Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 20218
FRÉTTIR
Heildsölu- og lágmarksverð mjólkur
hækkar til framleiðenda
Lágmarksverð mjólkur til
bænda og heildsöluverð mjólk-
ur og mjólkurafurða hækkar
samkvæmt ákvörðun verð-
lagsnefndar búvöru rétt fyrir
páska.
Helstu breytingarnar eru
að lágmarksverð fyrsta flokks
mjólkur til bænda hækkar um
3,77 prósent, úr 97,84 krónum á
lítrann í 101,53 krónur á lítrann.
Heildsöluverð mjólkur og
mjólkurvara sem nefndin verð-
leggur hækkar um 3,47 prósent,
nema smjör sem hækkar um 8,47
prósent og heildsöluverð á mjólk-
urdufti verður óbreytt.
Aukinn kostnaður við
framleiðslu og vinnslu
Í tilkynningur úr atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu kemur
fram að verðhækkunin sé komin
til vegna kostnaðarhækkana við
framleiðslu og vinnslu mjólkur,
en síðasta verðbreyting fór fram
1. júní 2020. „Frá síðustu verð-
breytingu til marsmánaðar 2021
hafa gjaldaliðir í verðlagsgrund-
velli kúabús hækkað um 3,77%.
Fyrir sama tímabil er reiknuð
hækkun vinnslu- og dreifingar-
kostnaðar afurðastöðva 3,58%.
Ákvörðun verðlagsnefndar um
að halda heildsöluverði á undan-
rennu- og nýmjólkurdufti óbreyttu
og að hækka smjör sérstaklega
um 5%, er liður í því að ýta undir
betra jafnvægi milli fituríkra og
próteinríkra mjólkurvara á mark-
aði og vegna þess að heildsöluverð
á smjöri hefur verið undir fram-
leiðslukostnaði um árabil,“ segir
í tilkynningunni. /smh
Lágmarksverð fyrsta flokks mjólkur til bænda hækkar um 3,77 prósent.
Mynd / smh
Valkyrjurnar sem skipa stjórn Nautgriparæktarfélags Eyfellinga. Frá vinstri, Sigríður Björk Ólafsdóttir á bænum Fiti,
Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, formaður stjórnar á bænum Stóru-Mörk og Edda G. Ævarsdóttir, sem býr á Nýjabæ.
Mynd / Aðsend
Konur ráða ríkjum í Nautgripa-
ræktarfélagi Eyfellinga
Sá sögulegi viðburður átti sér
stað á dögunum á aðalfundi
Nautgriparæktarfélags Eyfellinga
undir Eyjafjöllum að stjórn
félagsins eftir fundinn er eingöngu
skipuð konum þar sem Aðalbjörg
Rún Ásgeirsdóttir á Stóra-Mörk
er formaður.
„Já, þetta er skemmtilegt og við erum
stoltar konur, sem skipum stjórnina.
Félagið er opið öllum þeim sem eiga
kýr eða kú á fóðrun undir Vestur- og
Austur-Eyjafjöllum. Í dag eru 16 bú
aðilar að félagsskapnum. Starfsemi
félagsins er ekki stór, en reynt er
að fara reglulega í fræðsluferðir og
kynna sér nýjungar og hitta aðra
bændur utan starfssvæðis félagsins,“
segir Aðalbjörg Rún.
Undanfarin ár hefur aðalfundur
félagsins verið haldinn í einu af
fjósunum á félagssvæðinu, sem hefur
mælst vel fyrir. Fundirnir verða þá vel
sóttir og vinsælt hjá félagsmönnum
að sækja nágranna sína heim á
þennan hátt. Svo skemmtilega vildi
til að á síðasta aðalfundi, sem var
haldin á búinu Nýjabæ, var þriðja
konan kjörin í stjórn félagsins, eða
Edda, sem er bóndi á bænum. /MHH
Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar:
Bætur vegna niðurskurðar verði endurskoðaðar
Landbúnaðarnefnd Sveitar-
félagsins Skagafjarðar lýsir yfir
vonbrigðum sínum yfir því hve
langan tíma það hefur tekið
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið að ljúka samningagerð við
bændur, sem þurftu að skera
niður sitt fé vegna riðusmits.
Sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra fyrirskipaði niðurskurð
fjár í Skagafirði eftir að riða kom
þar upp í fyrrahaust. Það er fyrst
nú, segir í bókun frá síðasta fundi
nefndarinnar, sem verið er að ganga
frá samningum við bændur.
Bótagreiðslur taki
á tekjuskerðingu
Landbúnaðarnefnd leggur áherslu
á að verkferlar við samningagerð
þurfi að vera skýrir og eðlilegast
að samningar liggi fyrir áður en
niðurskurður fer fram. Jafnframt er
mikilvægt að núverandi reglugerð
um útrýmingu á riðuveiki og bætur
vegna niðurskurðar verði endur-
skoðuð í heild sinni sem fyrst. Við þá
endurskoðun er mikilvægt að bóta-
greiðslur taki á þeirri tekjuskerðingu
sem bændur verða fyrir, kostnaði
þeirra við hreinsun og vegna kaupa á
nýjum fjárstofni. Einnig verði bætur
greiddar vegna gripa sem felldir eru
vegna sýnatöku á öðrum búum.
/MÞÞ
Flóahreppur:
Sumarhúsaeigendur vilja flytja
lögheimili sín í sumarhús
Erindi frá nokkrum eigendum
sumarhúsa í Mörk og Merkur-
hrauni í Flóahreppi hefur verið
sent á sveitarstjórn Flóahrepps
þar sem kemur fram að þeir hafi
áhuga á að flytja lögheimili sín
í hús sín á svæðinu og hafa þar
fasta búsetu.
Skoða þurfi hvort mögulegt sé að
breyta forsendum aðalskipulags með
það að leiðarljósi að opna á þann
möguleika.
Sveitarstjórn hefur lýst vilja sínum
til þess að taka málið til skoðunar en
bendir á að það þarf að liggja fyrir
skýr vilji eigenda allra þeirra húsa
á þeim tiltekna skipulagsfleka sem
kæmi til greina að breyta í íbúðar-
eða landbúnaðarsvæði.
Oddvita og sveitarstjóra hefur
verið falið að vera í sambandi við
tengiliði hópsins vegna málsins.
/MHH
Eydís Indriðadóttir, sveitarstjóri Flóa-
hrepps, sem mun vera í sambandi við
sumarhúsaeigendur vegna erindis
þeirra, ásamt Árna Eiríkssyni, oddvita
sveitarfélagsins. Mynd / MHH
Hross vantar til slátrunar
Sláturfélag Suðurlands auglýsir
nú grimmt eftir hrossum til slátr-
unar vegna vöntunar á hrossa-
kjöti.
„Já, það er þannig að það er lítið
af hrossum sem bíða slátrunar þessa
dagana. Við erum að flytja út ferskt
hrossakjöt vikulega og þurfum að
eiga til að standa við þá samninga.
Ég hef fulla trú á að við fáum
nægjanlegt magn til slátrunar eftir
okkar auglýsingar,“ segir Benedikt
Benediktsson, framleiðslustjóri hjá
SS á Hvolsvelli. /MHH
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÍUGRINDUR
1,23m og 1,84m
Skútustaðahreppur og Þingeyjarsveit:
Greiða atkvæði um sam-
einingu í sumar
Atkvæðagreiðsla um sameiningu
tveggja sveitarfélaga, Skútustaða-
hrepps og Þingeyjar sveitar, verður
5. júní í sumar. Samstarfsnefnd um
sameiningu sveitarfélaganna var
skipuð í júní árið 2019 og hefur
síðan þá komið saman á 18 bók-
uðum fundum. Nefndin skipaði
fimm starfshópa sem fjölluðu um
málaflokka sveitarfélaganna og
lögðu fram efni og upplýsingar í
greiningu og tillögugerð. Nefndin
skilaði áliti sínu til sveitarstjórna
þann 9. mars síðastliðinn.
Atkvæðagreiðsla um sameiningu
var samþykkt á sveitarstjórnarfund-
um nýverið þar sem bæði sveitarfé-
lög skoruðu jafnframt á Alþingi og
ríkisstjórn að bæta samgöngur innan
svæðisins.
Slitlag á héraðs- og tengivegi
Vilja sveitarstjórnir að sérstök áhersla
verði lögð á bundið slitlag á héraðs-
og tengivegum. Að flýta breikkun
einbreiðra brúa yfir Skjálfandafljót og
Jökulsá á Fjöllum á þjóðvegi 1 og á
tengingum milli byggða, til dæmis um
Engidalsveg. Þá leggja sveitarstjórnir
áherslu á að öruggar samgöngur
verði tryggðar innan svæðisins og
við nærliggjandi þjónustukjarna, svo
sem um Ljósavatnsskarð, og að það
verði hugað að endurskipulagningu
almenningssamgangna þannig að þær
þjóni hagsmunum íbúa svæðisins.
Skútustaðahreppur og Þingeyjar-
sveit hafa átt í miklu samstarfi sín á
milli síðustu ár. Sveitarfélögin eiga
formlegt samstarf um skipulags-
og byggingarmál og brunavarnir
ásamt ýmsum samstarfsverkefnum.
Í Skútustaðahreppi búa um 500 íbúar
og í Þingeyjarsveit tæplega 900 íbúar.
/MÞÞ