Bændablaðið - 11.03.2021, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 43
Núverandi landbúnaðarráðherra
lagði fyrir Alþingi frumvarp að
lögum árið 2019 og fékk það sam-
þykkt að Búnaðarstofa færðist í
atvinnuvegaráðuneytið 1. janúar
2020. Í dag heyrir Búnaðarstofa,
sem sjálfstæð starfseining, sögunni
til því hún finnst hvergi innan
ráðuneytis landbúnaðar.
Það er ljóst að í engu hefur
verið farið eftir vilja löggjafar
samkomunnar, því í greinargerð
atvinnuveganefndar Alþingis
voru frómar óskir sem fylgdu
Búnaðarstofu í hina nýju vist við
vistaskiptin. Fyrirmæli Alþingis
voru kýrskýr:
,,Atvinnuveganefnd Alþingis
beinir því til ráðuneytisins í ljósi
mikilvægi og umfangs þeirra verk
efna sem Búnaðarstofa sinnir í dag
við framkvæmd búvörusamninga,
hagtölusöfnun og þróun tölvukerfa
að ráðuneytið afmarki með skýrum
hætti verkefni Búnaðarstofu innan
ráðuneytisins.“
Verkefni Búnaðarstofu við að
halda utan um verkefni í tengslum
við búvörusamninga ríkis og bænda,
má rekja um 80 ár aftur í tímann til
samninga bænda við stjórnvöld, og
ætíð var talið skynsamlegt og hag
kvæmt að þessi starfsemi væri sam
starfsverkefni stjórnvalda og bænda.
Þá höfðu menn nefnilegt heyrt talað
um tengslanet í stjórnsýslu, sem er
það heitasta í þeim fræðum í dag.
Það sem er alvarlegt við þenn
an gjörning ráðherra er að hér er
illilega farið á svig við vandaða
stjórnsýsluhætti í anda stjórnsýslu
laga, helsta markmið með setningu
stjórnsýslulaga var að tryggja sem
best réttaröryggi manna í skiptum
við hið opinbera. Með því að færa
stjórnsýsluverkefni í tengslum við
framkvæmd búvörusamninga undir
ráðuneyti landbúnaðarmála þá er
tekin kæruréttur af bændum á öllum
stjórnvaldsákvörðunum. Kæruleiðin
hefur verið tekin af bændum með
innlimun Búnaðarstofu inn í ráðu
neyti landbúnaðarráðherrans fyrir
ári síðan.
Ef bændur telja á sér brotið af
ráðherra við framkvæmd búvöru
samninga, þá verða þeir að reka
málið fyrir dómstólum með ærnum
kostnaði. Hér er horfið mörg ár aftur
til stjórnarhátta einveldisins.
Hæstaréttardómur sem
staðfestir brotavilja
Hér skal rifjuð upp kæra af sama
meiði um góða stjórnsýsluhætti
sem staðfestir þennan brotavilja
ráðuneytisins. Hér var mér bent
á mál af þessum toga og birt er í
dómasafni Hæstaréttar árið 1992,
bls. 1377. Það hefur í sjálfu sér ekki
verið mikið skrifað hér á landi um
þessa óskráðu meginreglu og það
er þá helst að vikið sé að henni í
álitum eða skrifum Umboðsmanns
Alþingis á liðnum árum. Læt fylgja
hér með athugasemdir úr frumvarpi
til stjórnsýslulaga þar sem fjallað var
um hin nýju ákvæði þeirra laga um
stjórnsýsluákæru.
Hrd. 1992: 1377/Hólagarður
…hafði sama ríkisstofnun á hendi
rannsókn í söluskattsmáli sóknar
aðila og uppkvaðningu úrskurðar
á grundvelli þeirrar rannsóknar.
Sóknaraðili fékk ekki komið fram
endurskoðun á þeim efniságreiningi
sem uppi er í málinu, hvorki með
kæru til æðra stjórnvalds né í lög
taksmáli. Með þessu móti var mál
hans leitt til lykta á einu stjórnsýslu
stigi. Þessi málsmeðferð var svo
andstæð meginreglum stjórnsýslu
réttar um rétt borgaranna til endur
skoðunar á stjórnvaldsúrskurði fyrir
æðra stjórnvaldi.
Bændaforystan sendir
Umba kvörtun
Ójöfn staða samningsaðila búvöru
samninga er öllum sýnileg. Þess
vegna hafa Bændasamtök Íslands
nú beint því til Umboðsmanns
Alþingis að taka málið upp. Stjórn
Bændasamtakanna færir fyrir því
rök að framkvæmd búvörusamninga,
hagtölusöfnun í landbúnaði og eftirlit
með markmiðum búvörusamninga
eigi ekki að liggja hjá sjálfstæðri
stjórnsýslustofnun sem væri undir
yfirstjórn annars samningsaðilans,
heldur hjá sjálfstæðri stofnun er lúti
sérstakri stjórn, þó hún heyri stjórnar
farslega undir landbúnaðarráðherra.
Búvörusamningar eru samstarfs
samningar ríkis og bænda til að efla
íslenskan landbúnað í þágu þjóðar
hags m.a. til að tryggja fæðuöryggi
Íslendinga á viðsjárverðum tímum.
Hnökralaus framkvæmd búvöru
samninga skiptir framleiðendur í
landbúnaði, neytendur og stjórnvöld
miklu máli.
Samstarfsaðilar að gerð búvöru
samninga, stjórnvöld og bændur,
þurfa að koma sér saman um hvar
verkefni í tengslum við framkvæmd
búvörusamninga liggja, þar sem
hagsmunir fara saman. Það er þýð
ingarmikið að traust ríki milli samn
ingsaðila um framkvæmd samning
anna til að tryggja gegnsæi og að
markmið samninganna náist, en ekki
síður til að tryggja vandaða stjórn
sýsluhætti.
Sigurður Ingi reyndi að
verja Búnaðarstofu
Vísir að sjálfstæðri stjórnsýslustofnun
í landbúnaði, Búnaðarstofu, varð til
þegar stjórnsýsluverkefni í tengslum
við framkvæmd búvörusamninga
og hagtölusöfnun í landbúnaði voru
flutt af Sigurði Inga Jóhannssyni,
þáverandi landbúnaðarráðherra, til
Matvælastofnunar árið 2016 og sett
inn í sjálfstæða skrifstofu innan stofn
unarinnar með lögum nr. 46/2015.
Þar með var ábyrgð og framkvæmd
á verkefnunum komin á sama stað.
Vandinn við þann flutning var þó að
verkefnin áttu litla samlegð með eft
irlitsverkefnum MAST. Í nefnd
aráliti meirihluta atvinnunefndar með
frumvarpinu dags. 11. júní 2015 segir
svo um þetta (feitletrun höfundar).:
,,Nefndinni bárust efasemdir um
að fela ætti Matvælastofnun umrædd
verkefni þar sem þau eru einkum í ætt
við þjónustu, framkvæmd búvöru
samninga, áætlunargerð og söfnun
talnaupplýsinga en ekki eftirlit sem
er meginhlutverk stofnunarinnar.
Með öðrum orðum var bent á að
umrædd verkefni féllu ekki að þeim
verkefnum sem stofnunin sinnir nú
þegar. Meiri hlutinn tekur undir þessi
sjónarmið og telur brýnt að verkefn
in verði skýrt afmörkuð í sjálfstæðri
einingu í skipulagi stofnunarinnar."
Allt vald er ráðherra nú gefið
Hér verður að gera bragarbót á án
tafar. Í því sambandi má vísa til sjáv
arútvegsins, sem hefur Fiskistofu og
Hafrannsóknastofnun. Ekkert slíkt er
fyrir hendi fyrir landbúnað, því allt
vald er ráðherra gefið.
Landbúnaðarráðherra lagði
Framleiðni sjóð landbúnaðarins
niður um síðustu áramót, sem gegndi
lykilhlutverki í nýsköpun og þróun
íslensks landbúnaðar í 54 ár. Verkefni
hans voru færð undir ráðuneytið, en
ekki hvað!
Bændur á ykkur er brotið og háðu
lega farið með stjórnsýslu ríkisins
hvað snýr að málefnum landbúnað
arins. Nú er nóg komið. Nú er það
skylda forsætisráðherra, Katrínar
Jakobsdóttur, sem fer fyrir ríkis
stjórninni að krefjast úrbóta í stjórn
sýslumálefnum landbúnaðarins og
bænda. Að tryggðir verði vandaðir
stjórnsýsluhættir í anda lýðræðisrík
is. Sjálfstæðisflokkurinn hefur flotið
sofandi að feigðarósi með veikt ráðu
neyti sem snýr að faglegum málefn
um landbúnaðarins.
Hingað og ekki lengra, Bjarni
Benediktsson, þinn flokkur á aðra
og betri sögu gagnvart bændum.
Sigurður Ingi Jóhannsson, nú reyn
ir á þolrif þín og sögu flokks þíns.
Þingmenn atvinnuveganefndar
Alþingis, þið voruð sviknir og plat
aðir, ykkar tillögur að engu hafðar
af landbúnaðarráðherra. Lögfróðir
menn segja að Búnaðarstofa verði
að vera sjálfstæð stofnun alls ekki
síður en Fiskistofa. Endurreisn land
búnaðarráðuneytisins og lögborinna
stofnana landbúnaðarins ásamt ster
kri framtíðarsýn land búnaðarins og
bændastéttarinnar er fram undan.
Verkefnin verður að kalla heim.
Guðni Ágústsson
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
F u r u v ö l l u m 1 - 6 0 0 A k u r e y r i - S : 4 1 4 - 3 7 8 0
LAMBAMERKI
Pa n t a n i r b e ra s t í g e g n u m b u fe . i s
SAMFÉLAGSRÝNI
Brotið á bændum
Guðni Ágústsson.
Bænda
25. MARS