Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202122
Einn stærsti gallinn við lithium-ion
bílarafhlöður og aðrar rafhlöð-
ur sömu gerðar er að í þeim er
seigfljótandi vökvi sem við hraða
hleðslu og afhleðslu getur hitn-
að mjög hratt og valdið íkveikju.
Mjög erfitt er að slökkva í slíkum
rafhlöðum ef í þeim kviknar. Því
hafa vísindamenn reynt frá því um
1950 að finna leiðir til að búa til
það sem kalla má fastkjarna-raf-
hlöður eða „solid-state“ rafhlöður
og enn er beðið eftir alvöru lausn
á málinu.
Í desember á síðasta ári sagðist
bílaframleiðandinn Toyota vera að
koma með lausn í rafhlöðumálunum
sem leyst gæti núverandi Lithium-
Ion rafhlöður af hólmi. Þá ekki bara
fyrir bíla, heldur fyrir öll iðnaðartæki.
Þær áttu að vera með föstum kjarna
og þola mjög hraða hleðslu, eða
frá 0-100% á 10 mínútum. Kostur
fastkjarnarafhlaða er að þær eiga
fræðilega að geta geymt mun
meiri orku á stærðareiningu en
Lithum-Ion rafhlöðurnar, eða 2 til
8 sinnum meiri orku. Þá er hitinn
sem skapast við hleðslu á slíkum
rafhlöðum sagður 70-80% minni.
Þá eru fastkjarnarafhlöðurnar sagðar
innihalda mun minna af eiturefnum
en núverandi bílarafhlöður og hafa
mun lengri endingartíma.
Toyota kynnir framtíðarlausn
með nýjum jepplingi
Þessar rafhlöður voru sagðar koma
fram á sjónarsviðið í frumgerð jepp-
lings Toyota (e-TNGA platform) nú
í byrjun árs 2021. Talað er um að
framleiðsla á slíkum bíl ætti að geta
hafist á árunum 2023 til 2024. Ef
þetta er rétt, þá væri trúlega vel þess
virði hjá þeim sem hyggjast festa
kaup á rafbílum nú að bíða með slíka
ákvörðun í tvö til þrjú ár.
Toyota hefur, samkvæmt umfjöll-
un Omaze, unnið að rannsóknum á
fastkjarnarafhlöðum síðan 2012 eiga
yfir 1.000 einkaleyfi er varða smíði
á slíkum rafhlöðum. Það hefur líka
hjálpað Toyota og örðum tæknifyr-
irtækjum að japönsk yfirvöld hafa
lagt 19 milljarða dollara í þróun á
vetnistækni og þróun á fastkjarnaraf-
hlöðum.
Þegar er byrjað að byggja
nauðsynlega innviði til framleiðslu
á fastkjarnarafhlöðum Toyota. Þar
mun fyrir tækið Mitsui Kinzoku sjá
um framleiðslu á efnalausninni í
rafhlöðurnar og mun framleiða tugi
tonna af þeirri efnablöndu á ári frá
og með næsta ári.
Árið 2012 hefði
fastkjarnabílarfahlaða kostað
12,6 milljarða stykkið
Allt hljómar þetta dásamlega,
en það fylgir böggull þessu
skammrifi. Framleiðslukostnaður
á fatskjarnarafhlöðum er sagður
gríðarlegur. Árið 2012 kostaði
100.000 dollara að framleiða eitt
20 amper-stunda fastkjarna-batterí.
Rafmagnsbíll myndi þurfa einingu
sem samsett væri úr 1.000 slíkum
rafhlöðum. Sem sagt, miðað við
kostnaðinn árið 2012 myndi slíkt
stykki af slíkri rafhlöðu kosta 100
milljónir dollara, eða sem nemur
um 12,6 milljörðum íslenskra króna.
Dýr yrði þá druslan öll með fjórum
hjólum. Greinilegt er að Toyota
hefur tekist að yfirvinna þennan
kostnaðarþátt fyrst nú er stefnt á
fjöldaframleiðslu á næstu þrem árum
eða svo.
Annar galli við fastkjarnarafhlöður
líkt og Lithium-Ion rafhlöður er
orkufall í miklum kulda. Eins
hefur verið vandað við endingu. Ef
Toyota hyggst fara í framleiðslu á
fastkjarnarafhlöðum, þá má telja
líklegt að búið sé að yfirvinna þessa
galla, að öðrum kosti mætti búast við
endalausum lögsóknum óánægðra
kaupenda.
Þriðji vandinn er kristallamyndun
á anóðum við hleðslu og afhleðslu
í hefðbundnum rafhlöðum. Slík
kristallamyndun eyðileggur
rafhlöðurnar með tímanum.
Vísindamenn hafa þó unnið að lausn
á þessum vanda síðan 2018.
Volkswagen stefnir á framleiðslu
fastkjarnarafhlaða 2025
Tveir aðrir bílaframleiðendur hafa
lýst því yfir að þeir hyggjast nota
fastkjarnarafhlöður í framtíðinni
í sína bíla. Það eru Tesla og
Volkswagen Group. Volkswagen
segist ætla að hefja slíka framleiðslu
2025 í samstarfi við fyrirtækið
QuantumScape. Síðastnefnda
fyrirtækið segist þegar hafa yfirunnið
öll helstu vandamál sem fylgt hafa
framleiðslu á fastkjarnarafhlöðum.
Reyndar hefur QuantumScape þegar
sannað sitt mál með rafhlöðu sem
hægt er að hlaða upp í 80% orkugetu
á 15 mínútum. Fyrirtækið er búið
að eyða 10 árum og 300 milljónum
dollara í rannsóknir og þróunarvinnu
vegna þessa. Þá endist rafhlaðan
nærri þrefalt lengur en Lithium-
Iona rafhlaða og dugar í allt að 800
hleðslur í stað ca 280. Örkuþéttni
QuantumScape rafhlöðunnar er sögð
um tvöföld á við bestu Lithium-Ion
rafhlöðurnar. /HKr.
UTAN ÚR HEIMI
Endingarmiklar og öflugar fastkjarnarafhlöður
sagðar vera rétt handan við hornið
– Toyota hyggst kynna jeppling með fastkjarnarafhlöðu og hefja fjöldaframleiðslu 2023 og VW árið 2025
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Milljarðar dollara hafa verið lagðir í þróun á fastkjarnarafhlöðum á undanförnum árum. Nú telur Toyota, líkt og
VW samsteypan, að takmarkinu sé alveg að verða náð. Fastkjarnarafhlaða í venjulegan fjölskyldubíl hefði kostað
í framleiðslu árið 2012 heila 12,6 milljarða króna. Nú telja fyrirtækin að framleiðslukostnaðurinn sé kominn niður í
ásættanlegt verð. Þá á að vera hægt að fullhlaða slíkar rafhlöður á 10–15 mínútum og eiga fastkjarnarafhlöður að
endast í líklega 20 ár eða meira. Hægt á að aka á rafhleðslu þeirra minnst tvöfalt lengri vegalengd en nú er hægt
með Lithium-Ion rafhlöðum. Þær innihalda heldur ekki nærri eins mikið af eitruðum þungmálmum að sagt er og
tiltölulega lítil hætta er á að í þeim kvikni að sjálfsdáðum.
Ef ævintýrið með fastkjarnarafhlöður gengur upp með hraðvirkari hleðslu,
mun meiri endingu og drægni, er nokkuð ljóst að bílar með núverandi
rafhlöðubúnaði verða fljótt verðlitlir á eftirmarkaði.
Sveitarfélagið Skagaströnd
hefur tekið við eignum sem
áður voru í eigu FISK-Seafood,
en um er að ræða iðnaðarhús-
næði sem áður hýsti rækju-
vinnslu, síldarverksmiðju ásamt
skrifstofuhúsnæði þar sem
nú er starfrækt Greiðslustofa
Vinnumálastofnunar og skrifstofa
sveitarfélagsins.
Með breytingu á eignarhaldi hús-
anna skapast færi á því fyrir sveitar-
félagið að vinna að uppbyggingu og
styrkja innviði auk þess að hlúa að
mikilvægri starfsemi sem þegar er
fyrir hendi á Skagaströnd.
Bæta aðbúnað á skrifstofu
Greiðslustofu
Fyrsta verkefnið sem er á teikni-
borði sveitarfélagsins er að
bæta aðbúnað starfs manna
Greiðslustofu Vinnu mála stofn-
unar á Skagaströnd, en þeir eru
26 talsins. Á síðustu mánuðum
hefur verið unnið að tillögu vegna
breytinga á húsnæðinu sem m.a.
miðar að því að mæta þörfum
vaxandi vinnustaðar þar sem sífellt
hefur bæst við starfsmannafjöldann
undanfarna mánuði.
Breytingar taka einnig mið af
því að skapa aðstöðu fyrir störf án
staðsetningar og fyrir aðra opinbera
starfsemi skapist tækifæri til slíkrar
uppbyggingar. Þá er einnig hugað
að því að bæta aðstöðu starfsmanna
á skrifstofu sveitarfélagsins sem er
í sama húsi.
Fram kemur á vefsíðu
Skagastrandar að unnið sé að því
að finna rækjuvinnslu og síldar-
verksmiðjunni hlutverk og verður
áfram unnið að því verkefni. Fisk-
Seafood er með leigusamning á
gömlu síldarverksmiðjunni fram í
maí árið 2024. /MÞÞ
LÍF&STARF
Skagaströnd tekur við eignum FISK-Seafood:
Fyrrum rækju- og síldarvinnslum
fundið nýtt hlutverk
Skagaströnd. Mynd / HKr.