Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202112
FRÉTTIR
Forsvarsmenn Bændasamtaka Íslands heimsóttu Búnaðarsamband
Eyjafjarðar fyrir skömmu. Hér eru þau Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ,
og Vigdís Häsler framkvæmdastjóri ásamt Birgi H. Arasyni, varaformanni
BSE (fyrir miðju).
Átak verði gert í hnitsetningu
landamerkja á starfssvæði BSE
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
vill gangast fyrir átaki um
hnitsetningu landamerkja á
starfssvæði sínu með það að
markmiði að landamerki allra
bújarða innan vébanda BSE verði
hnitsett fyrir árslok 2020. „Afar
mikilvægt er að ekki ríki óvissa
eða ágreiningur um landamerki
bújarða,“ segir í tillögu sem
samþykkt var á aðalfundi BSE á
dögunum.
Landamerkjalýsingar eru til
fyrir flest allar jarðir á Íslandi
segir í greinargerð með til
lögunni. Merkjalýsingar þessar
voru að mestu leyti skráðar á síð
ustu tveimur áratugum 19. aldar
í kjölfarið á settum lögum um
landamerki nr. 5 frá árinu 1882.
Landamerkjalýsingarnar sem hér
er vitnað til ganga í daglegu tali
almennt undir heitinu landamerkja
bréf.
Má deila um hversu
örugg heimildin er
Ný lög um landamerki nr. 41 tóku gildi
árið 1919 og eru þau í fullu gildi. Í
þeim er m.a. kveðið á um að land
eiganda sé skylt að gera glöggva skrá
um landamerki sé hún ekki tiltæk. Þrátt
fyrir að landamerkjabréf hafi verið
gerð fyrir flestar jarðir má deila um
hversu glögg og örugg sú heimild er.
Í texta bréfanna er landamerkjum
aðeins lýst með tilvísun í örnefni og
kennileiti á jörðinni. Þrátt fyrir tilurð
landmerkjabréfanna er vitneskja um
rétt landamerki víða að tapast með
brotthvarfi eldri kynslóða, og einnig
er sú hætta fyrir hendi ef jarðir ganga
kaupum og sölum. /MÞÞ
Hálendishringurinn, ferðamannavegur um Austurland:
Mikilvægt að ráðast í endurbætur
á versta vegarkaflanum
– Vaxandi umferð ferðamanna um hálendi Austurlands kallar á viðbrögð
Mikilvægt er að ráðast sem fyrst í
þær framkvæmdir sem nauðsyn
legar eru við hálendisveg um
Austurland þannig að hægt
verði að mæta fyrirsjáanlegri
þjónustuþörf vegna innlendra
og erlendra ferðamanna á
svæðinu. Byggðaráð Múlaþings
hefur skorað á sveitarstjórn að
leggja áherslu á það við fjár
veitingavaldið að gert verði ráð
fyrir fjármagni til hönnunar,
endurbóta og framkvæmda við
Hálendishring á Austurlandi.
Hálendishringurinn, ferða
mannavegur um Austurland var
til umræðu á fundi byggðaráðs
Múlaþings fyrir skemmstu.
María Hjálmarsdóttir, verk
efnastjóri hjá Austurbrú, segir
að vaxandi umferð ferðamanna
um hálendið á Austurlandi kalli á
viðbrögð svo tryggja megi öryggi
vegfarenda sem og að koma í veg
fyrir mögulegt rask á viðkvæmri
náttúru. Á vegum Austurbrúar
hefur verið unnið með hugmynd
um Hálendishring, ferðamannaveg
um Austurland, sem gæti þjónað
sem nokkurs konar gullni hringur
fjórðungsins.
Leiðin sem um ræðir er frá
Egilsstöðum inn með Lagarfljóti
og í gegnum Hallormsstaðaskóg,
hjá Hengifossi og um góðan
veg upp á Fljótsdalsheiði, hjá
Laugafelli og um Vesturöræfin.
„Það liggur upphækkaður og
malbikaður vegur að Kárahnjúkum,
en síðan tekur við grófur malar
vegur sem liggur fram hjá
gönguleiðinni ofan í Hafrahvamma
á aðra hönd og Laugavalladal á
hina. Þar á eftir liggur leiðin um
þurra mela og hæðir þar til komið er
á þjóðveginn við Brú á Jökuldal þar
sem hið nýuppgötvaða Stuðlagil er.
Loks liggur leiðin út Jökuldal og
inn á Þjóðveg 1 við Skjöldólfsstaði,
framhjá fossinum Rjúkanda og til
Egilsstaða þar sem hringurinn lok
ast,“ segir María.
Tækifæri til að skapa
vinsæla ferðaleið
Hún segir leiðina hafa upp á margt
að bjóða, fagra fjallasýn þar sem
Snæfell sé í öndvegi og gnæfi yfir
sýn að Vatnajökli, en ýmis önnur
fjöll megi að auki sjá sem og vötn.
Hreindýrahjarðir sem gjarnan
megi koma auga á geri ferðina að
sterkri upplifun.
„Þessi leið býður upp á mikla og
sjónræna upplifun, þessi hringferð
býður upp á mikil tækifæri til að
skapa vinsæla ferðaleið sem getur
styrkt ferðaþjónustu á Austurlandi
og fengið gesti í fjórðungnum til
að staldra lengur við,“ segir María.
Stór hluti leiðarinnar
þarfnast ekki lagfæringar
Telur hún að því sé mikilvægt
að beina sjónum að mikilvægu
viðhaldi vega þar sem það á við
og að það verði í takt við upp
byggingu áfangastaða á leiðinni.
„Vegakerfið er gott á stórum
hluta leiðarinnar og þarfnast ekki
lagfæringar við svo almenningur
geti farið um það á einkabílum
yfir sumartímann. Það sem upp á
vantar er kafli frá Kárahnjúkastíflu
og niður að Brú á Jökuldal. Þann
kafla mætti hefla oftar en það sem
þó er gleðilegt við þennan versta
kafla hringsins er að vegstæðið
liggur um þurra mela og öldur og
þar er mikið um gott efni og ekki
yfir neinar óbrúaðar ár að fara.
Vinna við að bæta þennan vegar
kafla ætti því að vera bæði nokkuð
hagkvæm og fljótleg,” segir María
Hjálmarsdóttir. /MÞÞ
Byggðaráð Múlaþings hefur skorað á sveitarstjórn að leggja áherslu á það við fjárveitingavaldið að gert verði ráð
fyrir fjármagni til hönnunar, endurbóta og framkvæmda við Hálendishring á Austurlandi.
María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri
hjá Austurbrú.
Á vegum Austurbrúar hefur verið unnið með hugmynd um Hálendishring,
ferðamannaveg um Austurland, sem gæti þjónað sem nokkurs konar gullni
hringur fjórðungsins.
Hafrahvammagljúfur.
Aflvélar ehf. og Búvélar ehf.:
Vélaverkstæði Þóris mun þjónusta
Valtra og Massey Ferguson
Gerður hefur verið
nýr þjónustusamn
ingur milli Aflvéla
ehf. Búvéla ehf.
og Vélaverkstæðis
Þóris ehf. Samn
ingurinn felur í sér
að Vélaverkstæði
Þóris ehf. mun
áfram þjónusta
Valtra og Massey
Ferguson dráttar
vélar.
Mikil reynsla
og þekking hefur
skapast í rúm
lega 25 ára sögu í þjónustu
Véla verkstæðis Þóris á þessum
merkjum. Samningurinn er
þó víðtækari og verkstæðið
annast einnig viðhald annarra
vörumerkja sem Aflvélar og
Búvélar eru umboðsaðilar fyrir.
Þar má nefna Massey Ferguson
heyvinnutæki, Pitbull liðléttinga,
Bögballe áburðardreifara, Nc
mykjutæki, Pronar vagna og tæki,
AEBI Schmidt o.fl.
Þessa má geta að Valtra á 70
ára afmæli á þessu ári og í tilefni
þess verður mikill viðburður á
netinu á morgun, 16. apríl, þar
sem frumsýndar verða nýjar vörur
frá framleiðandanum. /HKr.
Þórir L. Þórarinsson (Vélaverkstæðis Þóris) og Friðrik
Ingi Friðriksson í Aflvélum þegar samkomulagið var
undirritað.