Bændablaðið - 15.04.2021, Page 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202144
Að flytjast búferlum og víkka
þar með sjóndeildarhringinn
er gott veganesti út í lífið. Ég
og maðurinn minn tókum þá
ákvörðun að flytjast búferlum
til Noregs á sínum tíma.
Ég stundaði nám við lagadeild
háskólans í Ósló og lauk þaðan
mastersprófi. Í framhaldi
starfaði ég síðan hjá sendiráði
Íslands í Osló. Maðurinn minn
er búfræðingur að mennt og
aflaði hann sér frekari reynslu
innan norska landbúnaðarins.
Víkkaði hann þar með sinn
landbúnaðarsjóndeildarhring. Við
bjuggum alls sex ár í Noregi. Fyrst
í Heiðmörk og síðar í litlum bæ
sem heitir Frogner. Landbúnaður
á hug og hjörtu okkar og stundum
við í dag mjólkurframleiðslu í
Rangárþingi.
Horfum til Noregs – ferðir til
og frá vinnu niðurgreiddar fyrir
landsbyggðarfólk
Samgöngur í Noregi eru góðar og
auðvelt að stunda nám eða atvinnu
fyrir þá sem búa á landsbyggðinni.
Algengt er að vinnustaðir bjóði
starfsmönnum að vinna heima hluta
úr viku eða eftir öðru fyrirkomulagi,
svokallað hjemmekontor. Það eru
ekki eingöngu góðar samgöngur og
sveigjanlegur vinnutími sem styrkir
búsetu á landsbyggðinni í Noregi
heldur einnig fjárhagslegir hvatar af
hálfu hins opinbera. Ferðir til og frá
vinnu eru niðurgreiddar sem nemur
fastri fjárhæð fyrir hvern ekinn
km. Önnur leiðin þarf að vera að
lágmarki 33 km og er niðurgreiðslan
óháð því hvernig viðkomandi kemur
sér til vinnu, hvort heldur með lest,
strætó, einkabíl eða í samfloti með
öðrum. Ef hjón keyra saman þá getur
hvort um sig sótt um niðurgreiðslu.
Sértækur stuðningur fyrir
ákveðin búsetusvæði
Í Noregi eru fjárhagslegir
byggðahvatar fyrir ákveðin
búsetusvæði. Meginmarkmiðið er
að skapa aðlaðandi búsetuskilyrði
fyrir fjölskyldur í þeim tilgangi að
styrkja og efla brothættar byggðir.
Fjárhagslegu byggðahvatarnir fela
m.a. í sér lægri tekjuskatt, niður
færslu á námslánum sem og niður
fellingu námslána fyrir grunn
skólakennara. Þessu til viðbótar
eru fyrirtæki á svæðinu undanþegin
tryggingargjaldi.
Við hjónin keyrðum eitt sumarið
til Þrándheims. Vorum við heilluð
af því hversu blómleg og lifandi
landsbyggðin er í Noregi, litlir
þéttbýliskjarnar allt um kring og
iðandi mannlíf. Það er gömul saga
og ný að það er margt sem við getum
lært af frændum okkar í Noregi.
Víkkum sjóndeildarhring
byggða mála á Íslandi. Sköpum
fjár hagslega byggðahvata. Eflum
sveigjan leika atvinnulífsins. Glæð
um landsbyggðina nýju lífi – fyrir
Ísland allt.
Heiðbrá Ólafsdóttir
Höfundur er lögfræðingur,
kúabóndi og formaður
Miðflokksdeildar Rangárþings.
Heimildir:
https://www.regjeringen.no/no/
tema/kommuner-og-regioner/
regional--og-distriktspolitikk/
Berekraftig-regional-
utvikling-i-nord/virkemidler-i-
tiltakssonen/id2362290/
https://www.smartepenger.no/
skatt/640-reiseutgifter
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
jarðræktarráðgjöf
Ráðgjafarmiðstöð Land búnaðarins
býður upp á ráðgjafarpakka í
jarðrækt sem nefnist Sprotinn.
Á þeim sjö árum sem liðin eru
síðan fyrst var boðið upp á
jarðræktarráðgjöf í pakkaformi
hefur Sprotinn tekið breytingum
til að koma betur til móts við
bændur og til að fylgja eftir þróun
og breytingum sem orðið hafa.
Ýmsir kostir
Þeim bændum sem nýta sér
ráðgjöfina hefur fjölgað jafnt og
þétt enda eru ýmsir kostir sem
fylgja því að vera í Sprotanum. Má
þar nefna aðstoð við skráningar á
jarðræktarskýrslum í Jörð.is, skil
gagna vegna jarðræktarstyrkja og
landgreiðslna, viðhald túnkorta og
gerð áburðaráætlunar sem er yfirleitt
lokaverkefni Sprotans á hverju ári.
Auk þessa er heimsókn ráðunautar
að hausti sem hægt er að nýta til
skrafs og ráðagerða og hugsanlega
jarðvegssýnatöku og ekki er innheimt
komugjald vegna hennar. Þess ber
að geta að hægt er að velja á milli
tveggja misstórra pakka, það er 7
og 11 klukkutíma. Í þeim stærri er
meira svigrúm til frekari ráðgjafar
svo sem vegna ræktunaráætlunar eða
annarra þátta sem bóndi óskar eftir og
svigrúm fyrir tvær heimsóknir á búið.
Sveigjanleiki innan Sprotans
Markmiðið með Sprotanum er að
veita bændum markvissa ráðgjöf
í ræktun og leiðbeina varðandi
jarðræktarskýrsluhald í Jörð.is, með
það að leiðarljósi að bæta nýtingu
áburðar og hagkvæmni fóðuröflunar.
Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða
ráðgjöf þannig að hægt sé að þjónusta
hvern og einn eftir þörfum. Þannig
getur hver bóndi ákveðið í samráði
við ráðunaut hvað leggja eigi áherslu
á en það er sérstaklega gott þegar
bændur nýta sér ráðgjöf í Sprota
árlega. Rétt er að benda á að auðvelt
er að aðlaga ráðgjöf innan Sprotans
að útiræktun á grænmeti.
Stækkandi hópur
Á síðasta ári voru rúmlega 50 býli
sem nýttu sér jarðræktarráðgjöf
í gegnum Sprotann. Eitt af því
sem gert er fyrir hvert bú er að
reikna og setja fram kostnað vegna
áburðarnotkunar miðað við skráða
uppskeru, sjá meðfylgjandi mynd.
Vert er að benda á að upplýsingarnar
byggja á skráningum í Jörð.is og ef
villa er í þeim kemur hún fram við
alla greiningu sem unnin er út frá
þeim. Því er mjög mikilvægt að
vanda alla skráningu til að gögnin
gefi sem réttasta mynd hverju sinni.
Þegar myndin er skoðuð er áhugavert
að sjá mikinn breytileika milli búa.
Þórey Gylfadóttir
jarðræktarráðunautur RML
thorey@rml.is
Beingreiðslur í garðyrkju – krafa um skýrsluhald:
Kynningarfundur RML um skýrsluhald í Jörð fyrir ylræktendur
Í Reglugerð um stuðning við
garðyrkju (nr. 1273 2020)
stendur í 7. gr. að skilyrði fyrir
beingreiðslum sé fullnægjandi
skil á skýrsluhaldi. Í stuttu máli
þýðir þetta að til þess að fá
beingreiðslur, þurfa ylræktar-
bændur sem fram leiða afurðir
til manneldis nú að skrá rækt-
un sína í skýrsluhaldsforritið
Jörð.
Forritið hefur hingað til verið
notað til skýrsluhalds í jarðrækt og
útiræktun matjurta. Vegna kröfu um
skýrsluhald í ylrækt hefur forritið
verið uppfært þannig að nú er hægt
að skrá þar ræktun í gróðurhúsum
í samræmi við kröfur í reglugerð.
Gróðurhús sem skráð eru í fasteigna
skrá eru tengd við lögbýli/garðyrkju
stöð, og með aðgangi að Jörð geta
bændur skráð ræktun í húsum sínum
þar, og uppfyllt þannig kröfur um
skýrsluhald. Í lok árs eru ræktun
arupplýsingar svo teknar saman í
skýrslu sem fylgir uppgjöri vegna
beingreiðslna.
Ráðgjafarmiðstöð land bún að
arins boðar til rafræns kynningar
fundar um skýrsluhald í ylrækt
fimmtudaginn 29. apríl nk. kl.
15.00. Þar verður farið yfir helstu
atriði skýrsluhaldsins, sýnd nokk
ur dæmi um skráningar í Jörð og
svarað fyrirspurnum.
Hægt er að skrá sig á fund
inn með tölvupósti á helgi@
rml.is. Æskilegt er að bændur fái
sér aðgang að Jörð og skoði forritið
fyrir fundinn.
Mögulegt er að sækja um aðgang
að Jörð í gegnum Bændatorgið eða
hafa samband við þjónustufulltrúa í
síma 5165000 eða með tölvupósti
á netfangið rml@rml.is.
Glæðum landsbyggðina nýju lífi
SAMFÉLAGSRÝNI
Heiðbrá Ólafsdóttir, Jóhann Rúnar Sævarsson og hundurinn Boli. Myndin
er tekin í Geirangerfjord í Noregi sumarið 2015.
Bænda
29. apríl