Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202154 Mjólkurbúið Biobú, sem fram- leiðir lífrænt vottaðar mjólkur- vörur, er nú með lífrænt vottað húðkrem í vöruþróun sem nýtir virku efni mysunnar og ætlað verður til útflutnings en einnig markaðssetningar innanlands. Sverrir Örn Gunnarsson, framleiðslustjóri hjá Biobú, hefur stýrt verkefninu og hann segir að það sé á lokastigi. „Búið er að prófa kremið í neytendakönnun og niðurstöður voru afgerandi jákvæðar. Því er tilhlökkunin enn meiri að koma vörunni á markað.“ Kúabóndinn og máttur mysunnar Sverrir segir að forsaga vöruþró- unarinnar sé orðin nokkuð löng. „Ætli megi ekki rekja hana alveg aftur til kynna minna af bónda einum sem hugsaði alla tíð vel um dýrin sín. Hann sagði mér frá mætti mysunnar. Þegar kálfarnir hjá honum fengu einhvers konar exem þá gaf hann þeim vel af mysu, úr varð að þeir fengu skjótan bata og enduðu með silkimjúkan feldinn. Ég hlustaði vel á bóndann því sjálfur er ég með exem, sem blossar upp þá og þegar, og hef prófað mörg kremin í gegnum ævina. Úr varð að ég talaði við sérfræðinga hjá Matís um hvort ekki væri hægt að vinna heilsubætandi efni úr mysunni sem fellur frá við gerð skyrs og grískrar jógúrtar. Fengum við frábærar undirtektir hjá Matís sem er með mjög færa sérfræðinga á sínum snærum, tæki og tól sem geta unnið faglega vinnu sem þessa.“ Snyrtivöruafurð með virk efni „Markmið verkefnisins var að þróa snyrtivöruafurð sem inniheldur virk efni úr ís- lenskri lífrænt vottaðri mysu. Megnið af mysu sem fellur til við mjólkurvinnslu er hent og því eru möguleikar á mikilli verðmætaaukningu út úr þessu verkefni. Hugmyndin þróaðist og hafist var handa með að finna virku efnin í mysunni, þau einangruð og á endanum blandað út í lífrænan kremgrunn sem tók einnig tíma að finna. Þetta kann að hljóma sem einfalt ferli, en það var svo sannarlega ekki raunin,“ segir Sverrir. Andoxunarvirkni Hann lýsir ferlinu svo nánar sem tók alls fimm ár. „Prófað var að aðskilja mismunandi þætti mysunnar með himnusíubúnaði á tilraunaskala sem er staðsettur hjá Matís. Einnig voru mismunandi ensím prófuð til að brjóta niður prótein í mysunni niður í smærri einingar sem kallast peptíð. Þau voru flokkuð eftir stærð með síubúnaðinum og frostþurrkuð. Virkni þessara mismunandi efnisþátta var prófuð hjá Matís þar sem til dæmis var kannað hvort þeir hefðu andoxunarvirkni eða hvort þeir hefðu virkni til að hemja vöxt bólumyndandi örvera. Þeir efnisþættir sem komu best út voru notaðir við þróun á kremi. Þar voru prófaðir mismunandi kremgrunnar, framleiðsluaðferðir, framkvæmdar geymsluþolsprófanir og umbúðir valdar. Kremið var að því loknu prófað í neytendakönnun þar sem þátttakendur fengu krem með eða án efnisþátta úr mysu,“ segir Sverrir um hið flókna til- raunaferli. Jafnast á við bestu húðkrem á markaði „Ég er mjög sáttur með teymið sem kom að rannsókninni hjá Matís, en markmið númer eitt, tvö og þrjú var að vanda til verka og fullgera gæðavöru sem er samkeppnisfær við bestu húðkrem sem eru á markaðnum. Hátt var stefnt enda einvala lið vísindamanna sem Biobú fékk aðgang að. Þessi vinna hefði seint farið af stað nema með aðkomu nýsköpunarstyrkja, vísindavinna sem þessi er ekki á færi allra fyrirtækja. Við fengum fyrst styrk frá MiMM (Mjólk í mörgum myndum) og síðar frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins og að lokum styrk frá Matvælasjóði í byrjun þessa árs. Að því sögðu stefnum við að því að klára vöruþróun á þessu ári og koma vörunni á markað ef allt gengur upp,“ segir Sverrir að lokum. /smh Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is TS 19 Teygjubolur TS 13 Frábærir bolir frá Texstar. Halda stærð og lit mjög vel í þvotti. 100% burstaður bómull Verð: 2.096 kr. 95% bómull, 5% spandex Verð: 2.592 kr. Varmadæluskjól Vönduð - evrópsk framleiðsla Tilboð kr. 27.990 Verð áður kr. 39.986 á meðan birgðir endast Varmadælubúðin Allar frekari upplýsingar: www.kgg.iswww.kgg.is - 55-20000 - kgg@kgg.is -heildverslun síðan 1941 Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá VÉLBOÐA mykjudreifarar! VÉLBOÐI S: 565-1800 www.velbodi.is Í fjórum útfærslum og mörgum stærðum TIL SÖLU SCANIA R500 CAT 444F NÝTT TÆKI: EP20AN SCANIA R420 CAT 305C Árgerð: 2010 Notaður: 8.335 vst Ný vökvadæla, hraðtengi, 1 skófla Verð: 8.500.000 + vsk Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í síma 5905100 eða sala@klettur.is Árgerð: 2007 Engcon rototilt og 3 skólfur, vinnuþyngd uþb. 5300 kg, gúmmíbelti Verð: 4.950.000 + vsk Árgerð: 2006 6x4, glussakerfi fyrir sideloader, keyrður 515.000 km, 500 hestöfl Verð: 2.700.000 kr. + vsk Árgerð: 2014 Notaður: 4.800 vst engcon rototilt, 2 skóflur Verð: 11.200.000 + vsk Lyftigeta 2000kg, lyftimiðja 500mm. Þrefalt mastur. Lyftihæð 4800 mm. Hliðarfærsla á göfflum, strikfrí dekk öryggisljós, bakkflauta, blikkljós. Verð: 4.350.000 + vsk Árgerð: 2004 Notaður: Keyrður 272.000 km 420 hestöfl Verð: 1.900.000 kr. + vsk KOMATSU PC210 LÍF&STARF Biobú með heilsubætandi húðkrem í þróun: Á að jafnast á við bestu húðkremin á markaði – Fimm ára þróunarferli að baki og stefnt á markaðssetningu á árinu Sverrir Örn Gunnarsson, framleiðslustjóri hjá Biobú. Himnusíubúnaðurinn sem notaður var til að aðskilja mismunandi þætti mysunnar. Mysukrem í krukkum, þar sem afurðin er tilbúin en umbúðirnar eru bráða- birgða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.