljós, bakkflauta, blikkljós.
Verð: 4.350.000 + vsk
Árgerð: 2004
Notaður: Keyrður 272.000 km
420 hestöfl
Verð: 1.900.000 kr. + vsk
KOMATSU PC210
LÍF&STARF
Biobú með heilsubætandi húðkrem í þróun:
Á að jafnast á við bestu húðkremin á markaði
– Fimm ára þróunarferli að baki og stefnt á markaðssetningu á árinu
Sverrir Örn Gunnarsson, framleiðslustjóri hjá Biobú.
Himnusíubúnaðurinn sem notaður var til
að aðskilja mismunandi þætti mysunnar.
Mysukrem í krukkum, þar sem afurðin er tilbúin en umbúðirnar eru bráða-
birgða.