Bændablaðið - 15.04.2021, Side 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202148
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Þorsteinn og bróðir hans, Magnús
Helgi, keyptu jörðina af foreldrum
sínum 2004 og bjuggu félagsbúi til
2014 þegar bústofninum var skipt
upp. Steinunn flutti í Haukholt
2012.
Sumarið 2020 keyptu þau svo
hlut Magnúsar og konu hans, Alinu.
Fjölskylda Þorsteins hefur búið
í Haukholtum síðan 1798.
Býli: Haukholt 1.
Staðsett í sveit: Uppsveit Hruna
mannahrepps.
Ábúendur: Þorsteinn Loftsson og
Steinunn Lilja Heiðarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Börnin eru Loftur, 7 ára, Víglundur,
bráðum 6 ára, Heiðdís Hanna, 20
mánaða og fjórða barnið kemur um
svipað leyti og lömbin.
Oftast ein aupair, stundum fleiri,
stundum færri.
Border Collietíkurnar Vísa,
Grýla og Staka.
Stærð jarðar? Um 470 ha.
Gerð bús? Sauðfjárbú með
hrossarækt.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
350 fjár á vetrarfóðrum og 20 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Þeir eru æði misjafnir, eru þessa
dagana mjög litaðir af óléttu
húsfrúarinnar og rúningi bóndans
úti um allar koppagrundir.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Langflest þeirra mjög
skemmtileg en smalamennskur
klárlega í miklu uppáhaldi. Að
sópa og skafa gólfgrindur líklega
þau leiðinlegustu!
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Með svipuðu sniði en vonandi
með betri afurðir eftir á og talsvert
hærra afurðaverði. Vonandi mun
meiri vinnsla afurða heima við.
Hvar teljið þið að helstu
tækifærin séu í framleiðslu
á íslenskum búvörum? Það
þarf að stimpla betur inn
sérstöðu íslenskrar vöru með
tilliti til hreinleika og lítillar
sýklalyfjanotkunar, þar koma
upprunamerkingar sterkar inn. Það
þarf líka að ýta vel undir nýsköpun
og vöruþróun í matvælaframleiðslu
hérlendis.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Um þessar mundir er ekki á neitt að
treysta í þeim efnum! En það þarf
mikið að ganga á svo ekki sé til ostur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Þar sem börnin eru
orðin fleiri en foreldrarnir væri
lygi að segja eitthvað annað en
grjónagrautur.
Foreldrarnir vilja samt koma á
framfæri dálæti sínu á góðu lamba
og hrossakjöti.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Síðasta fjallferð
er ofarlega á listanum. Fyrsta
fjallferðin sem við förum ríðandi
saman hjónin, riðið inn fyrir
Kerlingarfjöll í blíðskaparveðri
(fjórða fjallferðin saman en
Steinunn hafði áður trússað),
komumst að því á fimmta degi að
við ættum von á fjórða barninu
og mjög góðir vinir okkar giftu
sig við afréttarhliðið. Og við
tóku sóttvarnarréttir. Þær gerast
líklega ekki mikið viðburðarríkari,
fjallferðirnar.
Svo verðum við að minnast á vel
heppnaðar kynbótasýningar á
hrossum, erum mjög þakklát fyrir
góðan árangur þar.
Grillað lambakjöt með hvítlauk og rósmarín
Að grilla lambakjötið á þennan
hátt er fljótlegra og auðveldara,
sumsé að hafa kjötið skorið í bita –
en má líka hafa heilt lambalæri en
þá er lengri eldunartími. Að auki
fær kjötið milt bragð og mikið
af dýrindis skorpu af grillinu en
auðvitað má elda lambakjöt í ofni.
Grillað lambakjöt með hvítlauk
og rósmaríni
Hráefni
› 4–5 bitar beinlaust lambakjöt, til
dæmis framhryggur eða innra læri
(eða heilt úrbeinað lambalæri)
› 1/4 bolli jómfrúarólífuolía
› 8 stórir hvítlauksgeirar, marðir og
grófsaxaðir
› 2 msk. hakkað rósmarín
› Salt og nýmalaður pipar
Aðferð
Skref 1
Dreifið lambakjötinu á bretti. Með
úrbeiningarhníf eða skurðarhníf er
lambakjötið skorið í hæfilega stóra
bita. Skerið umframfitu og sinar burt.
Skref 2
Blandið saman ólífuolíu, hvítlauk
og rósmaríni á stóru fati. Bætið
lambakjötinu við og veltið upp úr.
Látið marinerast við stofuhita í
fjórar klukkustundir, snúið nokkrum
sinnum.
Skref 3
Kveikið á grillinu. Kryddið lambið
með salti og pipar; ekki skafa
hvítlaukinn eða rósmarínið af. Grillið
lambið yfir heitum eldi og snúið
oft þar til hitamælir sýnir 60 gráðu
kjarnhita fyrir miðlungs steikt kjöt.
Eldunartíminn er breytilegur eftir
stærð og lögun á lambabitunum sem
valdir eru, allt frá átta mínútum fyrir
200 g stykki í 20 mínútur fyrir 600
g stykki. Flytjið lambakjötið á bretti
og látið hvíla í 15 mínútur. Sneiðið
lambið þunnt og berið fram.
Undirbúningur:
Lambið getur marinerast í kæli yfir
nótt. Látið ná stofuhita áður en grillað
er.
Gott að bera fram með kartöflum og
íslensku grænmeti og villisveppasósu.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Haukholt 1
Gott er að bera kartöflur og íslenskt
grænmeti fram með grilluðu lambakjöti
– og hafa villisveppasósu með.