Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 43 Núverandi landbúnaðarráðherra lagði fyrir Alþingi frumvarp að lögum árið 2019 og fékk það sam- þykkt að Búnaðarstofa færðist í atvinnuvegaráðuneytið 1. janúar 2020. Í dag heyrir Búnaðarstofa, sem sjálfstæð starfseining, sögunni til því hún finnst hvergi innan ráðuneytis landbúnaðar. Það er ljóst að í engu hefur verið farið eftir vilja löggjafar­ samkomunnar, því í greinargerð atvinnuveganefndar Alþingis voru frómar óskir sem fylgdu Búnaðarstofu í hina nýju vist við vistaskiptin. Fyrirmæli Alþingis voru kýrskýr: ,,Atvinnuveganefnd Alþingis beinir því til ráðuneytisins í ljósi mikilvægi og umfangs þeirra verk­ efna sem Búnaðarstofa sinnir í dag við framkvæmd búvörusamninga, hagtölusöfnun og þróun tölvukerfa að ráðuneytið afmarki með skýrum hætti verkefni Búnaðarstofu innan ráðuneytisins.“ Verkefni Búnaðarstofu við að halda utan um verkefni í tengslum við búvörusamninga ríkis og bænda, má rekja um 80 ár aftur í tímann til samninga bænda við stjórnvöld, og ætíð var talið skynsamlegt og hag­ kvæmt að þessi starfsemi væri sam­ starfsverkefni stjórnvalda og bænda. Þá höfðu menn nefnilegt heyrt talað um tengslanet í stjórn­sýslu, sem er það heitasta í þeim fræðum í dag. Það sem er alvarlegt við þenn­ an gjörning ráðherra er að hér er illilega farið á svig við vandaða stjórnsýsluhætti í anda stjórnsýslu­ laga, helsta markmið með setningu stjórnsýslulaga var að tryggja sem best réttaröryggi manna í skiptum við hið opinbera. Með því að færa stjórnsýsluverkefni í tengslum við framkvæmd búvörusamninga undir ráðuneyti landbúnaðarmála þá er tekin kæruréttur af bændum á öllum stjórnvaldsákvörðunum. Kæruleiðin hefur verið tekin af bændum með innlimun Búnaðarstofu inn í ráðu­ neyti landbúnaðarráðherrans fyrir ári síðan. Ef bændur telja á sér brotið af ráðherra við framkvæmd búvöru­ samninga, þá verða þeir að reka málið fyrir dómstólum með ærnum kostnaði. Hér er horfið mörg ár aftur til stjórnarhátta einveldisins. Hæstaréttardómur sem staðfestir brotavilja Hér skal rifjuð upp kæra af sama meiði um góða stjórnsýsluhætti sem staðfestir þennan brotavilja ráðuneytisins. Hér var mér bent á mál af þessum toga og birt er í dómasafni Hæstaréttar árið 1992, bls. 1377. Það hefur í sjálfu sér ekki verið mikið skrifað hér á landi um þessa óskráðu meginreglu og það er þá helst að vikið sé að henni í álitum eða skrifum Umboðsmanns Alþingis á liðnum árum. Læt fylgja hér með athugasemdir úr frumvarpi til stjórnsýslulaga þar sem fjallað var um hin nýju ákvæði þeirra laga um stjórnsýsluákæru. Hrd. 1992: 1377/Hólagarður …hafði sama ríkisstofnun á hendi rannsókn í söluskattsmáli sóknar­ aðila og uppkvaðningu úrskurðar á grundvelli þeirrar rannsóknar. Sóknaraðili fékk ekki komið fram endurskoðun á þeim efniságreiningi sem uppi er í málinu, hvorki með kæru til æðra stjórnvalds né í lög­ taksmáli. Með þessu móti var mál hans leitt til lykta á einu stjórnsýslu­ stigi. Þessi máls­meðferð var svo andstæð meginreglum stjórnsýslu­ réttar um rétt borgaranna til endur­ skoðunar á stjórnvaldsúrskurði fyrir æðra stjórnvaldi. Bændaforystan sendir Umba kvörtun Ójöfn staða samningsaðila búvöru­ samninga er öllum sýnileg. Þess vegna hafa Bændasamtök Íslands nú beint því til Umboðsmanns Alþingis að taka málið upp. Stjórn Bændasamtakanna færir fyrir því rök að framkvæmd búvörusamninga, hagtölusöfnun í landbúnaði og eftirlit með markmiðum búvörusamninga eigi ekki að liggja hjá sjálfstæðri stjórnsýslustofnun sem væri undir yfirstjórn annars samningsaðilans, heldur hjá sjálfstæðri stofnun er lúti sérstakri stjórn, þó hún heyri stjórnar­ farslega undir landbúnaðarráðherra. Búvörusamningar eru samstarfs­ samningar ríkis og bænda til að efla íslenskan landbúnað í þágu þjóðar­ hags m.a. til að tryggja fæðuöryggi Íslendinga á viðsjárverðum tímum. Hnökralaus framkvæmd búvöru­ samninga skiptir framleiðendur í landbúnaði, neytendur og stjórnvöld miklu máli. Samstarfsaðilar að gerð búvöru­ samninga, stjórnvöld og bændur, þurfa að koma sér saman um hvar verkefni í tengslum við framkvæmd búvörusamninga liggja, þar sem hagsmunir fara saman. Það er þýð­ ingarmikið að traust ríki milli samn­ ingsaðila um framkvæmd samning­ anna til að tryggja gegnsæi og að markmið samninganna náist, en ekki síður til að tryggja vandaða stjórn­ sýsluhætti. Sigurður Ingi reyndi að verja Búnaðarstofu Vísir að sjálfstæðri stjórnsýslustofnun í landbúnaði, Búnaðarstofu, varð til þegar stjórnsýsluverkefni í tengslum við framkvæmd búvörusamninga og hagtölusöfnun í landbúnaði voru flutt af Sigurði Inga Jóhannssyni, þáverandi landbúnaðarráðherra, til Matvælastofnunar árið 2016 og sett inn í sjálfstæða skrifstofu innan stofn­ unarinnar með lögum nr. 46/2015. Þar með var ábyrgð og framkvæmd á verkefnunum komin á sama stað. Vandinn við þann flutning var þó að verkefnin áttu litla samlegð með eft­ irlitsverkefnum MAST. Í nefnd­ aráliti meirihluta atvinnunefndar með frumvarpinu dags. 11. júní 2015 segir svo um þetta (feitletrun höfundar).: ,,Nefndinni bárust efasemdir um að fela ætti Matvælastofnun umrædd verkefni þar sem þau eru einkum í ætt við þjónustu, framkvæmd búvöru­ samninga, áætlunargerð og söfnun talnaupplýsinga en ekki eftirlit sem er meginhlutverk stofnunarinnar. Með öðrum orðum var bent á að umrædd verkefni féllu ekki að þeim verkefnum sem stofnunin sinnir nú þegar. Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og telur brýnt að verkefn­ in verði skýrt afmörkuð í sjálfstæðri einingu í skipulagi stofnunarinnar." Allt vald er ráðherra nú gefið Hér verður að gera bragarbót á án tafar. Í því sambandi má vísa til sjáv­ arútvegsins, sem hefur Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun. Ekkert slíkt er fyrir hendi fyrir landbúnað, því allt vald er ráðherra gefið. Landbúnaðarráðherra lagði Framleiðni sjóð landbúnaðarins niður um síðustu áramót, sem gegndi lykilhlutverki í nýsköpun og þróun íslensks landbúnaðar í 54 ár. Verkefni hans voru færð undir ráðuneytið, en ekki hvað! Bændur á ykkur er brotið og háðu­ lega farið með stjórnsýslu ríkisins hvað snýr að málefnum landbúnað­ arins. Nú er nóg komið. Nú er það skylda forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, sem fer fyrir ríkis­ stjórninni að krefjast úrbóta í stjórn­ sýslumálefnum landbúnaðarins og bænda. Að tryggðir verði vandaðir stjórnsýsluhættir í anda lýðræðisrík­ is. Sjálfstæðisflokkurinn hefur flotið sofandi að feigðarósi með veikt ráðu­ neyti sem snýr að faglegum málefn­ um landbúnaðarins. Hingað og ekki lengra, Bjarni Benediktsson, þinn flokkur á aðra og betri sögu gagnvart bændum. Sigurður Ingi Jóhannsson, nú reyn­ ir á þolrif þín og sögu flokks þíns. Þingmenn atvinnuveganefndar Alþingis, þið voruð sviknir og plat­ aðir, ykkar tillögur að engu hafðar af landbúnaðarráðherra. Lögfróðir menn segja að Búnaðarstofa verði að vera sjálfstæð stofnun alls ekki síður en Fiskistofa. Endurreisn land­ búnaðarráðuneytisins og lögborinna stofnana landbúnaðarins ásamt ster­ kri framtíðarsýn land búnaðarins og bændastéttarinnar er fram undan. Verkefnin verður að kalla heim. Guðni Ágústsson Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 RÚÐUR Í DRÁTTARVÉLAR FRÁBÆR VERÐ John Deere Zetor Case IH McCormick Steyr Claas Ford Fiat New Holland Deutz-Fahr Massey Ferguson Lífræn hreinsistöð • Fyrirferðalítil fullkomin sambyggð skolphreinsistöð • Uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði hreinsunar • Engin rotþró eða siturlögn 25 ára ábyrgð • Tæming seyru á þriggja til fimm ára fresti • Engir hreyfanlegir hlutir • Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík Sími 517 2220 - petur@idnver.is G ra fik a 19 F u r u v ö l l u m 1 - 6 0 0 A k u r e y r i - S : 4 1 4 - 3 7 8 0 LAMBAMERKI Pa n t a n i r b e ra s t í g e g n u m b u fe . i s SAMFÉLAGSRÝNI Brotið á bændum Guðni Ágústsson. Bænda 25. MARS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.