Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 17

Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 17 Nýlega kom í ljós alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. Land helgis gæslan á ekki nauðsynlega varahluti, smíði þeirra er tímafrek og ekki yrði um var an lega við- gerð að ræða. Reynt var að fá varahluti úr varð skipinu Ægi en þá kom í ljós að sama bilun var í vél hans. Ríkisstjórnin hefur því samþykkt tillögu þess efnis að þegar verði hafist handa við kaup á nýlegu skipi. Í frétt á heimasíðu Landhelgis­ gæslunnar segir að nýlega hafi kom í ljós alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. Landhelgisgæslan á ekki nauðsynlega varahluti, smíði þeirra er tímafrek og ekki yrði um varanlega viðgerð að ræða. Reynt var að fá varahluti úr varðskipinu Ægi en þá kom í ljós að sama bilun var í vél hans. Einnig kom í ljós við slipptöku í janúar að tveir af tönkum skipsins eru ónýtir sökum tæringar og sjókælikerfi skipsins lekur. Slíkur leki ógnar öryggi skips og áhafnar. Varðskipið Týr er 46 ára gam­ alt og ástand þess orðið bágborið. Ómögulegt er að sjá fyrir næstu alvarlegu bilanir. Kostnaður við að gera skipið siglingarhæft er talinn nema meiru en sem svara verðmæti skipsins, eða um 100 milljónum króna. Staða á mörkuðum fyrir kaup á nýlegum skipum, til dæmis þjónustuskipum úr olíuiðnaðin­ um, er talin einkar góð um þessar mundir. Um er að ræða skip sem henta vel til að sinna verkefnum Landhelgisgæslunnar með mikla dráttargetu, góða stjórnhæfni, gott dekkpláss og fullkominn slökkvi­ búnað. Skip þessi eru vel útbúin til björgunarstarfa og til aðstoðar við almannavarnir. Þá eru þau mun umhverfisvænni en eldri skip. Þjóðaröryggi og almannavarnir Í ljósi þess um hve brýnt mál er að ræða sem varðar þjóðaröryggi, al­ mannavarnir, öryggi sjófarenda og auðlindagæslu hefur ríkisstjórnin samþykkt tillögu dómsmálaráðherra þess efnis að þegar verði hafist handa við kaup á nýlegu skipi. Geta má þess að skv. 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2021 kemur fram að heimilt sé að selja varðskipin Tý og Ægi og leigja eða kaupa hagkvæmari skip í staðinn. Starfshópur þriggja sérfræðinga sem skipaður verður fulltrúum dómsmálaráðuneytis, Landhelgisgæslunnar og Ríkiskaupa mun vinna að undirbúningi og fram­ kvæmd kaupanna. /VH Stuðningsgreiðslur við dýralæknaþjónustu í Dölum og Ströndum Samningar lausir til umsóknar Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu í Dölum og á Ströndum. Markmiðið er að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af skornum skammti. Starfið felur í sér að gegna dýralæknisþjónustu fyrir búfé og gæludýr í Dölum og á Ströndum og að taka að sér tiltekin störf fyrir Matvælastofnun. Þjónustusamningur er gerður til tæplega fjögurra ára, gildir frá 1. júlí 2021 til og með 30. apríl 2025. Um þjónustusvæði 2 er að ræða sem hjúpar Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Árneshrepp, Kaldrananeshrepp og Bæjarhrepp. Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið starf@mast.is merktar “Dýralæknir – þjónustusvæði 2”, ásamt starfsferilskrá, prófskírteinum og kynningarbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2021. Nánari upplýsingar um samninginn er að finna á vef Matvælastofnunar: www.mast.is. Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0080 // buvelar@buvelar.is // www.buvelar.is • Dyna 4 skipting: 16 + 16 Rafskiptur með 4 gírum og 4 milligírum Vökvavendigír • 4 strokkar 115 hestöfl • Ámoksurstæki með vökvadempun, 3ja sviði, Euro-SMS ramma og innbyggðum stjórntækjum • 100 lítra vökvadæling • 3 vökvasneiðar (3x2) • Vökvavagnbremsuloki (1+2) • Lyftukrókur með vökvaútskoti • 3. hraða aflúrtak, 540-540E-1000 • Frambretti, sveigjanleiki í beygju • Dekk 540/65R34 og 440/65R24 • Húsfjöðrun • Loftkæling • Stillanlegt loftpúðasæti • Farþegasæti m/öryggisbelti • Útvarp m/CD, MP3, USB og Bluetooth • Visio glerþak fremst á ökumannshúsi • 2 vinnuljós framan og 2 aftan • Vinnublikkljós Verð með ámoksturstækjum kr. 12.680.000 án vsk. ve rð m ið að v ið g en gi E U R 1 5 5 MF 5S.115 Búnaður: Í skýrslu Hafró í desember síðastliðinn, er meðaltal aldursskiptra vísitalna í fjölda næstliðinna sjö árganga í ýsu 2014 til og með 2020 rúmum fjórðungi hærra en tímabilið 1999 til 2005. Landssamband smábátaeigenda: Ýsan vanmetin Samkvæmt því sem segir á vef Landssambands smábátaeigenda er ýsustofninn við landið vanmet- inn og því ástæða til að bæta við veiðiheimildir. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambandsins, segir að niður­ stöður rallsins 2020 sýndu að ýsu­ stofninn er í góðu ásigkomulagi og samkvæmt aflareglu ráðlagði Hafrannsóknastofnun um 9% aukn­ ingu frá fiskveiðiárinu 2019/2020. „Í skýrslu Hafró í desember síð­ astliðinn, er meðaltal aldurs skiptra vísitalna í fjölda næstliðinna sjö árganga í ýsu 2014 til og með 2020 rúmum fjórðungi hærra en tímabilið 1999 til 2005. Ráðlagður heildar­ afli nú er hins vegar aðeins 45.389 tonn en var fiskveiðiárið 2005/2006 105.000 tonn. Jafnframt er meðal­ þyngd allra þeirra árganga sem nú er verið að veiða yfir langtíma með­ altali. Nú er fiskveiðiárið hálfnað og staða margra útgerða farin að þrengjast. Í krókaaflamarkinu er búið að veiða um fjórðungi meira en það sem bátarnir fengu úthlut­ að samkvæmt aflahlutdeild. Með því að skipta þorski út fyrir ýsu úr aflamarkskerfinu hafa þeir aukið heimildir um 1.655 tonn. Þrátt fyrir það eru aðeins þúsund tonn eftir sem endast verður til loka fisk­ veiðiársins. Sambærilegur vandi er í aflamarkskerfinu, 11 þúsund tonn óveidd. Fyrirsjáanlegt er að fjölmargar útgerðir, jafnt stórar sem smáar þurfa að óbreyttu að stöðva veiðar á næstunni. Við því þarf ráðherra að bregðast með því að bæta strax við heimildum en ekki bíða með það til 1. september.“ Örn segir að Landssamtök smá­ bátaeigenda og Sjómannasamtökin hafi átt fund með sjávarútvegsráð­ herra um stöðuna og hafi ráðherra í framhaldinu komið á fundi milli samtakanna og hafrannsóknastofn­ unar. /VH Varðskipið Týr. Mynd / Landhelgisgæslan Landhelgisgæslan: Samþykkt að kaupa nýlegt skipi í stað varðskipsins Týs Nýhöfn fasteignasala hefur til sölu jarðirnar Gestsstaði og Höfðatún í Fáskrúðsfirði, ásamt öllum fasteignum og hlunnindum. Gestsstaðir og Höfðatún eru næstu jarðir sem liggja að þéttbýli Fáskrúðsfjarðar, og örskammt frá Fáskrúðsfjarðargöngum. Hlunnindi eru malartekjur úr Dalsá, silungsveiði í Dalsá og rjúpnaland upp á Hoffellsdal. Mikið og gott útsýni er frá Gestsstöðum og Höfðatúni yfir sveitina og fjörðinn. Óskað er eftir tilboðum í jarðirnar báðar ásamt mannvirkjum. Stærð íbúðarhúsa: Gestsstaðir 163,2 fm og Höfðatún 76,6 fm. Stærð jarða samtals: ca. 900 hektarar. Gestsstaðir og Höfðatún í Fáskrúðsfirði Hafið samband við Elvar Lund fasteignasala í síma 693 3518 eða elvar@nyhofn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.