Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202124
LÍF&STARF
1000 ára sveitaþorp í Þykkvabænum:
Þróar KindaKol úr sauðataði til notkunar
í landgræðslu, landbúnaði og stóriðju
Stofnandi fyrirtækisins 1000
ára sveita þorps heitir Ár sæll
Markússon. Hann er Þykk
bæingur að uppruna, býr þar
og rekur frumkvöðla fyrirtæki
sitt. Á teikniborðinu nú er að
framleiða svokölluð KindaKol
með margvíslega notkunar
möguleika, þar sem aðalhrá
efnið er sauðatað og annar van
nýttur lífrænn úrgangur. Hann
kynnti verkefni sitt formlega
á lokadegi viðskiptahraðalsins
Startup Orkídea 19. mars ásamt
samstarfsmanni sínum, Davíð
Alexander Östergaard, þar sem
þeir voru meðal þátttakenda.
Hugmyndin með Kindakolunum
er að finna farveg fyrir hið mikla
magn af sauðataði sem fellur til
árlega og er ekki nýtt af bændum.
Í fyrsta fasa verkefnisins verður
athyglin sett á að búa til lífrænan
áburð – þróa vöru til landgræðslu
og í öðrum fasa áburðarvöru
fyrir landbúnað. Í þriðja fasa er
svo stefnt að því að þróa vistvæn
iðnaðarkol sem gætu að einhverju
leyti leyst af hólmi hefðbundin kol
sem notuð eru til að mynda í starf-
semi stóriðjuvera.
Skræður og kartöflur
Fyrsta verkefni 1000 ára sveita-
þorps var hins vegar að þróa mat-
vöru árið 2017 sem fékk heitið
Skræður; sem er þurrkað hrossa-
kjöt, kjötnasl, og byggir á aldagam-
alli hefð úr Þykkvabænum. Ársæll
hefur hins vegar fært matvöruna til
nútímans með hliðsjón af aðferðum
og kryddjurtum úr öðrum matar-
menningarheimum. Hann fram-
leiðir tvær tegundir af Skræðum í
dag. „Þetta var allt saman unnið í
samstarfi við Samband sunnlenskra
sveitarfélaga; ég fékk styrk frá
þeim til að hanna umbúðir, vefsíðu,
gera prófanir á innihaldsefnum og
svo framvegis. Vöruþróun í stuttu
máli,“ segir Ársæll.
„Meðan ég var að vinna í
Skræðugerð var ég dálítið að hlusta
á samræður í samfélaginu og fékk
það á tilfinninguna að fólk væri
að leitast eftir umhverfisvænum
lausnum, minna plasti og minni
sóun.
Og ég spurði sjálfan mig, hvað
hef ég aðgang að í nærumhverfi
mínu sem ég gæti nýtt mér í því
að prófa slíkar lausnir? Kartöflur
var svarið og því fór ég að skoða
umhverfisvænar umbúðir og hvort
það væri gerlegt fyrir mig að
pakka kartöflum í umhverfisvænar
umbúðir. Svarið var já.“
Smælki fyrir hinn
venjulega neytanda
Þannig hófst pökkun og framleiðsla
1000 ára sveitaþorps á kartöflum
í umhverfisvænum umbúðum, en
þær höfðu þá sérstöðu að í stærstu
pakkningunum var eingöngu pakkað
smælki, eða smáum kartöflum, fyrir
veitingastaði sem hugsuðu um um-
hverfismálin. „Þannig að ég fór í að
hanna umbúðir fyrir þetta árið 2018,
síðan hefur úrvalið aukist jafnt og
þétt. Ég byrjaði á að pakka eingöngu í
tveggja kílóa umbúðum, en árið 2019
bætti ég eins kílóa pakkningum við
og svo 10 kílóum, sem voru sérstakar
að því leyti að í þeim var bara smælki
og pakkningarnar sérstaklega mark-
aðssettar fyrir veitingastaði, mötu-
neyti og hótel, sem væru meðvituð
um sóun og umhverfið.
En svo kom COVID-19 og engin
sala varð á 10 kílóa pokunum eða
smælkinu. Því tók ég upp á því að
hanna nýjar umbúðir hugsaðar fyrir
hinn venjulega neytanda á Íslandi;
600 gramma öskjur með smælki, lítil
og þægileg stærð fyrir tvo til þrjá
einstaklinga. Tveggja kílóa og 600
gramma vörurnar mínar er að finna
í verslunum Krónunnar og öðrum
minni verslunum á landinu.“
Kindakolin verið
hugarfóstur frá 2019
„Svo vegna farsóttarinnar
þá fann ég tíma til að vinna í
Kindakolshugmyndinni – sem hefur
verið hugarfóstur mitt síðan 2019,“
segir Ársæll um bakgrunn hug-
myndarinnar. Hann er verkefnis-
stjóri yfir verkefninu en með honum
í hugmyndavinnunni og yfirmaður
rannsókna er Davíð Alexander
Östergaard.
„Það verður mjög erfitt að ná
metnaðarfullum markmiðum mót-
vægisaðgerða vegna loftslags-
breytinga án stórfelldrar minnkunar
á kolefnisnotkun. Hingað til hefur
lífrænn úrgangur verið urðaður, not-
aður sem áburður eða einfaldlega
látinn renna út í sjó. En frá og með
árinu 2023 verður bannað að urða líf-
brjótanlegan úrgang hér á landi, sam-
kvæmt lagafrumvarpi frá Alþingi.
Það er því þörf á nýjum ferlum til
að takast á við lífræn úrgangsefni á
Íslandi.
Til að hjálpa til að ná þessu vist-
væna og sjálfbæra markmiði viljum
við styðja við þróun á hátæknilausn-
um í bland við hreina orku á Íslandi.
Kindakol er sjálfbær orka og áburður
sem dregur úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda,“ segir Ársæll.
Framleiðsluferlið byggir
á kolefnisvatnshitun
Ársæll lýsir framleiðsluferlinu
þannig að notast sé við svokallaða
„kolefnisvatn shitun“ [e. hydro-
thermal carbonization], sem sé
hröðun á náttúrulegri myndun kols.
„Þetta eru efnahvörf sem umbreyta
lífmassa í tvær afurðir: kol og köfnun-
arefnisvatn. Kolefnisvatnshitunarver
er svo fært um að meðhöndla líf-
rænan úrgang og breyta honum í
vistvæn kol, áburð og lífeldsneyti til
frekari notkunar í hagkerfinu. Þau
byggja á sjálfbærri tækni sem stuðlar
Ársæll Markússon, Þykkbæingur og frumkvöðull. Mynd / Orkídea Startup
Sérvaldar kartöflur í vistvænum
umbúðum úr Þykkvabænum.
Stefnt verður að því að KindaKolin verði tilbúin til kynningar að ári liðnu.