Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202146
Stuttu fyrir páska prófaði ég
Land Rover Discovery Sport
P300e tengil-tvinnbíl sem er
annars vegar með rafmagnsmótor
og hins vegar með bensínvél sem
skila samanlagt 309 hestöflum.
Uppgefin drægni fullhlaðinn á
rafhlöðunni er sögð vera 55 km.
Rafhlaðan dugði stutt í kuldanum
Bíllinn var fullhlaðinn þegar ég
tók bílinn og byrjaði ég strax
á að hávaðamæla bílinn inni í
farþegarýminu á meðan ég var að
keyra á rafhlöðunni. Kuldinn var
mikill (fyrsta daginn af þremur sem
ég var með bílinn), en þrátt fyrir
mikinn kulda mældist hávaðinn á
90 km hraða ekki nema 65,3 db.
Þrátt fyrir -5 stiga frost (virðist
mælast aðeins meiri hávaði hjá mér
í mælingum ef frost er mikið).
Það sem kom mér hins vegar á
óvart var að ég náði ekki að keyra
nema um 25 kílómetra á rafhlöðunni
þar til að bensínvélin fór í gang
(frekar stutt miðað við uppgefna
drægni), en það var kalt og ég
taldi mig vera að keyra mjúklega
á rafmagninu og ekki taka mikið út
úr bílnum.
Langur bíltúr í snjó og hálku
Daginn eftir var tekin langkeyrsla
og bíllinn prófaður við ýmis
akstursskilyrði og á misholóttum
vegum. Bíllinn var á nýrri tegund
óneglanlegra Michelin dekkja og
víða var mikil hálka. Spólvörnin
og deiling afls niður í hjólbarðana
var þannig að það var eins og bíllinn
væri á negldum dekkjum. Svo vel
skilaði hann aflinu niður á veginn
að hann hreinlega mokaðist áfram.
Þegar átti að stoppa var sama sagan,
ABS bremsukerfið sá til þess að
bíllinn bremsaði beint og vel. Hreint
ótrúlega vel, en á tveimur stöðum
tvíprófaði ég bremsun af því mér
fannst bíllinn stoppa óvenjulega vel
miðað við hálku og aðstæður.
Í lok bíltúrsins, sem var rúmir 100
km, sagði aksturstölvan að ég hafi
verið að eyða 8,1 lítra af bensíni,
þrátt fyrir að hafa ekki verið í
neinum sparakstri.
Góður bíll í alla staði
og nánast gallalaus
Að keyra bílinn var í alla staði
þægilegt, sæti góð, rými mikið
bæði frammi í bíl og fyrir
aftursætisfarþega. Þakglugginn
hlýtur að vera æðislegur sé verið að
keyra og úti eru norðurljós á himni.
Þó lægsti punktur sé ekki nema
21,5 cm er uppgefin vatnsdýpt sem
bíllinn má fara í 60 cm.
Hámarksdráttur á kerru með
bremsubúnaði er 2.200 kg.
Farangursrými stórt, eini gallinn
sem ég fann að bílnum er að maður
þarf að kveikja ökuljósin til að fá
ljós aftan á bílinn í björtu til að vera
löglegur í umferðinni.
Varadekkið er það sem ég
kalla „aumingi“ (skárra en ekkert
því „flestir“ tengil-tvinnbílar eru
ekki einu sinni með varadekk).
Hins vegar fannst mér það skrítið
að bíllinn væri ekki með fullbúið
varadekk þar sem það kemst alveg
fyrir í hólfinu þar sem „auminginn“
er samkvæmt minni mælingu.
Fram- og afturrúðuhitararnir
vinna sitt verk hratt
Það hafði snjóað um nóttina
fyrir skiladag á bílnum þannig að
í flestum tilfellum hefði þurft að
skafa allan hringinn. Ég setti bílinn
í gang og á meðan ég hreinsaði
hliðarrúðurnar, sem tók varla meira
en mínútu, voru hitararnir búnir að
bræða bæði af fram- og afturrúðunni.
Verðið á bílnum sem ég prófaði er
9.990.000, en ódýrasti Land Rover
Discovery Sport tengil-tvinnbíllinn
kostar frá 8.890.000, en dýrasti HSE
bíllinn kostar 11.490.000 kr.
Allar nánari upplýsingar um
bílinn má finna á vefsíðunni www.
landrover.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lengd 4.597 mm
Hæð 1.727 mm
Breidd 2.173 mm
Helstu mál og upplýsingar
Það hafði snjóað um nóttina.
Aðeins ein mínúta með rúðuhitarana í gangi og snjórinn var farinn að bráðna.
Finnst alltaf fúlt að þurfa að kveikja handvirkt ljós til að fá afturljósin á.
Vel hljóðeinangraður og lítill hávaði
inni í bílnum á 90.
Gott fótarými fyrir aftursætisfarþega.
Bakkmyndavélin björt og góð þrátt fyrir að þarna var farið að skyggja.
Samkvæmt minni mælingu þá kemst fullbúið varadekk í þetta pláss þar
sem auminginn er.
Óneitanlega fallegur, virkar lítill að utan, en rúmgóður og stór að innan. Myndir / LHJ
Bænda
bbl.is Facebook
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS