Bændablaðið - 15.04.2021, Side 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202118
LANDSJÁ
„Mér þykir vænt um svín.
Hundar líta upp til okkar.
Kettir líta niður á okkur.
Svín meðhöndla okkur sem
jafningja.“ Það er haft fyrir
satt að Winston Churchill
hafi svarað Stalín með þessum
orðum á Yalta-ráðstefnunni
1945 þegar sá síðarnefndi sagði
að Franklin D. Roosevelt forseti
væri svín.
Líklega voru þetta, ef satt er,
meiri orðaskylmingar heldur en
djúp speki hjá Churchill í Yalta.
En mér flaug þetta svona í hug við
skoðun þjóðhagsreikninga. Þeir
gefa semsé ekki nægilegan gaum
að þeirri verðmætasköpun sem
orðið hefur í hvíta kjötinu, það er
að segja í svína- og alifuglarækt.
Við sjáum að síðustu áratugi
hafa orðið miklar framfarir
í landbúnaði. Minna magn
af aðföngum þarf fyrir hvert
framleitt kíló með tilheyrandi
lækkun á umhverfisspori
matvælaframleiðslu. Enginn geiri
atvinnulífsins hefur náð meiri
árangri í því að draga úr losun
á Íslandi annar en sjávarútvegur
samkvæmt gögnum Hagstofunnar.
Losun hefur þvert á móti vaxið
verulega hjá allflestum öðrum
greinum. Verðmætasköpun hefur
vaxið hraðar í landbúnaði og
matvælaframleiðslu heldur en í
hagkerfinu sem heild þrátt fyrir
ýmsan mótbyr.
Þjóðhagsreikningar villa
sýn í landbúnaði
Þjóðhagsreikningar sýna vel
þessa þróun en þeir grípa ekki
með fullnægjandi hætti hversu
mikil aukning hefur orðið í
verðmætasköpun. Alifugla- og
svínabú sem eru með eigin
sláturhús og kjötvinnslur eru
flokkuð með matvælaframleiðslu
en ekki með landbúnaði. Ástæðan
er einföld. Það mun ekki vera hægt
að sundurgreina í reikningum
hvað á heima hvar. Framleiðsla á
svínakjöti hefur aukist um nálega
helming meðan framleiðsla
á alifuglakjöti hefur rúmlega
þrefaldast á tveimur áratugum.
Sú aukning hefur styrkt íslenskan
landbúnað. Því fleiri stoðir sem
eru undir innlendum landbúnaði,
þeim mun meiri styrkur. Það
gefur betri og fleiri tækifæri
fyrir verktöku, sérhæfingu og
sérhæfða ráðgjafarþjónustu.
Með því móti verður hægt að
ná enn meiri árangri í að skapa
verðmæti og draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Íþyngjandi kröfur á landbún-
að hafa stóraukist síðasta áratug.
Kostnaðarsamar reglugerðir um
aðbúnað vega þar þungt og auka
framleiðslukostnað. Það lítur út
eins og tangarsókn af hálfu stjórn-
valda að auka kostnað innlendra
framleiðenda en heimila á sama
tíma innflutning á vörum, sem
framleiddar eru við allt önnur skil-
yrði, á lægri tollum. Niðurstaðan
hefur orðið sú að verð á ýmsum
tegundum kjöts hefur lækkað til
bænda en hækkað til neytenda í
takti við hækkun vísitölu neyslu-
verðs. Slík tangarsókn kallar á
viðbrögð.
Verum stolt af
okkar framleiðslu
Nágrannar okkar Svíar hafa
lengi haft þá stefnu að að-
greina sína kjötframleiðslu
frá samkeppnislöndum innan
Evrópu sambandsins. Í Svíþjóð
eru vissulega strangar aðbúnaðar-
reglugerðir sem auka kostnað
innlendrar framleiðslu. Svíum
hefur hins vegar tekist með
samstarfi verslunar, bænda og
sláturleyfishafa að búa til merki,
„Från Sverige“, til þess að greina
vörur sem upprunnar eru í Svíþjóð
frá erlendri samkeppni. Enda er
afurðaverð til sænskra bænda eitt
það hæsta sem um getur í Evrópu.
Íslenskir bændur, hvort sem
þeir rækta svín, kjúklinga, sauðfé
eða nautgripi, ættu að sameinast
um að koma slíku merki á koppinn
með samstarfi við verslun og
stjórnvöld. Það er hagur allra að
geta séð á skýran hátt hvaða vörur
eru íslenskar. Merkið væri ekki
afgerandi í stórveldapólitík frekar
en ummæli Churchills í upphafi
pistils, en það myndi marka
tímamót í íslenskum landbúnaði.
Kári Gautason
Sérfræðingur í úrvinnslu
hagtalna hjá BÍ
Íslenskt merki á hvítt sem rautt
Kári Gautason.
Fjárveiting úr Landsáætlun og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða:
Rúmur einn og hálfur milljarður
til innviða og ferðamannastaða
– Uppbygging ofan Öxarárfoss og Jöklaleið við Skaftafell fengu hæstu styrkina
Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra og
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra
kynntu í marsmánuði úthlutun
fjármuna til uppbyggingar innviða í
þágu náttúruverndar og til annarra
verkefna á ferðamannastöðum
árið 2021. Annars vegar er um
að ræða 764 milljóna króna
framlag úr Landsáætlun og
hins vegar 807 milljóna króna
framlag úr Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða.
Í Landsáætluninni, sem hófst árið
2018, bætast nú við 85 ný verkefni
og eru nú samtals 180 á ríflega 100
stöðum samkvæmt áætlun áranna
2021 til 2023. Heildarframlög til
verkefnisins á þessum þremur árum
verða rúmir 2,6 milljarðar króna.
Jöklaleið frá Svínafelli
yfir í Skaftafell
Hæstu upphæðir úthlutunarinnar
fyrir þetta ár eru annars vegar vegna
fyrirhugaðrar uppbyggingar ofan við
Öxarárfoss, með stórbættu aðgengi
í þinghelgina, og vegna verkefnis
sem felst í að ljúka við uppsetningar
göngupalla við Dettifoss sem auka
öryggi og aðgengi til muna á svæðinu.
Framkvæmdasjóður ferða-
mannastaða, sem stofnaður var
árið 2011, úthlutar að þessu sinni
styrki til 54 verkefna um allt land,
til sveitarfélaga og einkaaðila.
Styrkupphæðin var nú aukin
tímabundið um 200 milljónir króna
sem viðspyrna við niðursveiflu
efnahagslífsins vegna COVID-19.
Hæsta styrkinn fær Sveitarfélagið
Hornafjörður, eða rúmar 97 milljónir
króna, til að hanna og gera göngu- og
hjólastíginn Jöklaleið frá Svínafelli
yfir í þjóðgarðinn í Skaftafelli í
samvinnu við hagaðila á svæðinu.
Aðrir styrkir hærri en 20 milljónir
króna eru meðal annars til byggingar
skógarhúss við Sólbrekkuskóg,
hönnun áfangastaða austan Tjörness,
stígagerð og brúun í fólkvanginum
Glerárdal á Akureyri og gerð
flotbryggju í Drangey.
Brugðist hratt við óvæntu
álagi vegna ferðamanna
Guðmundi Ingi segir í tilkynningu
eftir kynninguna, sem fór fram í
Norræna húsinu og streymt beint
þaðan líka, að Landsáætlun um
uppbyggingu innviða og þriggja
ára verkefnaáætlunin sé verkfæri
sem hafi sannað sig vel á síðustu
þremur árum. „Við höfum séð afar
jákvæða þróun til verndar náttúru og
menningarsögulegum minjum um allt
land. Það skiptir máli að byggja á
faglegu mati sérfræðinga um ástand
svæða, hafa fyrirsjáanleika og
fjármagn til langtímaáætlunargerðar
en einnig þegar bregðast þarf hratt
og örugglega við óvæntu álagi
vegna ferðamanna, eins og við
höfum gert. Nú þegar við gefum
verkefnaáætlunina út í fjórða sinn
erum við að sjá fyrir endann á
mörgum framkvæmdaverkefnum,
stórum og smáum, sem ég veit að mun
vernda viðkvæma náttúru og styðja
við góða upplifun fólks á ferð sinni
um landið,“ segir Guðmundur Ingi.
Þórdís Kolbrún segir að smám
saman eigi sér stað bylting í
aðstöðu við bæði gamla og nýja
ferðamannastaði á Íslandi. „Og sífellt
liggur meiri heildarsýn á bak við þessa
uppbyggingu, sem endurspeglast
í tengingum við áætlanir hvers
landshluta um uppbyggingu á sínu
svæði. Það er mjög jákvæð þróun,“
segir hún í tilkynningu.
Stjórnvöld hafa að undanförnu
lagt áherslu á að ná árangri í að
bæta innviði um land allt og auka
getu svæða til að taka á móti
ferðamönnum. Síðasta ár var metár
hvað varðar umfang framkvæmda
á ferðamannastöðum, með
sérstöku fjárfestingarátaki vegna
heimsfaraldursins sem gerði það
mögulegt að flýta framkvæmdum.
/smh
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á kynningunni í Norræna húsinu. Myndir / Styrmir Kári
Einar Ásgeir Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, sagði frá áformum
um uppbyggingu innan þjóðgarðsins.
Verkefnið Jöklaleið fékk hæsta styrkinn úr Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða. Matthildur Ásmundsdóttir, bæjarstjóri Hornafjarðar, Árdís Erna
Halldórsdóttir atvinnu- og ferðamálafulltrúi og Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis og skipulagsstjóri kynna verkefnið.
FRÉTTIR
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR