Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 49
Vesti eru vinsæl í dag og notuð
við öll tilefni. Þetta fallega vesti á
stelpur er prjónað úr Drops Air en
einnig hægt að nota ýmsar aðrar
Drops tegundir.
DROPS Design: Mynstur ai-039-
bn
Stærðir: 2 (3/4) 5/6 (7/8) 9/10 (11/12) ára
Garn: DROPS AIR (fæst í Handverkskúnst)
100 (100) 100 (150) 150 (150) g litur á mynd nr 15,
fjólublá þoka
Prjónar: Hringprjónar: 40-60 cm nr 4, 60-80 cm nr
5. Sokkaprjónar nr 4 og 5 eða sú prjónastærð sem
þarft til að fá 17L x 22 umf = 10x10 cm
Garðaprjón (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
Affelling: Til að koma í veg fyrir að
affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er
hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er
enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á
eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af
(uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
VESTI – stutt útskrýring á stykki:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og
upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið
er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir
sig. Að lokum er prjónaður stroffkantur í kringum
hálsmál og í kringum báða handvegi.
Fram- og bakstykki: Fitjið upp 108 (116) 124
(128) 136 (144) lykkjur á hringprjón nr 4. Prjónið
1 umferð brugðið, tengið í hring, setjið prjónamerki
sem markar upphaf umferðar. Prjónið stroff (= 1L
slétt, 1L brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón nr 5.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 16
(18) 21 (24) 27 (30) cm fellið af lykkjur fyrir handvegi
þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur í umferð, prjónið
næstu 46 (50) 54 (56) 60 (64) lykkjur (= framstykki),
fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 46 (50) 54 (56)
60 (64) lykkjur (= bakstykki) og fellið af síðustu 4
lykkjur í umferð. Látið lykkjur fyrir framstykki hvíla
á prjóni eða setjið þær á þráð á meðan bakstykkið
er prjónað.
Bakstykki: = 46 (50) 54 (56) 60 (64) lykkjur. Byrjið
frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka –
JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í
byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið
af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 1 sinni = 40
(44) 48 (50) 54 (58) lykkjur. Prjónið áfram þar til
stykkið mælist 31 (34) 38 (42) 46 (50) cm. Í næstu
umferð eru felldar af miðju 18 (20) 22 (24) 24 (26)
lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka
fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju
í næstu umferð frá hálsi = 10 (11) 12 (12) 14 (15)
lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið áfram þar til stykkið
mælist 33 (36) 40 (44) 48 (52) cm. Fellið af. Prjónið
hina öxlina alveg eins.
Framstykki: = 46 (50) 54 (56) 60 (64) lykkjur. Byrjið
frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka –
JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í
byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af
2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 1 sinni = 40 (44)
48 (50) 54 (58) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið
mælist 28 (30) 34 (37) 41 (44) cm. Í næstu umferð
eru settar miðju 10 (12) 14 (16) 16 (18) lykkjur á þráð
fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af í hverri umferð
frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af
1 lykkju 3 sinnum = 10 (11) 12 (12) 14 (15) lykkjur
eftir á hvorri öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist
33 (36) 40 (44) 48 (52) cm. Fellið af. Prjónið hina
öxlina alveg eins.
Frágangur: Saumið axlasauma.
Kantur í handvegi: Notið stuttan hringprjón eða
sokkaprjóna nr 4, byrjið frá réttu neðst í handveg
og prjónið upp ca 58 (62) 66 (70) 74 (78) lykkjur
innan við 1 kantlykkju hringinn allan handveginn
(lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff hringinn (= 1L slétt, 1L brugðið) þar
til kanturinn mælist 3 cm. Fellið af með sléttum
lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum
yfir brugðnar lykkjur.
Kantur í hálsmáli: Notið stuttan hringprjón eða
sokkaprjóna nr 4, byrjið frá réttu við axlasauminn
og prjónið upp ca 56 (60) 64 (70) 74 (78) lykkjur
í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur af þræði,
lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið
stroff hringinn þar til kantur í hálsi mælist 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og
brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Vesti á stelpur
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
5 1 7 8 9
3 9 4 5
2 7 8 6
6 7 2 8
9 4 5 2 7
2 6 9 1
1 7 3 2
1 6 5 7
8 9 3 5 6
Þyngst
5 2 1 6 8
7 5 3
1 9
3 6 7 1 8 5
7 4 1 2
8 2 6 4 9 3
6 8
3 5 4
5 9 4 2 8
8 5 9
9 6 7 4
3 1 2 5
1 3 8 5
6 3
9 2 6 7
5 4 6 9
7 9 5 3
2 1 4
1 2 5
9 3 1 4
8 2 3
1 2 6
6 5 7
9 7 6
5 4 2 1
7 9 5
Hefur haldið á
skallaerni og kaktusi
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Heiðrún Anna er í Lundaskóla og
elskar að borða góðan ís.
Nafn: Heiðrún Anna Kristinsdóttir.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Akureyri.
Skóli: 3. bekk í Lundarskóla á
Akureyri.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Sund og myndlist.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hýena og fuglar.
Uppáhaldsmatur: Burrito á
Serranó og mexíkókjúklingasúpa.
Uppáhaldshljómsveit: Daði og
gagnamagnið.
Uppáhaldskvikmynd: Raya og
síðasti drekinn.
Fyrsta minning þín? Þegar ég
söng kalli litli könguló fyrir ömmu
og afa.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu
á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og
handbolta og er í myndlistarskóla.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Kokkur og
dýrafræðingur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég hélt á skallaerni
á Tenerife og þegar ég hélt á kaktus
með berum höndum (það geri ég ekki
aftur).
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt
um páskana? Hafði gaman með
fjölskyldunni, spilaði og borðaði ís
– ég elska ís!
Næst » Aron Gabríel Samúelsson,
frændi minn.
H
eim
ild: Prentm
iðlakönnun G
allup. K
önnunartím
i okt. - des. 2020.
BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
36,2% fólks á
landsbyggðinni
les Bændablaðið
Hvar auglýsir þú?
36,2%
Lestur Bændablaðsins
á landsbyggðinni
Lestur Bændablaðsins
á höfuðborgarsvæðinu
17,8% 24,3%
Lestur landsmanna á
Bændablaðinu
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
Lestur Bændablaðsins
Hafðu samband
Næsta blað kemur út 29. apríl