Bændablaðið - 11.03.2021, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202120
Fram til ársins 2015 sáu Bænda
samtök Íslands um ýmis stjórn
sýslu verkefni fyrir ríkið í sam
ræmi við framkvæmd búvöru
lagasamnings. Þetta fól m.a. í
sér útdeilingu beingreiðslna og
styrkja frá ríki til greina land
búnaðarins.
Þetta hlutverk var áður í hönd
um Framleiðsluráðs landbúnaðar
ins sem stofnað var á árinu 1947
og síðan færðust þau verkefni yfir
til Bændasamtaka Íslands á árinu
1999 þegar þau samtök urðu til við
sameiningu Búnaðarfélags Íslands
og Stéttarsambands bænda.
Innheimta ríkisins á
búnaðargjöldum reyndist ólögleg
Fyrirkomulag og innheimta bún
aðargjalda til að standa straum
af þessum fjárveitingum ríkisins
reyndist síðan ólögmætt og talið að
það stangaðist á við ákvæði stjórnar
skrárinnar um félagafrelsi og skatt
lagningu og bryti í bága við ákvæði
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Úrskurður Mannréttindadómstóls
Evrópu 2010 tók af allan vafa
Segja má að allt frá því Mannrétt
i ndadómstóll Evrópu komst að
þeirri niðurstöðu þann 27. apríl
2010 að sérstök lög um iðnaðar
málagjald stæðust ekki ákvæði
Mannréttindasáttmála Evrópu, hefur
framkvæmd búvörulagasamnings
og innheimta búnaðargjalda verið í
uppnámi. Iðnaðarmálagjaldið rann
til Samtaka iðnaðarins og var varið
til að vinna að eflingu iðnaðar og
iðnþróunar í landinu. Það var ekki
ósvipað hlutverk og búnaðargjaldinu
var ætlað að standa straum að.
Stjörnugrís vann mál um
ólögmæti búnaðargjalds
Stjörnugrís hf. fór í framhaldi af
niðurstöðu Mannréttinda dómstólsins
í mál við ríkið og krafðist endur
greiðslu á innheimtu búnaðargjalds
áranna 2010 til 2014. Fyrir lá að
gjaldinu var ráðstafað til Svína
ræktarfélags Íslands, Bjarg ráða
sjóðs, Bændasamtaka Íslands og
Búnaðarsambands Kjalarnesþings.
Héraðsdómur féllst á að lögin
um búnaðargjöld væru sett í þágu
Bændasamtaka Íslands, en stæðust
ekki eignarréttarákvæði gjaldþola né
stjórnarskrárákvæði er varða gjöld til
almannaþágu.
Hæstiréttur Íslands úrskurðaði
síðan í ársbyrjun 2017 að íslenska
ríkinu bæri að greiða Stjörnugrís hf.
tæpar 40 milljónir króna auk vaxtaog
1,5 milljónir króna í málskostnað.
Í úrskurði Hæstaréttar segir að
Stjörnugrís hf. reisi kröfu sína á því
að álagning og innheimta gjaldsins
samkvæmt lögum nr. 84/1997 um
búnaðargjald væri ólögmæt hvað
hann varðaði, auk þess sem gjaldtak
an stangaðist á við ákvæði stjórnar
skrárinnar um félagafrelsi og skatt
lagningu og bryti í bága við ákvæði
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Þegar niðurstaða fékkst í máli
Stjörnugríss var ljóst að ríkinu væri
óheimilt að innheimta búnaðargjald
og stokka þyrfti upp þau verkefni
sem Bændasamtökin sinnti fyrir
ríkið.
Búnaðarstofa sett á laggirnar
sem sjálfstæð eining innan BÍ
Búnaðarstofa var stofnuð sem
sérstök sjálfstæð eining innan
BÍ árið 2015 og fluttust þangað
stjórnsýsluverkefnin sem áður
voru á hendi Bændasamtaka
Íslands. Búnaðarstofa var áfram í
Bændahöllinni, en undir hana heyrði
margvísleg starfsemi sem byggð
hafði verið upp hjá Bændasamtökum
Íslands. Það varðar t.d. gagnasöfnun
um búfjárhald og framleiðslu sem
og talnaupplýsingar um slátrun og
sölu afurða.
Efasemdir um lögmæti starfsemi
Búnaðarstofu í Bændahöllinni
Til að taka af öll tvímæli um
sjálfs tæði þessarar einingar gagn
vart hagsmunasamtökum eins
og Bændasamtökum Íslands
kom fljótlega upp hugmynd um
að Búnaðarstofa yrði sjálfstæð
stofnun. Það þótti samt af ein
hverjum ástæðum ekki nógu góð
hugmynd og var Búnaðarstofa sett
undir Matvælastofnun og starfsfólk
hennar flutt í Hafnarfjörð í ársbyrjun
2016.
Líka efasemdir um
lögmæti Búnaðarstofu undir
handarjaðri MAST
Fyrir þann gjörning var bent á að hafi
Búnaðarstofa verið talin of hags
munalega tengd Bændasamtökunum
með aðsetur í Bændahöllinni, þá
væri hún það ekkert síður undir
handarjaðri Matvælastofnunar
sem væri eftirlitsaðili með allri
matvælaframleiðslu og dýrahaldi
í landinu. Með því fyrirkomulagi
gæti augljóslega komið til hags
munaárekstra.
Stjórnsýsluverkefni í tengslum
við framkvæmd búvörusamninga
og hagtölusöfnun í landbúnaði voru
flutt til Matvælastofnunar árið 2016.
Þar fór Búnaðarstofa í sjálfstæða
skrifstofu innan stofnunarinnar með
lögum nr. 46/2015. Var þetta gert
í tíð Sigurðar Inga Jóhannssonar,
þáverandi landbúnaðarráðherra. Þar
með var ábyrgðin og framkvæmdin
á verkefnunum komin á sama stað.
Verkefni Búnaðarstofu átti hins
vegar litla samlegð með eftirlits
verkefnum MAST.
BÍ vildi sjálfstæða stofnun
Samkvæmt upplýsingum á vef
Alþingis gerðu umsagnaraðilar ekki
efnislegar athugasemdir við frum
varpið en BÍ og aðilar tengdir land
búnaði mótmæltu flutningi þessara
stjórnsýsluverkefna til MAST og
lögðu til að verkefnin yrðu flutt í
sjálfstæða stofnun undir atvinnu
vega og nýsköpunarráðuneytinu.
Í nefndaráliti meirihluta atvinnu
veganefndar Alþingis sem birtur var
í Bændablaðinu sagði m.a.:
,,Nefndinni bárust efasemdir um
að fela ætti Matvælastofnun umrædd
verkefni þar sem þau eru einkum
í ætt við þjónustu, framkvæmd
búvörusamninga, áætlunargerð og
söfnun talnaupplýsinga en ekki
eftirlit sem er meginhlutverk stofn
unarinnar. Með öðrum orðum var
bent á að umrædd verkefni féllu ekki
að þeim verkefnum sem stofnunin
sinnir nú þegar. Meirihlutinn tekur
undir þessi sjónarmið og telur brýnt
að verkefnin verði skýrt afmörkuð
í sjálfstæðri einingu í skipulagi
stofnunarinnar. Jafnframt bendir
meirihlutinn á að umrædd verkefni
má vinna óháð staðsetningu.“
Stjórnarfrumvarpið var samþykkt
mótatkvæðalaust með minni háttar
breytingum
Ráðherra setur lög um flutning
verkefna Búnaðarstofu
til ráðuneytis
Í framhaldinu kom sjávarútvegs og
landbúnaðarráðherra, Kristján Þór
Júlíusson, fram með lagafrumvarp í
september 2019, þar sem gerðar voru
breytingar á ýmsum lagaákvæðum
um stjórnsýslu búvörumála. Var
Matvælastofnun felld út úr lagatext
anum um breytingu á búnaðarlögum.
Það hlutverk MAST var með lög
unum sett beint undir ráðherra.
Sömuleiðis voru gerðar breytingar
á lögum um Matvælastofnun sem
fólu í sér að Búnaðarstofa yrði lögð
niður. Breytingarnar öðluðust gildi
1. janúar 2020.
Í greinargerð atvinnuveganefndar
Alþingis vegna þessarar lagasetn
ingar komu fram skýr tilmæli:
,,Atvinnuveganefnd Alþingis
beinir því til ráðuneytisins í ljósi
mikilvægi og umfangs þeirra verk-
efna sem Búnaðarstofa sinnir í dag
við framkvæmd búvörusamninga,
hagtölusöfnun og þróun tölvukerfa
að ráðuneytið afmarki með skýrum
hætti verkefni Búnaðarstofu innan
ráðuneytisins.“
Með þessu var í raun verið að
ítreka afstöðu Bændasamtaka
Íslands um Búnaðarstofu sem sett
var fram við flutninginn á þessum
verkefnum til MAST 2016.
Efasemdir um lögmæti
flutnings á starfsemi
Búnaðarstofu til ráðuneytis
Allt frá því Búnaðarstofa, eða
starfsfólk þess og verkefni voru
flutt í aðsetur sjávarútvegs og
landbúnaðarráðherra í atvinnu
vega og nýsköpunarráðuneytinu
að Skúlagötu 4 í Reykjavík, hefur
verið bent á að sá gjörningur gæti
verið á skjön við lög. Þar væri
ráðuneytið framkvæmdaraðili við
að annast útdeilingu fjár og um
leið hafa annast umsýslu, upp
lýsingaöflun og eftirlit með sömu
aðilum og fengu fjármunina. Það
fyrirkomulag gæti falið í sér hags
munaárekstra. Ráðuneytið gætti þar
hagsmuna ríkisins og væri yfirvald
yfir eftirlitsstofnunum sem sinntu
eftirliti með bændum. Ráðuneytið
væri því í raun ekki síður ólöglegur
framkvæmdaaðli í þessu máli en
Matvælastofnun og Bændasamtök
Íslands þar á undan.
Kæruréttur á öllum
stjórnvaldsákvörðunum sagður
tekinn af bændum
Bent hefur verið á ýmsa ágalla núver
andi fyrirkomulags. Guðni Ágústsson,
fyrrverandi landbúnaðar ráðherra,
hefur m.a. bent á dóm Hæstaréttar
í svonefndum Hólagarðsdómi árið
1992, en þar segir
„…hafði sama ríkisstofnun á
hendi rannsókn í söluskattsmáli
sóknar aðila og uppkvaðningu
úr skurðar á grundvelli þeirr-
ar rann sóknar. Sóknaraðili fékk
ekki komið fram endurskoðun á
þeim efniságreiningi sem uppi er
í málinu, hvorki með kæru til æðra
stjórnvalds né í lögtaksmáli. Með
þessu móti var mál hans leitt til
lykta á einu stjórnsýslustigi. Þessi
málsmeðferð var svo andstæð
meginreglum stjórnsýsluréttar um
rétt borgaranna til endurskoðunar
á stjórnvaldsúrskurði fyrir æðra
stjórnvaldi.“
Bent er á að helsta markmið með
setningu stjórnsýslulaga hafi verið
að tryggja sem best réttaröryggi
manna í skiptum við hið opinbera.
Því vill Guðni meina að með því að
færa stjórnsýsluverkefni í tengslum
við framkvæmd búvörusamninga
undir ráðuneyti landbúnaðarmála
þá sé verið að taka kæruréttinn
af bændum á öllum stjórnvalds
ákvörðunum. Þetta sé gert þrátt fyrir
áðurnefnda meginreglu stjórnsýslu
réttar um rétt einstaklinga til að fá
ákvörðun endurskoðaða fyrir æðra
stjórnvaldi.
BÍ óskar eftir áliti
umboðsmanns Alþingis
Á fundi stjórnar Bændasamtaka
Íslands sem haldinn var þriðju
daginn 23. febrúar síðastliðinn
var lagt fram minnisblað er varðar
flutning á starfsemi Búnaðarstofu til
atvinnuvega og nýsköpunarráðu
neytis. Þar voru færð rök fyrir því að
framkvæmd búvörusamninga, hag
tölusöfnun í landbúnaði og eftirlit
með markmiðum búvörusamninga
ætti ekki að liggja hjá stofnun sem
væri undir yfirstjórn annars samn
ingsaðilans, heldur hjá sjálfstæðri
stofnun er lúti sérstakri stjórn, þó
hún heyri stjórnarfarslega undir
landbúnaðarráðherra.
Samþykkti stjórn BÍ í fram
haldinu samhljóða að óska eftir
áliti umboðsmanns Alþingis á
stjórn sýslulegu fyrirkomulagi við
fram kvæmd búvörusamninga innan
atvinnu vega og nýsköpunarráðu
neytisins.
Ekki liggur fyrir hvort eða hve
n ær embætti umboðsmanns muni
fjalla um málið.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Bændasamtökin óska eftir að umboðsmaður Alþingis
skoði lögmæti flutnings Búnaðarstofu til ráðuneytis
– Bent hefur verið á að í slíkum flutningi felist mögulegt brot á lögum um opinbera stjórnsýslu
Starfsfólk Bændasamtaka Íslands og fyrstu starfsmenn Búnaðarstofu þegar hún var sett á laggirnar í janúar 2015. Talið frá vinstri: Guðrún S. Sigurjónsdóttir
fulltrúi, Ómar S. Jónsson fjármálastjóri, Ásdís Kristinsdóttir fulltrúi og Jón Baldur Lorange forstöðumaður. Mynd / HKr.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGSUGU-
DÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR