Bændablaðið - 15.04.2021, Page 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 33
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagastrandar hefur samþykkt
skipulagslýsingu vegna breytinga
á deiliskipulagi Hólanessvæðisins,
en gert er ráð fyrir að á reit
þar verði byggðar baðlaugar.
Tilgangur þeirra er að stuðla að
uppbyggingu ferðaþjónustu á
Skagaströnd.
Markmið með breytingu á deili
skipulagi Hólaness er m.a. að skapa
forsendur fyrir frekari uppbyggingu
á miðsvæði sveitarfélagsins þar
sem áhersla er á að þétta byggð.
Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir
nýbyggingu og endurbótum á svæð
inu og er tillagan háð umhverfis
mati.
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur
kynnt áform um byggingu nýrra
sjóbaða á Hólanesi en hugmyndin
byggir á því að þróa núverandi
bæjarkjarna áfram og mynda sterka
miðju fyrir menningu og versl
un. Staðsetning sjóbaðanna með
bygg ingum mynda opinn kjarna af
byggingum í kringum grænt svæði,
en þessi kjarni myndar nýjan bæj
arkjarna.
Sjóböðin og þjónustubygging
við þau eru staðsett í og við kant
inn með laugar og potta sem eru í
og við fjöruborðið þar sem stór
brotið útsýni er yfir Húnaflóann og
Strandafjöllin. Hugmyndin byggir
á því að opna aðgang að fjörunni
og mynda þannig sterk tengsl við
náttúruöflin, segir í skýrslu um sjó
böðin sem aðgengileg er á vefsíðu
sveitarfélagsins.
Hefur gríðarlega jákvæð áhrif
„Uppbygging ferðaþjónustu hefur
gríðarlega jákvæð áhrif fyrir
Skagaströnd og Norðurland vestra
eins og það leggur sig,“ segir
Alexandra Jóhannesdóttir, sveit
arstjóri á Skagaströnd. „Verkefnið
snýst um að búa til nýja fram
tíðarsýn fyrir Skagstrendinga og
skapa forsendur fyrir viðamikilli
uppbyggingu í ferðaþjónustu. Það
er m.a. grunnur að því að hægt sé
að veita víðtæka þjónustu í sveitar
félaginu allt árið um kring, m.a.
með tilliti til veitingaþjónustu og
annarrar afþreyingar. Við horfum
því á verkefnið þeim augum að
það sé uppbyggingarverkefni sem
treystir byggðarfestu á Skagaströnd
með því að stuðla að bættum lífs
gæðum og auknum tækifærum fyrir
íbúa.“
Innblástur í gömlu pakkhúsin
Byggingin við sjóböðin á Hólanesi
er hönnuð með innblástur í gömlu
pakkhúsin, einfalt form með
miðjustilltum mæni sem aðlagast
nágrenni sínu vel. Áhersla er lögð
á einfaldar lausnir og hrátt yfir
bragð, en byggingin opnar sig að
aðkomunni og myndar op í gegnum
bygginguna og rammar þannig inn
stórbrotið útsýni.
Í aðalrými byggingarinnar verð
ur móttaka, setsvæði, salerni og
verslun með léttar veitingar, en þar
inn af eru búningsklefar. Möguleiki
verður á að stækka bygginguna til
norðurs, t.d. með útiklefum.
Kosta um hálfan milljarð
Áætlað er að heildarfjárfesting við
þetta verkefni geti numið um hálfum
milljarði króna. Búið er að tryggja
fjármögnun verksins að hluta en
áfram verður unnið í þeim þætti
næstu mánuði. Verktími er áætl
aður um tvö ár og er stefnt að því
að hönnunar og skipulagsvinnu
verði lokið á árinu 2021 og miðað
við óbreyttar forsendur hefjist fram
kvæmdir á næsta ári. /MÞÞ
BÆNDUR GRÆÐA LANDIÐ
LANDGRÆÐSLAN ÓSKAR EFTIR ÞÁTTTAKENDUM
Í VERKEFNINU „BÆNDUR GRÆÐA LANDIГ
Í BOÐI ER FJÁRHAGSLEGUR STUÐNINGUR
VIÐ UPPGRÆÐSLU OG RÁÐGJÖF
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 30. APRÍL 2021
UMSÓKNAREYÐUBLÖÐ ERU Á LAND.IS
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA HÉRAÐSFULLTRÚAR
LANDGRÆÐSLUNNAR
S. 488-3000 BGL@LAND.IS WWW.LAND.IS
Látið ekki lamb úr
túni sleppa.
Í fyrra seldist
allt upp!
LEIKANDI LÉTTAR
FJÁRGRINDUR
Liprar og léttar fjárgrindur. Krækt saman án aukahluta, engir teinar eða skrúfur.
Breidd 180 cm, hæð 90 cm.
Verð kr. 7.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 10 grindur eða fleiri, verð kr. 6.900 stk. auk vsk.
Fyrstu 200 grindurnar á kr. 5.900 stk. auk vsk.
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Pantanir og upplýsingar í símum 899 1776 og 669 1336. Meira fyrir aurinn
Vortilboð á fjárgrindum
Liprar og lét
tar fjárgrindu
r. Krækt sam
an án aukah
luta, engir te
inar eð skrú
fur.
Breidd 180 c
m, hæð 90 c
m.
Verð kr. 7.90
0 stk. auk vs
k.
Ef keyptar e
ru 10 grindu
r eða fleiri, v
erð kr. 6.900
stk. auk vsk
.
Fyrstu 200 g
rindurnar á
kr. 5.900 stk
. auk vsk.
Fyrstur kem
ur, fyrstur fæ
r!
Pantanir og
upplýsingar
í símum 899
1776 og 669
1336.
Meira fyrir au
rinn
Vortilboð á
fjárgrindum
Liprar og léttar fjárgrindur.
Krækt saman án aukahluta.
Breidd 180 cm. Hæð 90 cm.
Verð kr. 7.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 10 grindur eða fleiri
er verðið kr. 6.900 stk. auk vsk.
Pantanir og upplýsingar í símum
669 1336 og 899 1776.
Yamaha rafstöðvarnar eru léttar, hljóðlátar, handhægar
og auðveldar í notkun. Loftkældar fjórgengis rafstöðvar.
Fjölhæfir vinnuhestar
Kletthálsi 3 · 110 Reykjavík · Sími: 540 4900 · yamaha.is
ÁREIÐANLEIKI
KRAFTUR GÆÐI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur kynnt áform um byggingu nýrra sjóbaða á Hólanesi. Sú uppbygging er liður í því
að stuðla að uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu.
Skagaströnd:
Fyrirhugað að reisa sjóböð á Hólanesi
– Verða í fjöruborðinu með stórbrotnu útsýni yfir Húnaflóa og Strandafjöllin
Byggingin við sjóböðin á Hólanesi er hönnuð með innblástur í gömlu pakk-
húsin, einfalt form með miðjustilltum mæni sem aðlagast nágrenni sínu vel.
Sjóböðin og þjónustubygging við þau eru staðsett við kantinn með laugar
og potta sem eru í og við fjöruborðið þar sem stórbrotið útsýni er yfir
Húnaflóann og Strandafjöllin.
Markmið með breytingu á deiliskipulagi Hólaness er m.a. að skapa forsendur
fyrir frekari uppbyggingu á miðsvæði sveitarfélagsins þar sem áhersla er á
að þétta byggð. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir nýbyggingu og endurbótum
á svæðinu.