Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 45
Formaður Bændasamtakanna
ritaði leiðara í síðasta Bænda blað
(11. mars 2021) undir fyrirsögn-
inni „Sameinumst um mikilvæg
verkefni“. Mæli hann allra manna
heilastur. Í greininn er formað-
urinn hugsi yfir starfsmönnum
Landbúnaðarháskólans og segir:
„Nú skrifa fræðimenn greinar og
skýrslur um ofbeit á Íslandi sem sé
svo umfangsmikil og umtalsverð
að eina lausnin liggi hreinlega í
því að fella allan bústofn.“ Ja
hérna! Að fella beri nautgripi,
hesta, kindur og svín? Jafnvel
hænsni? Varla hefur slíkum
skoðunum verið haldið á loft af
starfsmönnum LbhÍ. En áratug-
um saman hefur verið bent á að á
sumum svæðum landsins er verið
að beita vistkerfi sem eru í slæmu
ástandi og hlífa ætti fyrir beit.
Þessar athugasemdir byggja
á faglegum aðferðum við mat á
vistkerfum, m.a. stöðu og virkni
jarðvegs og gróðurs, þar sem tekið
er tillit til jarðvegsrofs, möguleika
kerfisins til að miðla vatni, orku-
náms plantna og hringrásar nær-
ingar. Þar sem núverandi staða
visteininga er borin saman við eðli-
lega virkni á hverju svæði sem er í
samræmi við viðurkennda alþjóð-
lega aðferðafræði við mat á landi.
Tilraunir til að taka á þeim
vanda sem felst í hrundum vistkerf-
um landsins hafa misheppnast, m.a.
gæðastýring í sauðfjárrækt, sem
tók gildi upp úr aldamótum. Hún
varð þó ekki virk fyrr en tæpum
áratug síðar. Síðan leið annar ára-
tugur og í ljós kom að þetta kerfi
er ekki að virka og fyrir því hafa
verið færð skýr og fagleg rök.
Síðast var komið á samvinnuver-
kefni á vegum Landgræðslunnar og
Félags sauðfjárbænda um að meta
og vakta ástand gróðurauðlinda –
GróLind. Fyrstu niðurstöður þess
verkefnis hafa nú verið birtar og
þær staðfesta allt sem áður hefur
verið sagt um ástand landsins. Það
hefur löngum tíðkast að skjóta
sendiboðann, ekki síst ef skortir
vilja til að horfast í augu við stað-
reyndir. En það fer formanninum
engan veginn að munda slík skot-
vopn og afneitun á slæmu ástandi
lands þar sem það á við er alls ekki
hagur bændastéttarinnar.
Formaðurinn ritaði í leiðar-
ann „Væri ekki nær að skólinn
og þeirra starfsmenn væru með
uppbyggilegar leiðbeiningar til
bænda hvernig betur mætti fara
heldur en að mála þá sem skúrka
náttúrunnar?“
Reyndar er það svo að leiðbein-
ingar um hvað betur mætti fara
hafa legið fyrir áratugum saman:
hætta beit á verst förnu svæðun-
um, minnka beit þar sem það á
við. Þessu er unnt að ná fram með
stórbættu styrkjakerfi í landbúnaði
(eða til dreifbýlis öllu heldur), þar
sem boðið væri upp á fækkun fjár,
sérstaklega á þeim svæðum sem
henta illa til framleiðslunnar. Um
leið ætti að styrkja aðra valkosti
við framleiðslu – m.a. í takt við
breytt fæðuval þjóðarinnar og um
leið stuðla að endurheimt land-
gæða. Endurskoðun á gæðastýr-
ingu í sauðfjárrækt verður að taka
mið af faglegum sjónarmiðum er
varða viðmið og sjálfbæra land-
nýtingu – sú reglugerð sem nú er
í gildi og var harðlega mótmælt af
Landgræðslunni leiðir „grænþvott-
ar“, sem skaðar hag þeirra sem nýta
gott land til framleiðslunnar. Þá
væri ekki úr vegi að hætta fram-
leiðslu á lambakjöti umfram eftir-
spurn á innanlandsmarkaði.
Ég tek undir lokaorð formanns-
ins í leiðaranum um að „auka veg
Landbúnaðarháskóla Íslands“ og
þar mættu samtök bænda vera mun
virkari. En ég hafna því alfarið að
stofnunin sé notuð „í pólitískum
áróðri gegn bændum“. Fræðafólk
í háskólum setur fram niðurstöð-
ur sínar á eigin ábyrgð. Íslenska
háskólakerfið hvetur fagfólk til
samfélagsþátttöku á grunni sinn-
ar þekkingar – sem betur fer.
Háskólastofnanir sem slíkar hafa
sjaldnast álit á tilteknum faglegum
álitamálum. Það er ekki hlutverk
háskólafólks að horfa fram hjá því
sem miður fer á þeim fagsviðum
sem það stundar. Þvert á móti: því
ber beinlínis að rannsaka og benda
á faglegar staðreyndir, t.d. um bágt
ástand vistkerfa landsins og ranga
nýtingu þar sem hún á sér stað.
Það er rétt hjá formanninum
að við þurfum öll í sameiningu að
takast á við brýnustu verkefnin.
Eitt brýnasta verkefni íslensks
samtíma er að takast á við ranga
landnýtingu þar sem hún á sér stað,
endurheimta hrunin vistkerfi og
um leið að takast á við loftslags-
vanda jarðarinnar.
Ólafur Arnalds,
prófessor við Landbúnaðar-
háskóla Íslands.
LÍF&STARF
Landbúnaður á forsendum morgundagsins
Nauðsynleg og tímabær uppstokkun
á íslensku landbúnaðarkerfi er
yfirvofandi. Þar kemur margt til.
Tækninýjungar, breytt viðhorf og
öðruvísi neysla blasa við ef horft
er yfir hið alþjóðlega matvælasvið.
Þau ríki og búgreinar sem aðlagast
þessu munu lifa af.
Að undanförnu hefur
undirritaður vakið athygli á því
í greinum og viðtölum að kröfur
varðandi umhverfismál, gegnsæi
og dýravelferð hljóta að verða til
grundvallar opinberum stuðningi við
matvælaframleiðslu á Íslandi. Næsti
búvörusamningur verður allt öðruvísi
en sá sem nú er hálfnaður.
Verðmætasköpun er
grunnur lífskjara
Við munum í auknum mæli sjá
samruna atvinnugreina, meðal annars
í nýjum líftæknifyrirtækjum sem
nýta afurðir plantna og dýra til að
skapa verðmætar afurðir. Við höfum
nokkur nýleg íslensk dæmi þar sem
nýsköpunarfyrirtæki sem vinna með
afurðir plantna eða dýra hafa slitið
barnsskónum og eru að skila milljarða
gjaldeyristekjum fyrir þjóðarbúið.
Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt
að nýta hugvit og menntun til að skapa
verðmæti og útflutningstekjur úr
hreinni íslenskri náttúru. Oft er þetta
verðmætasköpun á sviði fæðubótar-
eða lyfjaiðnaðar sem ekki var til fyrir
fáeinum áratugum. Vart þarf að deila
um að öflug fyrirtæki og atvinnulíf
eru grundvöllur góðra lífskjara hér á
landi til lengri tíma.
Öflug líftæknifyrirtæki í sókn
Algalíf, Ísteka, Primex, Genís og
Kerecis eru dæmi um fyrirtæki
af þessum toga. Öll eiga þau það
sameiginlegt að nýta hugvit og
líftækni til að skapa störf. Öll eru
þau líka til fyrirmyndar þegar kemur
að umhverfismálum, dýravelferð og
öðru er lýtur að samfélagsábyrgð.
Rétt er að nefna alveg sérstaklega
Algalíf og Ísteka, en segja má um
bæði fyrirtæki að þau séu vaxin upp
úr sprotastiginu. Hvort um sig skapar
nú um 40 vellaunuð störf og bæði
skila samfélaginu umtalsverðum
gjaldeyristekjum.
Bindur kolefni og losar súrefni
Bæði þessi fyrirtæki eru einnig til
fyrirmyndar þegar í umhverfis- og
samfélagsmálum. Algalíf, sem
framleiðir fæðubótarefnið astaxanthín
úr plöntu-örþörungum, er líklega eitt
af fáum fyrirtækjum landsins sem
bindur meira kolefni en það losar.
Þetta skýrist af því að hliðarafurð þess
er ekki kolefni sem þarf að jafna eins
og hjá flestum, heldur súrefni sem
losað er út í andrúmsloftið.
Sérstakir samningar
um dýravelferð
Líftæknifyrir tækið Ís teka
er eina afurðafyrirtækið í
íslenskum landbúnaði sem gerir
dýravelferðarsamninga við alla
þá bændur sem það skiptir við.
Fyrirtækið framleiðir verðmætt
lyfjaefni úr hryssublóði. Allt ferlið
er vottað og undir eftirliti dýralækna
og innlendra og erlendra stofnana.
Líftæknifyrirtæki af þessu tagi eru
afar mikilvæg fyrir Ísland. Þau fimm
fyrirtæki sem nefnd voru hér að
framan skila líklega fjórum til fimm
milljörðum króna af gjaldeyri til
þjóðarbúsins á ári. Fyrir utan auðvitað
að skapa samanlagt um 150 störf.
Skynsamleg auðlindanýting
Mikilvæg forsenda þess að Ísland
geti verið góður staður til að búa
á, er að við nýtum auðlindir okkar
og hugvit til að skapa verðmæti.
Undirritaður hefur að undanförnu
bent á það í nokkrum greinum að
tími sé kominn til að stokka upp
íslenska landbúnaðarstefnu og gera
umhverfismál að hornsteini sem
allt annað hvílir á. Gera ætti ströng
skilyrði um umhverfisábyrgð, gegnsæi
og dýravelferð að forsendum þess að
hið opinbera styðji við landbúnað eða
aðra matvælaframleiðslu. Sem betur
fer eru langflestir bændur, útgerðir
og aðrir sem að þessum greinum
koma, með þessi mál í mjög fínu
lagi. Með vandaðri stefnumótun
sem byggir á bestu fáanlegu
upplýsingum og rannsóknum – og
auðvitað upplýstum spám um hvert
við stefnum – er líklegt að við getum
tryggt framtíðarlandbúnað í sessi.
Þannig gætum við tryggt að komandi
kynslóðir taki við blómlegum sveitum
um allt land. En þá verðum við líka að
vera óhrædd að stíga þau skref sem
nauðsynleg eru og taka ákvarðanir á
þeim forsendum sem hér hafa verið
ræddar.
Svavar Halldórsson
Höfundur er sérfræðingur í
matarmenningu, stefnumótun
og markaðsmálum.
Svavar Halldórsson.
Sendimenn og skotmenn
Ólafur Arnalds.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR
gerðir dráttarvéla
Bænda
bbl.is Facebook