Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 1
Flateyjarjörðinni á Mýrum
í Austur- Skaftafellssýslu
verður skipt upp í tvær jarðir
10
7. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 15. apríl ▯ Blað nr. 584 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Mælaborði landbúnaðarins hleypt af stokkunum:
Markar tímamót varðandi samantekt
og birtingu upplýsinga úr landbúnaði
– Ætlað að auka gagnsæi en um leið yfirsýn yfir framleiðslu, sölu og birgðir landbúnaðarafurða í landinu
Mælaborði landbúnaðarins var
hleypt af stokkunum af Kristjáni
Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra fimmtu-
daginn 8. apríl síðastliðinn. Þarna
er búið að setja saman á einn
stað gagnauppsprettu úr flestum
kimum íslensks landbúnaðar sem
ætlað er að auka gagnsæi til mik-
illa muna. Enn vantar þó í kerf-
ið gögn um mjólkurframleiðslu
landsmanna.
Mælaborð landbúnaðarins er liður
í aðgerðaráætlun sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra til að mæta
áhrifum COVID-19 heimsfaraldurs á
íslenskan landbúnað. Aðgerðunum er
ætlað að styrkja stoðir íslensks land-
búnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu
áhrifa sem COVID-19 hefur haft á
greinina. Tilgangur aðgerðanna er að
skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslensk-
an landbúnað og auðvelda honum að
nýta tækifæri framtíðarinnar.
„Mælaborð landbúnaðarins
er nauðsynlegt verkfæri til að
tryggja yfirsýn við framkvæmd
landbúnaðarstefnunnar á hverjum
tíma. Opnun mælaborðsins í dag
markar því tímamót því með því
eru stjórnvöld að eiga frumkvæði
að því að birta opinberlega þessar
mikilvægu upplýsingar þannig að
þær séu aðgengilegar öllum. Auka
þannig gagnsæi en um leið yfirsýn
yfir framleiðslu, sölu og birgðir í
landinu til hagsbóta fyrir alla þá
sem koma að íslenskum landbúnaði.
Um leið stuðla að því að umræða
um landbúnað byggi á rauntölum.
Næsta skref verður að þróa og
styrkja mælaborðið enn frekar,“
sagði Kristján Þór Júlíusson.
Sigurður Eyþórsson, starfsmað-
ur ráðuneytisins og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Bændasamtaka
Íslands, kynnti virkni kerfisins sem
finna má á slóðinni www.mælaborð-
landbúnaðarins.is. Tók hann fram
að kerfið væri eflaust ekki orðið
gallalaust og yrði í stöðugri þróun.
Kallaði hann því eftir að ef notendur
sæju hnökra í kerfinu og eitthvað
sem betur mætti fara að þeir létu
ráðuneytið vita.
Rafrænn vettvangur
um landbúnað
Mælaborð landbúnaðarins er raf-
rænn vettvangur þar sem upp-
lýsingar um landbúnað og mat-
vælaframleiðslu á Íslandi eru gerðar
aðgengilegar á einum stað og birtar
á gagnvirkan og skilmerkilegan
hátt.
Í fyrsta áfanga er lögð áhersla
á yfirsýn yfir framleiðslu, sölu
og birgðir landbúnaðarafurða hér
á landi, auk stuðnings við bænd-
ur samkvæmt búvörusamningum.
Mælaborðið er þróunarverkefni og
má því búast við stöðugum endur-
bótum til að það nýtist sem verk-
færi til að fylgjast með þróun þeirra
markmiða sem sett eru í búvöru-
samningum og landbúnaðarstefnu
auk þess að stuðla að fæðuöryggi.
Áreiðanlegar upplýsingar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið leitast við að hafa allar
upplýsingar á Mælaborði land-
búnaðarins áreiðanlegar og réttar.
Ráðuneytið ábyrgist ekki áreiðan-
leika birtra gagna né ábyrgð á tjóni
sem rekja má til notkunar upplýs-
inganna.
Öllum er heimil afnot upplýs-
inga úr Mælaborði landbúnaðarins.
Í ljósi þess að uppruni gagna er
mismunandi gilda ólíkir skilmál-
ar um dreifingu og nýtingu gagna
úr Mælaborði landbúnaðarins. Öll
gögn í Mælaborði landbúnaðar-
ins eru í eigu stjórnvalda og ekki
framseljanleg. Fer ráðuneytið því
fram á að þeir sem nýti sér þessi
gögn geti heimilda. /HKr.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra.
Aðalfundur Landssambands kúabænda:
Samþykkt að sameinast BÍ
Aðalfundur Landssambands
kúabænda (LK) var haldinn 9.
apríl með fjarfundarfyrirkomu-
lagi. Samþykkti fundurinn að
sameinast Bændasamtökum
Íslands. Var málið samþykkt með
27 atkvæð um gegn einu mótat-
kvæði. Bún aðar þing 2021 hafði
áður sam þykkt samhljóða nýtt
félags kerfi landbúnaðarins með
sam einingu búgreinafélaganna við
Bændasamtök Íslands.
Herdís Magna Gunnarsdóttir var
endurkjörin formaður LK, en ekk-
ert mótframboð barst fundinum. Í
stjórn LK voru kjörin, auk Herdísar,
þau Rafn Bergsson, Hólmahjáleigu,
Bessi Freyr Vésteinsson, Hofsstaða-
seli, Sigurbjörg Ottesen, Hjarðar felli
og Vaka Sigurðardóttir, Dagverðar-
eyri.
Starfsemin færist undir
BÍ um mitt árið
Í tilkynningu á vef LK kemur fram
að starfsemi LK muni færast undir
Bændasamtök Íslands um mitt
þetta ár. „Miklar og málefnalegar
umræður voru á fundinum um ýmis
útfærslu atriði er varða umgjörð
hagsmuna gæslu greinarinnar og
tengingu við grasrótina. Málið var
samþykkt með 27 atkvæðum gegn
einu mótatkvæði. Einn sat hjá við
afgreiðslu málsins.
Landssambandi kúabænda verður
ekki slitið en starfsemi samtakanna
færist undir Bændasamtök Íslands.
Sjóðir og eignir LK verða áfram á
hendi samtakanna og stjórn LK, sem
jafnframt verður stjórn búgreina-
deildarinnar, mun hafa umsjón með
þeim.
Er markmið sameiningar sam-
takanna við Bændasamtök Íslands
að ná fram aukinni skilvirkni og efl-
ingu hagsmunagæslu fyrir íslenskan
landbúnað, bæði einstakar búgrein-
ar og í heild. Nýjar samþykktir
Bændasamtaka Íslands og þingsköp
Búnaðarþings og Búgreinaþings
verða lagðar fyrir til samþykktar á
Aukabúnaðarþingi 10. júní nk. og
gert er ráð fyrir að sameiningin muni
verða 1. júlí 2021.“ /smh
Herdís Magna Gunnarsdóttir, var
endurkjörin formaður LK.
Í nýrri skýrslu Orkustofnunar um orkukostnað heimilanna kemur fram að húshitunarkostnaður víða á landsbyggðinni
er þrefalt hærri en þar sem verðið er lægst á höfuðborgarsvæðinu. Þá er lægsta mögulega verð á raforku í dreifbýli
53% hærra en lægsta mögulega verð í þéttbýli. – Sjá nánar á bls. 2 Mynd / HKr.
2 24–25
Þróar KindaKol úr sauðataði
til notkunar í landgræðslu,
landbúnaði og stóriðju
Samkeppniseftirlitið
heimilar
samruna Norðlenska,
Kjarnafæðis
og SAH Afurða