Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202134
Elín Dögg Arnarsdóttir á bænum
Litluflöt í Holtum í Rangárþingi
ytra kallar ekki allt ömmu sína
þegar kemur að saumaskap og
alls konar vinnu með höndunum
því hún hefur stofnað fyrirtækið
„Saumað í sveitinni“ og þar er
brjálað að gera.
Búin að sauma 700 grímur
„Þetta byrjaði þannig að ég keypti
mér vél að utan sem sker út
límmiða, og var það nú aðallega
bara áhugamál, sem ég vann með
í ferðaþjónustunni á Litluflöt. En
svo kom Covid og þar með lítil
vinna, grímuskylda hjá unglingnum
í Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi, sem þoldi illa einnota
grímurnar. Þá voru góð ráð dýr,
ég fann frítt snið á netinu og fór
að sauma grímur, svo fór það að
spyrjast út og hef ég saumað hátt
í 700 grímur. Svo hægðist á því og
þar sem við stundum hestamennsku
líka fór ég að sauma ábreiður á
hnakka og poka undir hjálminn með
og merki þær með nafni og mynd
af hesti og vakti það mikla lukku.
En ég sker líka út vegglímmiða,
bílamerkingar upp að ákveðinni
stærð, merki alls konar fatnað og
reiðtygi, skreyti alls konar gler, eins
og blómavasa, kertaluktir, glerbakka
og annað slíkt. Einnig hef ég verið
að taka að mér fataviðgerðir og
rennilásaskipti,“ segir Elín Dögg
þegar hún var beðin um að segja
frá helstu verkefnum sínum.
Frábærar viðtökur
Elín Dögg segist aldrei hafa átt von
á þeim viðtökum sem hún hefur
fengið, þær hafi verið frábærar.
„Já, viðtökurnar hafa farið langt
framar mínum vonum enda hef ég
haft meira en nóg að gera. Þegar
sem mest var í grímusaumnum þá
vorum við öll fjölskyldan að hjálpast
að og ég sjálf var að vinna frá því
eldsnemma á morgnana og langt
fram á kvöld. Nú er vinnudagurinn
orðinn miklu eðlilegri. Mér finnst
öll verkefnin sem ég tek að mér
skemmtileg og gefa mér ánægju.
Það er líka gaman að fá skilaboð frá
góðum viðskiptavinum, sem segjast
vera ánægðir með það sem ég hef
gert. Skemmtilegast finnst mér þá
þegar ég fer í Bónus á Selfossi og
sé að fólk er með grímur á andlitinu
frá mér, það er góð tilfinning,“ segir
Elín Dögg og hlær.
Gott að vinna í sveitinni
Elín Dögg segir einstaklega gott að
vinna í sveitinni því þar er lítið áreiti
og lítil umferð, hún geti því einbeitt
sér að því sem hún er að gera. „Ég
er með nokkuð góða aðstöðu fyrir
verkefnin mín og er alltaf að. Ég er
á Facebook, „Saumað í sveitinni“,
fyrir þau sem vilja sjá hvað ég er að
gera og setja sig í samband við mig.
Ég stefni líka á að opna heimasíðu
þar sem yrði hægt að versla beint
við mig. Ég er þakklát fyrir alla sem
hafa keypt vörur af mér og hlakka til
komandi tíma,“ segir saumakonan í
sveitinni að lokum. /MHH
LÍF&STARF
„Saumað í sveitinni“ – nýtt fyrirtæki Elínar Daggar Arnarsdóttur á Litluflöt í Holtum:
Saumar Covid-grímur, hestaábreiður
og merkir fatnað og reiðtygi
Elín Dögg Arnarsdóttir að stoppa í buxur á vinnustofunni sinni. Hún er fædd
og uppalin í Mosfellsbæ árið 1983, dóttir Arnars Stefánssonar í Litlagerði og
Kristínar Helgu Þorsteinsdóttur. Hún er gift Vigni Frey Þorsteinssyni og eiga
þau þrjú börn, elsta 17 ára, sem stundar nám á hestabrautinni á Selfossi,
svo er drengurinn, 14 ára, og yngsta barnið, sem er stelpa, 9 ára, og þau
eru í Laugalandsskóla í Holtum. Myndir / Einkasafn
Hestaábreiðurnar frá Elínu Dögg hafa slegið í gegn enda hefur hún vart
undan að afgreiða pantanir.
Elín Dögg hefur saumað um 700
Covid-grímur, sem mikil ánægja er
með hjá þeim sem hafa keypt þær
hjá henni.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra:
Undrun og vonbrigði yfir lágu framlagi
til uppbyggingar í fjórðungnum
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra hefur lýst yfir
undrun og vonbrigðum yfir lágu
framlagi úr Landsáætlun um
uppbyggingu innviða á Norður
landi vestra. Af 86 verk efnum
sem skilgreind eru í áætluninni
eru aðeins þrjú á Norðurlandi
vestra sem fá samtals 1% af
þeirri heildarfjárhæð sem úthlut
að er árin 2021–2023.
Lögð var fram á fundi stjórnar
í liðinni viku yfirlit yfir skiptingu
þeirra fjármuna sem til úthlutunar
komu úr Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða og Landsáætlun um
uppbyggingu innviða til verndar
náttúru og menningarsögulegum
minjum. Verkefnin á Norðurlandi
vestra sem eru í landsáætluninni
eru á Hegranesi og Örlygsstöðum
í Skagafirði og Hvítserkur í
Húnaþingi vestra.
Óska eftir rökstuðningi
Framkvæmdastjóra samtakanna
var falið að óska eftir rökstuðn-
ingi fyrir þessari ráðstöfun og
jafnframt að óska eftir fundi með
umhverfis- og auðlindaráðherra
ásamt formanni verkefnisstjórnar
um stefnumarkandi áætlun um
uppbyggingu innviða til verndar
náttúru og menningarsögulegum
minjum. /MÞÞ
Hvítserkur í Húnaþingi vestra.
Frá Skagafirði. Mynd / HKr.