Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 20212
FRÉTTIR
Mikill munur er á húshitunar
kostnaði milli svæða hér á landi,
mun meiri en þegar raforkuverð
er skoðað. Kostnaður við húshitun
á þeim svæðum þar sem verð er
lægst er um þriðjungur (33%) þess
verðs sem íbúar á svæðum þar sem
verð er hæst þurfa að greiða. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu um
orkukostnað heimilanna.
Byggðastofnun hefur líkt og
undanfarin ár fengið Orkustofnun til
að reikna út kostnað á ársgrundvelli
við raforkuhitun og húshitun á
nokkrum þéttbýlisstöðum sem og
í dreifbýli. Viðmiðunareignin er
einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti
og 350 m3. Almenn raforkunotkun
er sú raforka sem er notuð í annað
en að hita upp húsnæði, s.s. ljós og
heimilistæki, en miðað er við 4.500
kWst í almennri rafmagnsnotkun
og 28.400 kWst við húshitun án
varmadælu og 14.200 kWst með
varmadælu. Miðað er við gjaldskrá
frá 1. september 2020.
Auk staðanna sem miðað var við
síðustu ár hafa 22 nýir staðir bæst
við og ná tölur fyrir þá alla aftur til
2014. Samhliða skýrslunni kemur
jafnframt út mælaborð þar sem hægt
er að skoða orkukostnað í þéttbýli á
korti og súluritum.
Munur á raforkuverði í
þéttbýli og dreifbýli 53%
Hvað raforku varðar er lægsta
mögulega verð fyrir viðmiðunar
eignina, með flutnings og
dreif ingarkostnaði hjá Veitum:
Í Mosfellsbæ, í Reykjavík,
Kópavogi, austurhluta Garðabæjar,
á Seltjarnarnesi og á Akranesi, um 79
þúsund krónur. Hæsta gjald í þéttbýli
er um 92 þúsund krónur hjá Orkubúi
Vestfjarða en raforkuverð er áberandi
hærra í dreifbýli, eða um 121 þúsund
krónur. Lægsta mögulega verð í
dreifbýli er 53% hærra en lægsta
mögulega verð í þéttbýli.
Mikill munur á
húshitunarkostnaði
Þegar kemur að húshitunarkostnaði
viðmiðunareignar er munurinn
á milli svæða mun meiri en á
raforkuverði.
Lægsta mögulega verð er hæst
191 þúsund krónur á stöðum þar sem
þarf að notast við beina rafhitun,
meðal annars á Grundarfirði,
á Hólmavík, í Neskaupstað, á
Reyðarfirði, í Vík og á Vopnafirði
auk dreifbýlis á svæðum RARIK
og Orkubús Vestfjarða. Með
varmadælu er þó áætlað að hann
geti lækkað í um 96 þúsund krónur
fyrir viðmiðunareign, eða um 50%.
Lægsti húshitunarkostnaðurinn
er á Flúðum og Seltjarnarnesi,
um 66 þúsund krónur, og í
Brautarholti á Skeiðum, um 53
þúsund krónur. Á þessum stöðum
er húshitunarkostnaður því um
þriðjungur af kostnaðinum þar sem
hann er hæstur.
Heildarkostnaður frá 145
þúsund upp í 284 þúsund
Ef horft er til lægsta mögulega
heildarorkukostnaðar fyrir
viðmiðunareignina þá er hann,
líkt og undanfarin ár, hæstur í
dreifbýli þar sem ekki er hitaveita
312 þúsund krónur.
Heildarkostnaður í þéttbýli
er hæstur 284 þúsund krónur
á Hólmavík og öðrum
þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum
með beina rafhitun og þarnæst 279
þúsund krónur á þéttbýlisstöðum
annars staðar á landinu þar sem
er rafhitun, þ.m.t. í Grundarfirði,
í Neskaupstað, á Reyðarfirði og á
Vopnafirði.
Lægsti heildarorkukostnaður
landsins er á Seltjarnarnesi 145
þúsund krónur en þar næst á Flúðum
og í Mosfellsbæ, 155 þúsund og 160
þúsund krónur. /MÞÞ
Skýrsla Orkustofnunar um orkukostnað heimilanna:
Mikill munur á húshitunarkostnaði
milli þéttbýlis og dreifbýlis
– þeir sem njóta lægsta verðs greiða einungis um einn þriðja af verði þeirra sem mest þurfa að borga
Mikill munur er á milli þéttbýlis og dreifbýlis þegar kemur að kostnaði við
húshitun hér á landi.
Flateyjarjörðinni á Mýrum í Austur-Skafta-
fellssýslu verður skipt upp í tvær jarðir
– Selbakki ehf. stofnar sérstakt dótturfélag, Flateyjarbúið ehf., utan um rekstur kúabúsins
Stjórn Selbakka ehf., sem á og
rekur Flateyjarbúið á Mýrum í
AusturSkaftafellssýslu, hefur
ákveðið að skipta rúmlega 2.000
hektara landi Flateyjarjarðarinnar
í tvær jarðir.
Garðar Garðarsson, lögmaður
hjá Landslögum, segir að við það
verði annars vegar til um það bil 600
hektara stór jörð á ræktuðu landi og
á þeim parti standi þau mannvirki
sem eru á jörðinni. Sá jarðarhluti
mun áfram bera nafn Flateyjar og þar
verður áfram stundaður hefðbundinn
búskapur.
Skinneyjar-Þinganes
keypti Flateyjarbúið 2013
Flateyjarbúið komst í eigu útgerðar
félagsins SkinneyjarÞinga nes hf.
árið 2013 og hefur síðan verið í eigu
dótturfélags þess, Selbakka ehf. Þar
var byggt upp nýtt og mjög nýtísku
legt um 4.700 fermetra fjós og er það
nú eitt stærsta kúabú landsins með
um 200 mjólkandi kýr.
Staðan var neikvæð og
hlutafé stóraukið árið 2020
Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins
í júlí 2020 hefur búið verið rekið
með tapi undanfarin ár og nam það
samanlagt 411 milljónum á árunum
2017 og 2018. Þá var eigið fé orðið
neikvætt um 386,9 milljónir í árslok
2019. Félagið var að sögn blaðsins í
verulegri skuld við móðurfélag sitt
SkinneyÞinganes, eða sem nam
tæpum 1,3 milljörðum króna í árslok
2019. Á síðasta ári var gripið til þess
ráðs að auka hlutafé um 800 milljónir
króna, eða úr 170 milljónum í 970
milljónir.
Nú hafa eigendur Selbakka stofnað
dótturfélag, Flateyjarbúið ehf., um
þennan rekstur. Að stærstum hluta er
Flateyjarbúið áfram í eigu Selbakka
og annars félags sem leggur því til
sérfræðikunnáttu, en Fóðurblandan,
sem er í eigu KS og dótturfélaga þess,
á þar einnig óverulegan hlut.
Hentugt að gera kúabúið að
sérstakri efnahagslegri einingu
Hinn partur jarðarinnar er að sögn
Garðars um 1.400 hektarar að
stærð og hefur enn ekki endanlega
verið fest niður hvert heiti þeirrar
jarðar verður þó vissulega hafi
komið fram hugmyndir. „Það er
enn verið að vinna að undirbúningi
landsskiptanna,“ segir Garðar.
Áform um uppgræðslu
Selbakki ehf., sem á einnig jarðirnar
Einholt og Haukafell, er með frekari
áform um uppgræðslu á þessum
þremur jörðum. Meðal annars af
þeim sökum þótti það hentugt að
gera rekstur kúabúsins að sérstakri
efnahagslegri einingu.
„Það er von okkar sem að þessum
rekstri koma að Flatey verði áfram
höfuðból á Mýrum og eitt af
flaggskipum íslensks landbúnaðar,“
segir Garðar. /MÞÞ/HKr.
Flateyjarbúið í Austur-Skaftafellssýslu. Mynd / HKr.
Um 69% fækkun
gistinátta í mars
Borið saman við 174.500 gistinæt
ur í mars 2020 má ætla að orðið
hafi um það bil 69% samdráttur
í fjölda gistinátta í mars á milli
ára. Þar af má ætla að gistinóttum
útlendinga hafi fækkað um 92%
en gistinóttum Íslendinga hafi á
móti fjölgað um 107% og þar með
rúmlega tvöfaldast.
Miðað við bráðabirgðatölur
Hagstofu Íslands sem byggja á fyrstu
skilum fyrir marsmánuð, má ætla
að gistinætur á hótelum í mars hafi
verið um 54.400 (95% öryggismörk
48.500–60.300), þar af hafi íslenskar
gistinætur verið um 41.800 (95%
öryggismörk 36.50047.100) og
gistinætur útlendinga um 12.600
(95% öryggismörk 10.20015.100).
Samkvæmt sömu áætlun var
rúmanýting í mars 2021 um 11,4%
(95% öryggismörk: 10,1%12,7%)
samanborið við 25,1% í sama
mánuði í fyrra.
Um miðjan mars í fyrra var fyrsta
samkomubann til að hefta útbreiðslu
kórónuveirunnar sett á og ferða
mannastraumur til landsins dróst
verulega saman.
Bráðabirgðatölur fyrir febrúar
2021 gerðu ráð fyrir að gistinætur
hefðu verið um 46.800 (95%
öryggismörk 42.500–51.100). Þegar
búið var að vinna úr öllum tölum
fyrir febrúar reyndist endanlegur
fjöldi hótelgistinátta hafa verið
41.900 sem var heldur lægra en 95%
öryggismörk sögðu til um. /HKr.
Vöruskipti óhagstæð
um 21,4 milljarða
Fluttar voru út vörur fyrir 61,5
milljarða króna í mars 2021 og inn
fyrir 83 milljarða króna cif (76,8
milljarða króna fob) samkvæmt
bráðabirgðatölum Hagstofu
Íslands. Vöruviðskiptin í mars,
reiknuð á fob/cifverðmæti, voru
því óhagstæð um tæpa 21,4 millj
arða króna.
Til samanburðar voru vöruvið
skiptin reiknuð á fob/cifverðmæti
óhagstæð um 19,4 milljarða króna
í mars 2020 á gengi hvors árs fyrir
sig. Vöruviðskiptajöfnuðurinn í
mars 2021 var því 2 milljörðum
óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári.
Vöruviðskiptajöfnuður síðustu
tólf mánaða var óhagstæður um
151,5 milljarða króna sem er 43
milljörðum hagstæðari jöfnuður en
á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Útflutningsverðmæti
landbúnaðar afurða
jókst um 103,4%
Verðmæti vöruútflutnings í mars
2021 jókst um 5 milljarða króna,
eða um 8,8%, frá mars 2020, úr 56,5
milljörðum króna í 61,5 milljarða.
Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst
um 579 milljónir króna, eða 2,2%
samanborið við mars 2020, útflutn
ingsverðmæti sjávarafurða jókst um
1,1 milljarð (4,2%) en útflutnings
verðmæti landbúnaðarafurða jókst
hins vegar um 103,4%, eða um 3,4
milljarða króna, úr 3,2 milljörðum
í mars 2020 í 6,6 milljarða í mars
2021, og skýrist það nær eingöngu af
mikilli aukningu í útflutningsverð
mæti fiskeldis sem jókst um 100,3%,
úr 2,7 milljörðum í mars 2020 í 5,5
milljarða í mars 2021.
Verðmæti vöruinnflutnings
dróst saman um 3,2%
Verðmæti vöruinnflutnings nam 83
milljörðum króna í mars 2021 sam
anborið við 76 milljarða í mars 2020.
Verðmæti innfluttra mat og drykkj
arvara jókst um 18,8% og annarra
neysluvara um 41,2% samanborið
við mars 2020. Einnig jókst verð
mæti hrá og rekstrarvara um 14,3%
á meðan verðmæti annarra liða dróst
saman. /HKr.