Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202150
SAMFÉLAGSRÝNI
Undanfarin ár hefur vægi
ferðaþjónustunnar í efnahags
lífi landsins aukist til mikilla
muna. Þetta er öllum ljóst og
blasir við nú þegar heimsfarald
ur kórónuveiru hefur orðið þess
valdandi að þjónusta við erlent
ferðafólk hefur tímabundið svo
gott sem lagst af með tilheyr
andi tekjufalli. Miklu skiptir að
nýta það andrými sem skapast
hefur við þessar aðstæður, huga
að mögulegum sóknarfærum í
greininni í framtíðinni, þeirri
verðmætasköpun og viðspyrnu
sem þau geta veitt ef vel er á
málum haldið.
Gangi fyrirætlanir stjórnvalda
eftir varðandi aukna dreifingu
erlendra gesta sem sækja landið
heim er ljóst að fjöldi áfangastaða
bíða þess að verða uppgötvaðir
vítt og breitt.
Fram til þessa hefur það oft
verið handahófskennt og jafn-
vel undir erlendum stórstjörn-
um og samfélagsmiðlum komið
hvaða staðir njóta mestra vin-
sælda hverju sinni. Má af því
tilefni nefna t.d. flugvélaflakið
á Sólheimasandi, Fjaðrárgljúfur
og nú síðast Stuðlagil sem öllum
að óvörum og án formlegrar
markaðssetningar hefur fest sig
í sessi sem áfangastaðurinn sem
allir verða að heimsækja.
Stuðlagil er á margan hátt
dæmigert fyrir náttúruperlur víða
um land. Það er úr alfaraleið,
landeigendur eru fleiri en einn,
samgöngur geta verið erfiðar,
aðstaða fyrir ferðafólk af skorn-
um skammti og áfram mætti telja.
Með það að markmiði að
búa til ferli fyrir uppbyggingu
á áfangastaðnum Stuðlagili
sótti sveitarfélagið Múlaþing,
í samstarfi við Austurbrú
og landeigendur, um styrk
til sértækra verkefna á
sóknaráætlunarsvæðum, í
samræmi við stefnumótandi
byggðaáætlun fyrir árin 2018–
2024. Markmið verkefnisins var
að samþætta hagsmunaaðila,
opinbera stefnumótun,
staðbundna stefnumótun,
sjálfbærni og ábyrga nýtingu
og gæði og fagurfræði í
hönnun innviða. Þriggja manna
valnefnd fór yfir umsóknir og
gerði tillögur til samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra sem
ákvað að styrkja verkefnið ekki.
Í framhaldinu leituðu
Múlaþing og Austurbrú eftir
samstarfi við atvinnu- og
nýsköpunarráðherra sem brást
vel við og hefur nú verið gengið frá
samningi vegna verkefnisins. Líkt
og fram hefur komið er Stuðlagil
lýsandi dæmi um sjálfsprottinn
áfangastað sem nýtur mikilla
vinsælda. En þótt gilið sé einstakt
þá er það ekkert einsdæmi. Víða
um land eru náttúruperlur sem
enn hafa ekki fengið þá athygli
sem þeim ber. Þegar og ef það
gerist skiptir máli að hægt sé að
bregðast hratt við með það fyrir
augum að varna skemmdum á
viðkvæmu náttúrufari, tryggja
öryggi ferðamanna og atvinnu- og
verðmætasköpun í heimabyggð.
Stuðningur ráðuneytisins nú gerir
okkur kleift að ganga skipulega til
verks. Með þessum hópi öflugra
samstarfsaðila verður til reynsla
og þekking sem vonandi mun
nýtast um land allt í framtíðinni
og leggja þannig grunninn að
verklagi við uppbyggingu nýrra
áfangastaða sem sómi er að.
Gauti Jóhannesson
forseti sveitarstjórnar
Múlaþings.
Við eldri erum þverskurður af
þjóðfélaginu, sum vellauðug,
önnur bláfátæk og allt þar á milli.
Tölfræðin segir okkur að Íslend
ingar 67 ára og eldri séu um 45.000.
Þar af fá um 37.000 greiðslur frá
Tryggingastofnun ríkisins (Tr.),
um 8.000 hafa annaðhvort ekki
óskað eftir eftirlaunum, eða hafa
mánaðartekjur yfir 616.184 kr.
og missa því réttinn til eftirlauna.
Um 10.000 eru talin lifa undir
fátæktarmörkum, þar af hafa um
4.500 eingöngu eftirlaun frá Tr.
(hámark kr. 266.033 fyrir skatt).
Að meðaltali höfum við eldri
það ágætt fjárhagslega. Er einhver
ástæða til að við, sem erum svo
heppin að hafa náð þessum aldri,
höfum áhyggjur af þeim sem lægstar
hafa tekjurnar, þ.e.a.s. ef við fyllum
ekki þann hóp? Mega þau ekki bara
eiga sig?
Við segjum nei. Þjóðfélagið
allt ber ábyrgð á því að allir eldri
borgarar geti lifað mannsæmandi
lífi. Í hópnum með lökustu afkomuna
er m.a. fólk sem hefur unnið
láglaunastörf, t.d. umönnunarstörf.
Störf sem eru nauðsynleg fyrir
gangverk þjóðfélagsins. Nauðsynleg
fyrir ríka jafnt sem fátæka. Eitt
ríkasta þjóðfélag í heimi getur ekki
látið fátækt viðgangast.
Handónýt kjarabarátta
• Ófáar eru greinarnar sem fólk
ritar um nauðsyn þess að bæta
kjör hinna verst settu og afnema
skerðingar.
• Mörg þeirra 56 félaga eldri
borgara um land allt álykta á
aðalfundum sínum um bætt
kjör.
• Landsfundir Landssambands
eldri borgara (LEB) samþykkja
langa texta í sömu veru.
• Stjórn LEB situr endalaust
á fundum í ráðuneytum og
nefndum Alþingis.
• Stjórnmálaflokkarnir allir
sem einn hafa bætt kjör okkar
á loforðalistum sínum fyrir
kosningar vel vitandi að við
höfum öll atkvæðisrétt og erum
ódýr atkvæði – óþarfi að efna
loforðin.
Nánast ekkert þokast í rétta átt.
Hvað er að? Við eldri erum veikur
þrýstihópur:
• Sköpum lítil verðmæti, en
tókum fullan þátt í að byggja
upp það þjóðfélag sem við
höfum í dag.
• Erfitt fyrir stjórnvöld að vita
hvað við raunverulega viljum
því okkur skortir samstöðu,
tölum út og suður, einn vill
þetta, annar hitt til að bæta kjör
og sumum er slétt sama, þurfa
engar kjarabætur.
• Við erum slök í að leiðrétta
rangfærslur þeirra sem landinu
stjórna og annarra um ágæt kjör.
Afkomendur okkar trúa bullinu!
– Hvað er til ráða? Við getum
breytt baráttuaðferðum:
Fólk hefur viðrað ýmsar
hugmyndir:
• Stofna stjórnmálaflokk eldri
borgara. – Við eldri erum flest
vön að styðja sama flokk og
treg til að breyta. Auk þess yrði
flokkur með eitt aðalbaráttumál
aldrei sterkur á þingi, ef
hann væri svo heppinn að ná
lágmarks fylgi.
• Semja við stjórnmálaflokk
um samstarf. – Hvorum
megin lenti sá flokkur, í
stjórn eða stjórnarandstöðu?
Í samsteypustjórn þarf að
semja um málamiðlanir og í
stjórnarandstöðu eru flokkar
áhrifalitlir. Og við höfum bitra
reynslu af kosningaloforðum
sem aldrei stóð til að efna.
• Fara í mál við ríkið, sbr. Gráa
herinn, sem vonandi vinnur
málið. En málsókn hlýtur
alltaf að vera neyðarúrræði.
Stjórnvöld hafa í hendi sér að
setja ný lög til að færa málin
til fyrra horfs.
Grasrótarleiðin
Við sem þetta ritum höfum áhuga
á að skoðuð verði leið sem kalla
mætti grasrótarleiðina. Í 55
félögum eldri borgara, sem dreifð
eru um allt land, eru um 27.000
félagar, margir í staðbundnum
félögum stjórnmálaflokkanna. Ef
þetta fólk er virkjað til að tala máli
eldri borgara er líklegt að hægt sé
að hafa áhrif á stjórnmálafólk upp
í gegnum stofnanir flokkanna til
að tala máli okkar og berjast fyrir
bættum kjörum.
Forysta LEB og stefnumótun
í kjaramálum
Við vikum að því að framan að
kjarabaráttan væri ómarkviss.
Nauðsynlegt er að marka stefnu sem
við eldri getum sameinast um og
koma henni á framfæri sem víðast í
samfélaginu og ekki síst til grasrótar
stjórnmálaflokkanna.
Þannig að:
• Kjaranefnd og stjórn LEB
undirbúi stefnu í kjaramálum
eldri borgara og leggi fyrir
næsta landsfund til samþykkt-
ar. (Við höldum að stefna sé
sterkara og varanlegra vopn
í kjarabaráttu en ályktanir.
Stefnu má alltaf aðlaga að
breyttum aðstæðum á lands-
fundum).
• Mikilvægt er að aðildarfélög
LEB séu höfð með í ráðum
við stefnumótunina, að LEB
kynni þeim áform um sam-
ræmda stefnu og óski eftir
hugmyndum.
• Stefna verði gefin út í bæklingi
með ábendingum um hvernig
vænlegt er að kynna málið í
grasrótarfélögum stjórnmála-
flokkanna, í kjördæmisráðum
og á landsfundum. Ritinu verði
dreift til allra í félögunum 55
með hvatningu um að þeir
kynni og berjist fyrir málefn-
inu í sínum flokkum.
• Einnig verði stefnunni komið
á framfæri við stjórnvöld, fjöl-
miðla og hvar sem hugsanlegt
er að geta haft áhrif.
• LEB kappkosti að leiðrétta
rangfærslur sem birtast í fjöl-
miðlum.
• LEB miðli upplýsingum til
aðildarfélaganna, sem koma
þeim áfram til meðlima sinna.
Félögin geta ekki öll haldið
úti eigin vefsíðum. LEB getur
boðið þeim sem það vilja pláss
á vefsíðu sinni til að koma efni
á framfæri. Félögin gætu ann-
aðhvort sjálf sett efni á sitt vef-
svæði eða fengið aðstoð LEB
til þess.
• Okkur vantar stuðning í þjóð-
félaginu. Hvar er hans að leita?
Hjá afkomendum okkar,
sem vonandi lifa það að
verða eldri borgarar og
stjórna landinu í dag.
Minnum þau á það!
Hjá verkalýðsfélögunum
sem við höfum byggt upp.
Samstaða er lykillinn að
velgengni!
Stjórn FEBRANG, Félags eldri
borgara í Rangárvallasýslu;
Ásdís Ólafsdóttir,
Jón Ragnar Björnsson,
Sigrún Ólafsdóttir,
Svavar Hauksson,
Vilborg Gísladóttir,
Þorsteinn Markússon,
Þórunn Ragnarsdóttir
Stjórn FEBRANG, Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu, kallar eftir stuðningi þjóðfélagsins við baráttumál eldra
fólks í landinu og samstöðu með afkomendum og verkalýðsfélögum. Mynd / HKr.
Áfangastaðir
framtíðarinnar
Gauti Jóhannesson.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR
gerðir dráttarvéla
H
eim
ild: Prentm
iðlakönnun Gallup. Könnunartím
i okt. - des. 2020.
BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
36,2% fólks á
landsbyggðinni
les Bændablaðið
Hvar auglýsir þú?
36,2%
Lestur Bændablaðsins
á landsbyggðinni
Lestur Bændablaðsins
á höfuðborgarsvæðinu
17,8% 24,3%
Lestur landsmanna á
Bændablaðinu
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
Lestur Bændablaðsins
Hafðu samband