Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202136
SAGA MATAR&DRYKKJA
Fyrsti Evrópski ullardagurinn:
Framlag Íslands var meðal annars
myndband um hvernig garn verður til
Fyrsti Evrópski ullardagurinn var
haldinn á föstudaginn. Ísland var
þátttakandi í viðburðinum sem fór
fram með fjarfundarfyrirkomulagi
en um útsendingu sá sjónvarpsstöð
í Róm á Ítalíu.
Ísland er aðili að félagsskap sem
stofnaður var utan um þennan viðurð
og heitir European Wool Exchange
og er Hulda Brynjólfsdóttir í forsvari
fyrir íslensku þátttakendurna,
en hún er framkvæmdastjóri
smáspunaverksmiðjunnar Uppspuna
og sauðfjárbóndi í Lækjartúni nálægt
austurbökkum Þjórsár. „Heitið á
félagsskapnum er skammstafað EWE,
en það er enska orðið yfir kvenkyns
sauðkind.“
Róandi handavinna
„Á Kýpur er prófessor í
skurðlækningum, sem kominn
er á eftirlaun, styrktur af
landbúnaðarráðuneytinu þar í landi
til að efla vitund fólks fyrir evrópskri
ull og nýtingarmöguleikum hennar.
Hann veitti því athygli í sínu starfi
að fólk, sem kom með prjónana með
sér í skurðaðgerð, var ekki eins stress-
að þegar það kom í aðgerð og yfirleitt
fljótara að jafna sig eftir aðgerðir en
þeir sem ekki höfðu neitt milli hand-
anna.
Heilbrigðisfólk fór að velta
fyrir sér þessari staðreynd og nota
handavinnu til að aðstoða fólk sem á
við veikindi að stríða eða er að jafna
sig eftir aðgerðir. Það varð strax
kappsmál að nýta efni sem væri
náttúruvænt og gott fyrir umhverfið til
að nota í handavinnuna og kom ullin
þar sterk inn. Ákveðið var að leita
leiða til að sameina gæði ullarinnar
og handavinnu sem læknisaðferð og
sýna fólki fram á að ull er hráefni
sem vert er að sýna virðingu og nýta
betur en gert er í dag.
Stofnaður var hópur um verkefnið
sem síðan var víkkaður út til fleiri
landa í Evrópu og innan skamms
voru komnir fulltrúar í hópinn úr
fjölmörgum Evrópulöndum,“ segir
Hulda um forsögu þessa viðburðar.
Fræðslumyndbönd um
ullarvinnslu
„Annar hópur í Evrópu sem í
eru framleiðendur ullar, bændur,
ullarvinnslufólk og vísindafólk tengt
ull, sameinaðist þessum hópi í því
að tala máli ullar á sem víðustum
grunni og ákveðið var að halda
fyrsta Evrópudag ullarinnar 9. apríl
síðastliðinn,“ útskýrir Hulda.
Hún fór því á stúfana og hafði
samband við tengiliði sína um allt
land og hvatti þá til að taka þátt í
deginum á einn eða annan hátt og
láta vita af því á Facebook eða öðrum
miðlum.
„Evrópska ullardeginum var
streymt beint frá Róm á Ítalíu frá
því klukkan átta um morguninn til
klukkan 17. Þangað sendi fólk úr
öllum löndum inn myndbönd eða
fréttaglærur um ull og hvað verið er
að gera í þeirra landi fyrir ull og úr ull.
Ég sendi til að mynda inn myndband
um hvernig garn verður til sem heitir
How yarn is made. Í myndbandinu
fer ég yfir ferlið frá fjárhúsi til
fullunninnar flíkur á skýran og lifandi
hátt,“ segir Hulda.
Góð þátttaka um allt land
„Þetta var alveg frábær dagur. Það var
svo gaman hversu vel fólk tók í þetta
og hversu mikið var gert.
Um allt land voru uppákomur eins
og leyfilegt var að hafa þær nú þegar
Covid setur okkur hömlur. Fólk hittist
í smáum hópum og prjónaði, spann, óf
eða eitthvað annað tengt ull. Opið var
í verslunum og afslættir á ullargarni
eða ullarvörum hér og þar um landið.
Ég sá til dæmis útsendingu frá
Prjónagleðinni á Blönduósi, þar sem
þau fóru í heimsókn í Skagafjörð og
víðar og hittu þar handverksfólk við
vinnu sína og sýndu beint frá því, og
einnig í fjárhús í Húnavatnssýslunni,
enda nauðsynlegt að leyfa kindinni
sem gefur okkur þetta hráefni að vera
með í þessum viðburði.
Í Eyjafirði stóð Handraðinn
fyrir þremur viðburðum (vegna
fjöldatakmarkana) í firðinum. Það
var prjónað og ofið og spunnið á
hverjum stað og samvera nýtt í að
búa til gersemar úr ull.
Í Uppspuna komu Spunasystur
saman með rokkana sína og horfðu
saman á streymið frá Ítalíu og í
Þingborg og Ullarselinu á Hvanneyri
var opið og tilboð í gangi.
Forystusetrið opnaði sýningu um
ull af forystufé og ætlaði að vera með
prjónakeppni en henni var frestað
vegna samkomutakmarkana.
Gilhagi sýndi frá vinnslunni sinni
og þau í ÍSTEX stóðu vaktina og unnu
ull allan daginn.
Við í Uppspuna fengum að taka
yfir Instagram-reikning frá hópnum
Prjónum saman og sýna frá vinnslunni
og okkur sjálfum allan daginn, auk
þess að vera sýnileg á okkar eigin
miðlum, þannig að það var reynt að
vera eins víða og áberandi og við
komumst upp með og ég held að
það hafi bara tekist,“ segir Hulda um
þátttökuna á Evrópska ullardeginum.
Gekk ótrúlega vel
Hulda segir að streymisútsendingin
hafi tekist mjög vel og hafi komið
á óvart hversu vandræðalítið allt
saman gekk fyrir sig, miðað við
hversu umfangsmikinn viðburð var
að ræða.
Ég dáðist alveg að tímasetningum
og hversu skemmtileg mörg
myndböndin voru. Ég á að sjálfsögðu
eftir að horfa á eitthvað af þessu, en
það er hægt að fara inn á Facebook-
síðu viðburðarins til að horfa á
streymið. Auðvitað eru einhverjir
hnökrar sums staðar, en þetta voru
25 lönd eða meira sem tóku þátt í
þessu og sendu inn efni og þá eru
líkur á að eitthvað sé ekki fullkomið.
Ég mæli með að kíkja á þetta, það er
mjög gaman að sjá hvað Evrópubúar
eru að fást við.
Ég á eftir að fá fréttir frá nokkrum
aðilum um hvað gert var, en það var
mjög gaman að sjá viðbrögðin og
finna hvað fólk var áhugasamt og
tilbúið til að taka þátt í þessu með
mér. Ég get sagt frá mörgu á næsta
fundi með Ullarhópunum í Evrópu.“
Verður örugglega framhald
Hulda gerir fastlega ráð fyrir að
framhald verði á slíkum viðburðum,
enda sé talað um „fyrsta Evrópska
ullardaginn“ í heitinu. „Það var
allan tímann gert ráð fyrir að þeir
yrðu fleiri. Það er gríðarlegur áhugi
á ull í heiminum öllum. Prjónafólk
sækir orðið meira og meira í ullina.
Spunafólk, vefarar, þæfingarfólk,
heklarar, útsaumur – nefndu það, það
er hægt að nota ull í allt mögulegt.
Á næstu dögum munu liggja
fyrir niðurstöður úr Ullarþoninu sem
Textílmiðstöðin á Blönduósi stóð
fyrir um daginn og gaman að sjá hvað
kemur út úr þeirri hugmyndavinnu.
Ég sé ekki annað en að ull eigi sér
glæsta framtíð, því ull er gull.“ /smh
Hér eru Ingibjörg Sveinsdóttir og Sigurlaug Steingrímsdóttir, Spunasystur
í Uppspuna. Mynd / Úr einkasafni
Hulda Brynjólfsdóttir í Uppspuna er í forsvari fyrir íslensku þátttakendurna. Mynd / smh
Landakort þar sem búið er að merkja öll þau lönd sem tóku þátt.
LÍF&STARF
Bænda
29.
apríl