Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202130 C120.7-6 PCAD Verð áður 34.900 kr. Tilboðsverð 24.430 kr. Premium 180-10 Verð áður 123.800 kr. Tilboðsverð 86.660 kr. C125.7-6 PC X-tra Verð áður 32.800 kr. Tilboðsverð 22.960 kr. Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | Olís Njarðvík | 260 Reykjanesbæ | 420 1000 | rekstrarland.is C135.1-8 PC Verð áður 39.799 kr. Tilboðsverð 27.859 kr. LAGERHREINSUN Á NILFISK HÁÞRÝSTIDÆLUM 30%AFSLÁTTUR UTAN ÚR HEIMI Indverskir bændur mótmæla Bændur á Indlandi sem hafa mót- mælt í Delí undanfarna mánuði segja að ekki sé hægt að líta ein- göngu á landbúnað sem hagfræði- lega stærð sem skuli reka sam- kvæmt lögmálum markaðarins. Að sögn bændanna er landbúnað- ur hluti af lífi þeirra, hvort sem á hann sé litið út frá félags-, menn- ingar- eða trúarlegum forsendum. Landbúnaður og fæðuframleiðsla á Indlandi er gríðarlega mikil enda voru Indverjar taldir vera tæplega 1,4 milljarðar um síðustu áramót og um 60% þjóðarinnar starfa í tengslum við landbúnað og fæðu­ framleiðslu. Talmaður bænda segir að landbúnaður sem er miðlægur í lífi og trúarbrögðum þjóðarinnar hafi hnignað mikið á síðustu ára­ tugum og eigi í dag við djúpstæðan vanda að stríða. Hundruð þúsunda bænda mótmæla Frá því í nóvember á síðasta ári hafa hundruð þúsunda bænda á Indlandi safnast saman í þremur búðum í útjaðri Delí til að mótmæla nýjum lögum og stefnu stjórnvalda í land­ búnaði og endurheimta það sem bændurnir segja rétt sinn til að stunda landbúnað á eigin forsendum. Búðirnar þar sem bændurnir hafa safnast fyrir eru vel skipulagðar, með húsvögnum, stóreldhúsum og svefn­ skálum og mögulega gætu mótmæl­ in því staðið í nokkur ár. Auk þess sem sett hefur verið upp bókasafn og önnur aðstaða til afþreyingar. Óánægja með lagasetningu Í september síðastliðinn samþykkti ríkisstjórn Indlands þrenn ný lög sem áttu að leiða til mestu framfara í indverskum landbúnaði í áratugi. Lögin voru samþykkt án samráðs við bændur eða forsvarsmanna þeirra í landinu og í framhaldinu hefur lögunum verið mótmælt kröftug­ lega. Með samþykkt laganna þykir bændum freklega framhjá þeim gengið og þeir segja að lögin tak­ marki rétt sinn þegar kemur að samningum við stór matvælafyr­ irtæki. Enda hugmyndin með lög­ unum að auka vægi einkafyrirtækja í indverskum landbúnaði og draga úr afskiptum ríkisins. Mótmæli vegna setningar laganna hófust í landbúnaðarhéruðum í norð­ urhluta landsins þar sem síkar eru í meirihluta. Mótmælin fóru hægt af stað og fólust aðallega í fjöldasetum við opinberar byggingar og í að loka götum og stöðva flutninga á vörum. Í nóvember varð breyting á þegar samtök bænda í landinu tóku hönd­ um saman og hvöttu félagsmenn sína til að taka þátt í mótmælagöngu sem halda skyldi til Delí. Viðbrögð bænda við kallinu voru mikil og í framhaldinu tóku hundruð þúsunda bænda sig upp og stefndu til borgarinnar gangandi, á dráttarvél­ um eða öðrum farartækjum. Á þeim tímapunkti fór að hitna í kolunum og sums staðar kom til átaka milli bænda og yfirvalda sem reyndu að hefta för þeirra með lögregluvaldi þar sem beitt var bareflum, táragasi og vatnsfallbyssum. Í kjölfarið var fjöldi mótmælenda fangelsaður og nokkrir blaðamenn sakaðir um rangfærslur, meðal annars eftir að hafa sagt að lög­ reglan hafi skotið einn mótmælenda til bana. Stjórnvöld í landinu hafa á sama tíma brugðist illa við fréttum af mótmælunum í erlendum fjölmiðlum og sagt þær óþörf afskipti af innan­ ríkismálum. Stjórnvöld hafa einnig farið fram á að nokkur þúsund færsl­ ur frá stjórnmálamönnum, bændum og blaðamönnum verði fjarlægðar af samfélagsmiðlum á þeim forsendum að þær séu villandi. Viðbrögð stjórnvalda hafa ein­ göngu orðið til að stappa stálinu í bændurna og efla samhug þeirra um að halda mótmælunum áfram þar til lögin verða dregin til baka. Um hvað snúast mótmælin? Samkvæmt opinberum tölum á Ind­ landi starfar hátt í 60% vinnandi fólks í landinu við störf sem tengjast land­ búnaði og samtök bænda í landinu því öflug. Meðal þess sem er verið að mót­ mæla er að lágmarksverð fyrir það sem bændur framleiða verður af n­ umið og kaupendum því frjálst að þvinga verð niður eins og hægt er og engin trygging lengur fyrir því að bændur fái fyrir framleiðslukostn­ aði. Rök stjórnarinnar fyrir því að afnema lágmarksverð er að kaupend­ um muni fjölga og samkeppni aukast og verð til bænda hækka í kjölfarið. Bændur segja aftur á móti að með því að afnema lágmarksverð geti stór fyrirtæki ákveðið sjálf hvaða verð þau vilja greiða fyrir landbúnað­ arvörur og hagur bænda því versna. Í kjölfarið munu þeir verða gjaldþrota og neyðist til að hætta búskap og selja jarðir sínar. Fylgjendur laganna segja að í dag séu það eingöngu vel stæðir bændur sem njóti þess að fá greitt lágmarks­ verð sem tryggi afkomu þeirra en að bændur sem stundi nánast sjálfs­ þurftarbúskap njóti þess ekki. Annað sem fylgjendur laganna hafa bent á er að stór hluti landbún­ aðar í Indlandi sé ótæknivæddur og að það verði að uppfæra hann að kröfum nútímans til að mögulegt sé að fæða Indverskir bændur á leið til Delí að mótmæla viðhorfi stjórnvalda og stórfyrirtækja til landbúnaðar. Þrátt fyrir að mótmælin hafi að mestu verið friðsamleg hafa brotist út átök milli bænda og lögreglunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.