Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202120 Fram til ársins 2015 sáu Bænda ­ samtök Íslands um ýmis stjórn­ sýslu verkefni fyrir ríkið í sam­ ræmi við framkvæmd búvöru­ lagasamnings. Þetta fól m.a. í sér útdeilingu beingreiðslna og styrkja frá ríki til greina land­ búnaðarins. Þetta hlutverk var áður í hönd­ um Framleiðsluráðs landbúnaðar­ ins sem stofnað var á árinu 1947 og síðan færðust þau verkefni yfir til Bændasamtaka Íslands á árinu 1999 þegar þau samtök urðu til við sameiningu Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda. Innheimta ríkisins á búnaðargjöldum reyndist ólögleg Fyrirkomulag og innheimta bún­ aðargjalda til að standa straum af þessum fjárveitingum ríkisins reyndist síðan ólögmætt og talið að það stangaðist á við ákvæði stjórnar­ skrárinnar um félagafrelsi og skatt­ lagningu og bryti í bága við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu 2010 tók af allan vafa Segja má að allt frá því Mannrétt­ i ndadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu þann 27. apríl 2010 að sérstök lög um iðnaðar­ málagjald stæðust ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu, hefur framkvæmd búvörulagasamnings og innheimta búnaðargjalda verið í uppnámi. Iðnaðarmálagjaldið rann til Samtaka iðnaðarins og var varið til að vinna að eflingu iðnaðar og iðnþróunar í landinu. Það var ekki ósvipað hlutverk og búnaðargjaldinu var ætlað að standa straum að. Stjörnugrís vann mál um ólögmæti búnaðargjalds Stjörnugrís hf. fór í framhaldi af niðurstöðu Mannréttinda dómstólsins í mál við ríkið og krafðist endur­ greiðslu á innheimtu búnaðargjalds áranna 2010 til 2014. Fyrir lá að gjaldinu var ráðstafað til Svína­ ræktarfélags Íslands, Bjarg ráða­ sjóðs, Bændasamtaka Íslands og Búnaðarsambands Kjalarnesþings. Héraðsdómur féllst á að lögin um búnaðargjöld væru sett í þágu Bændasamtaka Íslands, en stæðust ekki eignarréttarákvæði gjaldþola né stjórnarskrárákvæði er varða gjöld til almannaþágu. Hæstiréttur Íslands úrskurðaði síðan í ársbyrjun 2017 að íslenska ríkinu bæri að greiða Stjörnugrís hf. tæpar 40 milljónir króna auk vaxtaog 1,5 milljónir króna í málskostnað. Í úrskurði Hæstaréttar segir að Stjörnugrís hf. reisi kröfu sína á því að álagning og innheimta gjaldsins samkvæmt lögum nr. 84/1997 um búnaðargjald væri ólögmæt hvað hann varðaði, auk þess sem gjaldtak­ an stangaðist á við ákvæði stjórnar­ skrárinnar um félagafrelsi og skatt­ lagningu og bryti í bága við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Þegar niðurstaða fékkst í máli Stjörnugríss var ljóst að ríkinu væri óheimilt að innheimta búnaðargjald og stokka þyrfti upp þau verkefni sem Bændasamtökin sinnti fyrir ríkið. Búnaðarstofa sett á laggirnar sem sjálfstæð eining innan BÍ Búnaðarstofa var stofnuð sem sérstök sjálfstæð eining innan BÍ árið 2015 og fluttust þangað stjórnsýsluverkefnin sem áður voru á hendi Bændasamtaka Íslands. Búnaðarstofa var áfram í Bændahöllinni, en undir hana heyrði margvísleg starfsemi sem byggð hafði verið upp hjá Bændasamtökum Íslands. Það varðar t.d. gagnasöfnun um búfjárhald og framleiðslu sem og talnaupplýsingar um slátrun og sölu afurða. Efasemdir um lögmæti starfsemi Búnaðarstofu í Bændahöllinni Til að taka af öll tvímæli um sjálfs tæði þessarar einingar gagn­ vart hagsmunasamtökum eins og Bændasamtökum Íslands kom fljótlega upp hugmynd um að Búnaðarstofa yrði sjálfstæð stofnun. Það þótti samt af ein­ hverjum ástæðum ekki nógu góð hugmynd og var Búnaðarstofa sett undir Matvælastofnun og starfsfólk hennar flutt í Hafnarfjörð í ársbyrjun 2016. Líka efasemdir um lögmæti Búnaðarstofu undir handarjaðri MAST Fyrir þann gjörning var bent á að hafi Búnaðarstofa verið talin of hags­ munalega tengd Bændasamtökunum með aðsetur í Bændahöllinni, þá væri hún það ekkert síður undir handarjaðri Matvælastofnunar sem væri eftirlitsaðili með allri matvælaframleiðslu og dýrahaldi í landinu. Með því fyrirkomulagi gæti augljóslega komið til hags­ munaárekstra. Stjórnsýsluverkefni í tengslum við framkvæmd búvörusamninga og hagtölusöfnun í landbúnaði voru flutt til Matvælastofnunar árið 2016. Þar fór Búnaðarstofa í sjálfstæða skrifstofu innan stofnunarinnar með lögum nr. 46/2015. Var þetta gert í tíð Sigurðar Inga Jóhannssonar, þáverandi landbúnaðarráðherra. Þar með var ábyrgðin og framkvæmdin á verkefnunum komin á sama stað. Verkefni Búnaðarstofu átti hins vegar litla samlegð með eftirlits­ verkefnum MAST. BÍ vildi sjálfstæða stofnun Samkvæmt upplýsingum á vef Alþingis gerðu umsagnaraðilar ekki efnislegar athugasemdir við frum­ varpið en BÍ og aðilar tengdir land­ búnaði mótmæltu flutningi þessara stjórnsýsluverkefna til MAST og lögðu til að verkefnin yrðu flutt í sjálfstæða stofnun undir atvinnu­ vega­ og nýsköpunarráðuneytinu. Í nefndaráliti meirihluta atvinnu­ veganefndar Alþingis sem birtur var í Bændablaðinu sagði m.a.: ,,Nefndinni bárust efasemdir um að fela ætti Matvælastofnun umrædd verkefni þar sem þau eru einkum í ætt við þjónustu, framkvæmd búvörusamninga, áætlunargerð og söfnun talnaupplýsinga en ekki eftirlit sem er meginhlutverk stofn­ unarinnar. Með öðrum orðum var bent á að umrædd verkefni féllu ekki að þeim verkefnum sem stofnunin sinnir nú þegar. Meirihlutinn tekur undir þessi sjónarmið og telur brýnt að verkefnin verði skýrt afmörkuð í sjálfstæðri einingu í skipulagi stofnunarinnar. Jafnframt bendir meirihlutinn á að umrædd verkefni má vinna óháð staðsetningu.“ Stjórnarfrumvarpið var samþykkt mótatkvæðalaust með minni háttar breytingum Ráðherra setur lög um flutning verkefna Búnaðarstofu til ráðuneytis Í framhaldinu kom sjávarútvegs­ og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, fram með lagafrumvarp í september 2019, þar sem gerðar voru breytingar á ýmsum lagaákvæðum um stjórnsýslu búvörumála. Var Matvælastofnun felld út úr lagatext­ anum um breytingu á búnaðarlögum. Það hlutverk MAST var með lög­ unum sett beint undir ráðherra. Sömuleiðis voru gerðar breytingar á lögum um Matvælastofnun sem fólu í sér að Búnaðarstofa yrði lögð niður. Breytingarnar öðluðust gildi 1. janúar 2020. Í greinargerð atvinnuveganefndar Alþingis vegna þessarar lagasetn­ ingar komu fram skýr tilmæli: ,,Atvinnuveganefnd Alþingis beinir því til ráðuneytisins í ljósi mikilvægi og umfangs þeirra verk- efna sem Búnaðarstofa sinnir í dag við framkvæmd búvörusamninga, hagtölusöfnun og þróun tölvukerfa að ráðuneytið afmarki með skýrum hætti verkefni Búnaðarstofu innan ráðuneytisins.“ Með þessu var í raun verið að ítreka afstöðu Bændasamtaka Íslands um Búnaðarstofu sem sett var fram við flutninginn á þessum verkefnum til MAST 2016. Efasemdir um lögmæti flutnings á starfsemi Búnaðarstofu til ráðuneytis Allt frá því Búnaðarstofa, eða starfsfólk þess og verkefni voru flutt í aðsetur sjávarútvegs­ og landbúnaðarráðherra í atvinnu­ vega­ og nýsköpunarráðuneytinu að Skúlagötu 4 í Reykjavík, hefur verið bent á að sá gjörningur gæti verið á skjön við lög. Þar væri ráðuneytið framkvæmdaraðili við að annast útdeilingu fjár og um leið hafa annast umsýslu, upp­ lýsingaöflun og eftirlit með sömu aðilum og fengu fjármunina. Það fyrirkomulag gæti falið í sér hags­ munaárekstra. Ráðuneytið gætti þar hagsmuna ríkisins og væri yfirvald yfir eftirlitsstofnunum sem sinntu eftirliti með bændum. Ráðuneytið væri því í raun ekki síður ólöglegur framkvæmdaaðli í þessu máli en Matvælastofnun og Bændasamtök Íslands þar á undan. Kæruréttur á öllum stjórnvaldsákvörðunum sagður tekinn af bændum Bent hefur verið á ýmsa ágalla núver­ andi fyrirkomulags. Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðar ráðherra, hefur m.a. bent á dóm Hæstaréttar í svonefndum Hólagarðsdómi árið 1992, en þar segir „…hafði sama ríkisstofnun á hendi rannsókn í söluskattsmáli sóknar aðila og uppkvaðningu úr skurðar á grundvelli þeirr- ar rann sóknar. Sóknaraðili fékk ekki komið fram endurskoðun á þeim efniságreiningi sem uppi er í málinu, hvorki með kæru til æðra stjórnvalds né í lögtaksmáli. Með þessu móti var mál hans leitt til lykta á einu stjórnsýslustigi. Þessi málsmeðferð var svo andstæð meginreglum stjórnsýsluréttar um rétt borgaranna til endurskoðunar á stjórnvaldsúrskurði fyrir æðra stjórnvaldi.“ Bent er á að helsta markmið með setningu stjórnsýslulaga hafi verið að tryggja sem best réttaröryggi manna í skiptum við hið opinbera. Því vill Guðni meina að með því að færa stjórnsýsluverkefni í tengslum við framkvæmd búvörusamninga undir ráðuneyti landbúnaðarmála þá sé verið að taka kæruréttinn af bændum á öllum stjórnvalds­ ákvörðunum. Þetta sé gert þrátt fyrir áðurnefnda meginreglu stjórnsýslu­ réttar um rétt einstaklinga til að fá ákvörðun endurskoðaða fyrir æðra stjórnvaldi. BÍ óskar eftir áliti umboðsmanns Alþingis Á fundi stjórnar Bændasamtaka Íslands sem haldinn var þriðju­ daginn 23. febrúar síðastliðinn var lagt fram minnisblað er varðar flutning á starfsemi Búnaðarstofu til atvinnuvega­ og nýsköpunarráðu­ neytis. Þar voru færð rök fyrir því að framkvæmd búvörusamninga, hag­ tölusöfnun í landbúnaði og eftirlit með markmiðum búvörusamninga ætti ekki að liggja hjá stofnun sem væri undir yfirstjórn annars samn­ ingsaðilans, heldur hjá sjálfstæðri stofnun er lúti sérstakri stjórn, þó hún heyri stjórnarfarslega undir landbúnaðarráðherra. Samþykkti stjórn BÍ í fram­ haldinu samhljóða að óska eftir áliti umboðsmanns Alþingis á stjórn sýslulegu fyrirkomulagi við fram kvæmd búvörusamninga innan atvinnu vega­ og nýsköpunarráðu­ neytisins. Ekki liggur fyrir hvort eða hve­ n ær embætti umboðsmanns muni fjalla um málið. FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Bændasamtökin óska eftir að umboðsmaður Alþingis skoði lögmæti flutnings Búnaðarstofu til ráðuneytis – Bent hefur verið á að í slíkum flutningi felist mögulegt brot á lögum um opinbera stjórnsýslu Starfsfólk Bændasamtaka Íslands og fyrstu starfsmenn Búnaðarstofu þegar hún var sett á laggirnar í janúar 2015. Talið frá vinstri: Guðrún S. Sigurjónsdóttir fulltrúi, Ómar S. Jónsson fjármálastjóri, Ásdís Kristinsdóttir fulltrúi og Jón Baldur Lorange forstöðumaður. Mynd / HKr. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 HAUGSUGU- DÆLUR 6,500 - 9,500 11,000 - 13,500 lítra HAUGSUGUHLUTIR VARAHLUTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.