Þjóðmál - 01.09.2016, Qupperneq 31
og Bretland gæti hugsanlega sagt skilið við
Evrópusambandið, sem gæti þýtt alvarlegar
efnahagslega afleiðingar fyrir sambandið, var
ekki meira í boði.
Fyrir íslendinga er kannski einna athyglis-
verðast að háttsettir stjórnmálamenn innan
brezka fhaldsflokksins skoruðu á Cameron
meðal annars að fara fram á að endurheimta
yfirstjórn sjávarútvegsmála Bretlands. Hann
kaus hins vegar, eftir að hafa ráðfært sig fyrir-
fram við forystumenn Evrópusambandsins
og ríkja þess, að láta ekki einu sinni reyna á
það. Enda hefur lengi legið fyrir að ekki er í
boði að semja um yfirstjórn þeirra mála gangi
ríki í samþandið.
Þannig er Ijóst að fyrirhuguð útganga
Bretlands úr Evrópusambandinu mun hafa
heilmikil áhrif á íslenzka hagsmuni og hefur
í raun þegar haft það. Bæði frá pólitískum
og viðskiptalegum sjónarhóli. Ekki má
gleyma því að þrátt fyrir tilfallandi ágreining
íslendinga og Breta um sjávarútvegsmál og
bankastarfsemi hafa lengi verið mikil tengsl
á milli landanna á sviði viðskipta, menningar
og stjórnmála. Þau tengsl munu klárlega ekki
minnka eftir að Bretland hefur sagt skilið
við Evrópusambandið og orðið á ný þjóð á
meðal þjóða.
HjörturJ. Guðmundsson er sagnfræðingur
og MA í alþjóðasamskiptum.
Illuga Jökulssyni svarað
lllugi Jökuls-
son, rit-
höfundur
og dagskrár-
gerðarmaður,
skrifaði
eftirfarandi
á fésbókarsíðu
síðastliðinn:
„Þegar barnabörnin verða
komin á táningsaldurinn
og farin að glugga eitt-
hvað ífslandssögu, þá
munu þau uppgötva að ég
var á skikkanlegum aldri
þegar menn eins og Davíð
Oddsson, Ólafur Ragnar
Grímsson og Sigmundur
Davíð léku lausum hala
á íslandi. Og þau munu
spyrja:„Heyrðu afi, hvaða
rugl var eiginlega í gangi
þarna?" Og ég opna munn-
inn til að reyna að svara
en finn allt í einu að mér
verður orða vant og að
lokum geifla ég mig bara
framan í þau og segi flótta-
lega:„Hei, krakkar, er alveg
öruggt að þið eruð hætt í
Playmo?"
Dr. Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
prófessor gat
ekki stillt sig
um að svara
llluga og skrifaði:
„Ólafur Ragnar hafði
óveruleg áhrif á stjórnmál
fyrr en 2004, þegar hann
synjaði fjölmiðlalögunum
staðfestingar. Það verður
fróðlegt að heyra þig
útskýra fyrir barnabörn-
unum, hvers vegna þú
studdir hann í því máli,
en tilgangurfjölmiðlalag-
anna var að koma í veg
fyrir, að auðjöfrar réðu
öllu um skoðanamyndun
í landinu. Næstu árin réðu
bankarnir öllu á fslandi.
M.a. þess vegna skelltu
Islendingar skollaeyrum
við öllum viðvörunum
erlendra greiningaraðila
og banka. Davíð Oddsson
lét af embætti forsætis-
ráðherra 2004. Þeir Davíð
og Ólafur Ragnar voru því
ekki samtímis valdamenn.
Enn frekar verður gaman
að heyra þig útskýra fyrir
barnaþörnunum, hvers
vegna margir vinstri menn
vildu, að við greiddum
skuldir óreiðumanna, eins
og Bretarog Hollendingar
kröfðust, í stað þess að þeir
bæru sjálfir ábyrgð á þeim
ásamt viðskiptavinum
þeirra. Þar þeittu þeir sér
allir gegn hinum fárán-
legu samningum Svavars,
Davíð, Ólafur Ragnar og
Sigmundur Davíð. Eini
snertiflötur þeirra
þriggja í stjórnmálum
er því lcesave-málið.
Það verður nóg um
útskýringarefni, en
sennilega fátt um svör."
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 29