Þjóðmál - 01.09.2016, Qupperneq 18

Þjóðmál - 01.09.2016, Qupperneq 18
Ef opinber stofnun er rekin með tapi er því jafnan tekið sem staðfestingu á því að hið opinbera verji ekki nægum fjármunum til viðkomandi málaflokks. Ekki hvarflar að mönnum að stofnunin sé einfaldlega illa rekin og fjármunum sóað. Stofnunin fer ekki í gjaldþrot, líkt og illa rekin einkafyrirtæki, sem skapar hættu á því að tapreksturinn haldi áfram og verði viðvarandi jafnvel árum saman. Byrðunum er á endanum velt yfir á skattgreiðendur. hins vegar til þess að reksturinn standi ekki undir sér og breytinga sé þörf. Þessir hvatar eru hins vegar ekki fyrir hendi í opinberum rekstri. Þar gildir ekki lögmálið um skapandi eyðileggingu. Ef opinber stofnun er rekin með tapi er því jafnan tekið sem staðfestingu á því að hið opinbera verji ekki nægum fjármunum til viðkomandi málaflokks. Ekki hvarflar að mönnum að stofnunin sé einfald- lega illa rekin og fjármunum sóað. Stofnunin fer ekki í gjaldþrot, líkt og illa rekin einkafyrir- tæki, sem skapar hættu á því að taprekstur- inn haldi áfram og verði viðvarandi jafnvel árum saman. Byrðunum erá endanum velt yfir á skattgreiðendur. Gjarnan er sagt að menn fari betur með eigið fé en annarra. Á því geta þó hæglega verið margar undantekningar. Ótalmörg einkafyrirtæki hafa farið illa með fé sitt og einnig eru dæmi um opinberar stofnanir sem eru reknaraf mikilli ráðdeild og alúð. En kjarni málsins er sá að almennt má ætla að farið sé því betur með fé eftir því sem raunverulegireigendur þess ráða meiru um hvernig því er ráðstafað. Hugmyndabaráttan sem var háð hér á landi á tíunda áratug síðustu aldar snerist að miklu leyti um að draga úr þátttöku hins opinbera í efnahagslífinu. Viðhorfið til hins opinbera breyttist á aðeins örfáum árum og fækkaði þá taismönnum ríkisrekstrar verulega. Ekki þótti lengur forsvaranlegt að stjórnmála- menn væru að vasast í rekstri fyrirtækja og úthluta almannafé til vildarvina. Velflest ríkisfyrirtæki landsins voru auk þess illa rekin, enda höfðu stjórnendur þeirra engan hvata til þess að draga úr kostnaði og leita leiða til þess að auka hagnað, án alls aðhalds frá markaðinum. En þótt ríkið hafi dregið úr ítökum sínum á ýmsum sviðum atvinnulífsins, þá eru þau enn sterk á öðrum sviðum. Og eru jafnvel vísbendingar um að þau hafi aukist fremur en hitt eftir fall bankakerfisins haustið 2008 og ríkið blásið til sóknar á hinum ýmsu mörkuðum. Ríkisbankar eru tímaskekkja Nærtækasta dæmið er ríkisvæðing banka- kerfisins. Ríkið er enn á ný orðið ráðandi afl á íslenskum bankamarkaði, með 98% eignarhlut í Landsbankanum, 13% hlut í Arion banka og þá er íslandsbanki allur kominn í ríkiseigu. Þetta jafngildir því að ríkið ráði vel yfir 70% af markaðinum. Slík ríkisumsvif eru með öllu óþekkt í bankakerfum vestrænna ríkja. Hlutfallið hér er svipað og það var í ríkjum eins og Hvíta-Rússlandi, Indlandi og Sýrlandi árið 2010, samkvæmt nýlegri skýrslu Alþjóðabankans, og jafnvel hærra en í sósíalískum ríkjum á borð við Rússland, Úrúgvæ og Venesúela. Bankasýsla ríkisins hefur margoft bent á að eignarhlutur ríkisins í viðskiptabönkunum er langstærstur á meðal Evrópuþjóða hvort sem litið ertil hans sem hlutfalls af vergri landsframleiðslu eða opinberum skuldum. Þessi þróun er mikið áhyggjuefni. Ekki er síður ástæða til þess að hafa áhyggjur af því hvort stjómmálamenn muni sýna kjarktil þess að vinda ofan af ríkisvæðingunni og Arion banki 16 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.