Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202110
Samkeppniseftirlitið hefur
heim ilað samruna þriggja
norðlenskra kjötafurðastöðv-
ar, Norðlenska, Kjarnafæðis
og SAH Afurða. Samruninn er
heimilaður með skilyrðum sem
Samkeppnis eftirlit hefur sett
fyrirtækjunum að uppfylla og
eru eigendur þeirra sáttir við
þau skilyrði.
Samkeppniseftirlitið hafði af
því áhyggjur að samruni væri
skaðlegur fyrir samkeppni og því
var brugðist við og skilyrðin sett
en þau gera fyrirtækjunum kleift
að framkvæma samrunann og ná
markmiðum hans, en sátt er á milli
annars vegar fyrirtækjanna þriggja
og hins vegar Samkeppniseftirlit
um aðgerðir sem gripið verður til
svo samkeppni haldist á markaði.
Aðgerðir sem um ræðir snúast
um að efla og tryggja samnings-
stöðu bænda, einnig um verð-
lagningu einstakra þjónustuþátta,
sem og að rjúfa eignatengsla við
minni kjötafurðastöðvar með sölu
á eignarhluta bænda í þeim. Þá
eru skilyrði sem lúta að því að
koma í veg fyrir fækkun keppi-
nauta og viðsemjenda bænda og
loks aðgerðir sem munu stuðla að
samkeppnislegu sjálfstæði sam-
einaðs fyrirtækis.
Tryggja samningsstöðu bænda
Hvað þann fyrsta varðar skuld-
bindur hið nýja sameinaða fyrir-
tæki sig til að standa ekki í vegi
fyrir því að bændur færi viðskipti
sín frá sameinuðu félagi til keppi-
nauta þess. Jafnframt er réttur
bænda til að semja um afmarkaða
þjónustu við sameinað fyrirtæki,
svo sem slátrun en aðra þjónustu
við þriðja aðila, svo sem vinnslu.
Verðlagning einstakra
þjónustuþátta
Hvað varðar aðgerðir í tengslum
við verðlagningu einstakra þjón-
ustuþátta skuldbindur sameinað
fyrirtæki sig til að aðgreina í
bókhaldi sínu slátrun og vinnslu
og lúta skorðum og reglum við
verðlagningu á slátrun og annarri
nánari skilgreindri þjónustu í til-
tekin tíma.
„Þannig njóti bændur hagræð-
is sem sameinað fyrirtæki ætlar
að ná og þurfi ekki að sæta verð-
hækkunum sem óhjákvæmilega
geta leitt af samkeppnishamlandi
samrunum. Skilyrðin eru jafn-
framt til þess fallin að styðja við
samningsforræði bænda og þar
með styrkja það aðhald sem þeir
geta beitt gagnvart kjötafurða-
stöðvum,” segir í tilkynningu
Samkeppniseftirlits.
Selja eignarhlut í
minni kjötvinnslum
Kjötafurðarstöðvarnar eiga hlut
í öðru slíkum og minni stöðvum,
Fjallalambi og Sláturfélagi
Vopnfirðinga og er eitt af skil-
yrðum Samkeppniseftirlits að til
að rjúfa eignartengsl við þessar
stöðvar verði eignarhlutur bænda í
þeim seldur. Skulu hlutirnir seldir
til bænda, eða félaga í meirihluta-
eigu bænda. Er sölunni settur
tiltekinn frestur, sem háður er
trúnaði.
Komið í veg fyrir fækkun
keppinauta og viðsemjenda
Þá er skilyrði fyrir samruna
fyrirtækjanna sem snýst um
aðgerðir til að koma í veg fyrir
fækkun keppinauta og viðsemj-
enda bænda. Þannig er nefnt að
Kjarnafæði hafi átt í viðskiptum
við kjötafurðastöðvar B. Jensen
og Sláturfélag Vopnfirðinga
og kemur fram í greinargerð
Samkeppniseftirlits að sameinað
fyrirtæki skuldbindi sig til að eiga
í áframhaldandi viðskiptum við
þessi félög í tiltekinn tíma.
Þessi viðskipti eru mikilvæg
fyrir áframhaldandi rekstur
þessara fyrirtækja, sem ella
kynnu að hverfa af markaði.
Miðar framangreind skuldbinding
að því að fyrirtækin hafi ráðrúm
til að bregðast við breyttum mark-
aðsaðstæðum og starfa áfram sem
sjálfstæðir keppinautar.
Setja sér samkeppnisstefnu
Að lokum eru skilyrði sem eiga
að stuðla að samkeppnislegu
sjálfstæði sameinaðs fyrirtækis.
Eitt þeirra er að sameinað fyrir-
tæki setji sér samkeppnisstefnu
grípi til aðgerða til að tryggja
eftirfylgni við sáttina í daglegri
starfsemi, tryggi óhæði gagnvart
keppinautum á vettvangi stjórnar
og lykilstarfsmanna og haldi skrá
yfir samskipti við keppinauta.
Þessar aðgerðir eru til þess fallnar
að fá sameinað fyrirtæki til að
virða bannreglur samkeppnislaga
og sporna við tjóni sem leitt getur
af aukinni samþjöppun í grein-
inni.
Aðgerðir vega upp á móti
skaðlegum áhrifum samruna
Öllum þessum aðgerðum er ætlað
að vega upp á móti skaðlegum
áhrifum sem Samkeppniseftirlitið
telur að samruninn hefði ella haft.
Rannsókn Samkeppniseftirlits við
vinnslu málsins leiddi m.a. í ljós
að röskun gæti orðið á samkeppni
vegna aukinnar samþjöppunar og
það væri til tjóns fyrir neytendur og
bændur. Eins gæti samruni leitt til
þess að minni keppinautar í slátrun
og vinnslu hyrfu af markaði. Ein
birtingarmynd er varðar hindrun á
markaði er að bændum væri ekki
tryggð hlutdeild í ábata af þeirri
hagræðingu sem sameinað fyrirtæki
hyggst ná, þar sem þeim muni ekki
gefast færi á að sýna sameinuðu
fyrirtæki nægilegt aðhald. Þá vinni
samkeppnishindranir sem af sam-
runanum leiða gegn því að ábati
hagræðingar skili sér til neytenda.
Loks er nefnt að Samkeppniseftirlit
hefði haft áhyggjur af því að val-
kostum bænda fækki og þar með
muni samningsstaða þeirra versna.
Hagur bænda og neytenda að
virk samkeppni ríki á mörkuðum
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir það
hag íslenskra neytenda og bænda
að virk samkeppni ríki á mörkuðum
fyrir slátrun gripa og í heildsölu og
vinnslu kjötafurða
„Kannanir á meðal bænda
gefa til kynna víðtækan stuðning
við aðgerðir til þess að standa
vörð um samkeppni á þessu
sviði,“ segir Páll Gunnar. Að mati
Samkeppniseftirlits er sátt þess
við samrunaaðila til þess fallin að
verja hagsmuni bænda og neytenda
og geri sameinuðu fyrirtæki kleift
að eflast og dafna á grunni virkr-
ar samkeppni og aðhalds af hendi
bænda. /MÞÞ
FRÉTTIR
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Matvælafyrirtækin Norðlenska, Kjarnafæði og SAH Afurðir:
Samkeppniseftirlit heimilar samruna
gegn ákveðnum skilyrðum
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam
keppnis eftirlitsins.
Norðlenska
Í samrunaskrá kemur fram að Norðlenska sé framleiðslufyrirtæki
á sviði kjötvöru og sé með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík og í
Reykjavík. Norðlenska slátri hrossum, nautgripum og svínum á
Akureyri og sauðfé á Húsavík. Þá framleiði Norðlenska og selji ýmsar
vörur úr lamba-, nauta-, grísa- og hrossakjöti undir vörumerkjunum
Goði, KEA, Húsavíkurkjöt og Bautabúrið. Norðlenska er að fullu í eigu
Búsældar ehf. sem er í dreifðu eignarhaldi 485 bænda.
Kjarnafæði
Kjarnafæði er matvælavinnslufyrirtæki sem framleiðir og selur ýmsar
vörur úr lamba-, nauta-, grísa- og hrossakjöti. Starfsemi félagsins fer
fram á Svalbarðseyri. Kjarnafæði er til jafns í eigu Eiðs Gunnlaugssonar
og Hreins Gunnlaugssonar. Kjarnafæði á að fullu félagið GMS ehf.
sem framleiðir tilbúna rétti fyrir Kjarnafæði. Einnig á Kjarnafæði
34,78% eignarhlut í keppinautnum Sláturfélagi Vopnfirðinga hf.
Systurfélög Kjarnafæðis (í eigu sömu aðila) eru félagið Miðpunktur
ehf. og Tani ehf. Fyrrnefnda félagið á ýmsar fasteignir á Akureyri, þ.á
m. þá fasteign sem hýsir höfuðstöðvar Norðlenska á Akureyri. Tani
ehf. á að fullu SAH afurðir ehf. SAH rekur sláturhús og afurðasölu á
Blönduósi. Starfsemi félagsins felst í slátrun á hrossum, nautgripum
og sauðfé, og sölu á afurðum til matvælavinnslufyrirtækja. SAH
afurðir eiga 3,9% eignarhlut í keppinautnum Fjallalambi hf.
„Forsvarsmenn félaganna hafa á
liðnum árum reynt að finna flöt
á sameiningu og er það meira
en lítið ánægjulegt að við séum
nú komin á þann stað að geta
farið að framkvæma hann,“
segir Ágúst Torfi Hauksson,
framkvæmdastjóri Norðlenska,
eftir að Samkeppniseftirlit hafði
heimilað félaginu samruna við
Kjarnafæði og SAH Afurðir.
Hann segir meðgönguna hafa
verið langa, en félögin sendu inn
samrunaskrá til Samkeppniseftirlits
í byrjun september í fyrra.
Aðdragandinn sé hins vegar mun
lengri, félögin hafi rennt hýru auga
hvort til annars um langt skeið
enda hafi eigendum verið ljóst
að æskilegt væri að þau rynnu
saman í eitt, eigendum, bændum,
starfsmönnum og neytendum til
heilla.
Ágúst Torfi segir samrunann
samþykktan af Samkeppniseftirliti
með skilyrðum, „sem við þurfum
að vinna úr ásamt tæknilegum
atriðum er varða samruna fyrirtækja
og er áætlað að það geti teki allt
að 10 vikur að klára þá vinnu og
stofna nýtt fyrirtæki utan um hinn
sameiginlega rekstur,“ segir hann.
Sameinað félag öflugur
vinnuveitandi á svæðinu
Fyrir liggur nú að skipa stjórn
sameinaðs félags sem vinna fer að
skipulagi og uppsetningu þess.
„Við höfum ekki talið okkur hafa
heimild til að tala saman um hvernig
rekstri sameinaðs félags verði háttað
enda starfa félögin í samkeppni
og eftir samkeppnislögum. Í
framhaldi af þessu hefst sú vinna
af fullum þunga,“ segir Ágúst Torfi.
„Sameinað félag verður sterkara
og heilbrigðara en samrunafélögin
og líklegt til að verða öflugur
vinnuveitandi á svæðinu auk
þess að vera kerfislega mikilvægt
fyrirtæki í virðiskeðju landbúnaðar.
Ég held að það sé óhætt að óska
eigendum félaganna, stafsmönnum
og viðskipamönnum til hamingju
með þennan áfanga.“ /MÞÞ
Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska:
Nýtt félag mikilvægt í virðiskeðju landbúnaðar
Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska.