Þjóðmál - 01.09.2016, Side 60

Þjóðmál - 01.09.2016, Side 60
Er verjandi að sóa takmarkaðri auðlind með þessum hætti, rúmlega 100MW, að þarflausu? Þettajafngildir t.d. orkuþörf rúmlega 20.000 heimila með rafhitun. Það lætur nærri, að þetta mundi þýða þreföldun allra núverandi orkutapa stofnkerfis landsins. ásamt að standa straum af glötuðum sölutekjum vegna rofs, sem gætu numið 57 MUSD/ár. M.v. kostnaðaráætlun í Skýrslunni, nemur rekstarkostnaður 78 MUSD/ár, en rekstrarkostnaður samkvæmt EAI er 169 MUSD/ár. Það hefur komið fram7), að úthaldskostnaður viðgerðar- skips sé 10 MISK/d eða 81 kUSD/d. Ef bilun verður einu sinni á áratug og viðgerð stendur yfir í hálft ár, þá verður kostnaður viðgerðarskips 1,5 MUSD/ár, og efniskostnaður gæti numið 1,0 MUSD/ár. Viðhaldskostnaður gæti numið 0,5 USD/ ár, svo að viðhalds- og viðgerðarkostnaður nemur þá 3,0 MUSD/ár. Fyrirsjáanlegur rekstrarkostnaður alls er þannig 60 MUSD/ ár (57+3 ) og ófyrirséður rekstrarkostnaður 20-110 MUSD/ár eftir því, hvort miðað er við Skýrsluna eða EAI. Þegar rennt er jafnblint í sjóinn með rekstur á kerfi, sem er að mörgu leyti tilraunaverkefni, er ekki óeðlilegt að miða við hærri töluna. • Metin ávöxtunarkrafa sæstrengsverkefnis- ins er hér 10%/ár, sem helgast af óvissu tengdri nettó tekjustreymi fjárfestingarinnar. • Valinn afskriftartími fjárfestingarinnar er 25 ár, og er hann í samræmi við Skýrsluna, enda er ekki þorandi að búast við lengri tæknilegum endingartíma strengsins, sem þýðir, að bilanatíðni strengsins kann að verða svo há eftir aldarfjórðung í rekstri, að borgi sig betur að leggja annan streng og nota þann gamla sem vara. Með hlið- sjón af reynslunni af BASSLINK71 gætu komið upp gallar eða veikleikar í einangrun eða samskeytum á strengnum, sem stytta mundu endingu hans. • Með þessu móti fæst árlegur heildar- kostnaður vegna orkuflutnings um sæstrengsmannvirkin MUSD 403, og til að standa straum af honum þarf einingar- verðtil eiganda mannvirkjanna að vera 46 USD/MWh samkvæmt Skýrslunni, en 94 USD/MWh samkvæmt EAI og viðmiðun höfundar fyrir ISSLINK. Orkuverðið, sem þarf að fást fyrir raforkuna Skotlandsmegin er þannig 34 + 46 = 80 USD/ MWh samkvæmt Skýrslunni, en 34 + 94 = 128 USD/MWh samkvæmt EAI, sem höfundur telur mun sennilegra gildi, eins og komið hefur fram. Nauðsynlegt orkuverð íslands- megin verður enn hærra. Flutningskostnaður er sá sami báðar leiðir, en með orkuverði á Englandi 50 USD/MWh verður kostnaður við orku, sem komin er til íslands alla leið frá Eng- landi um 150 USD/MWh eða um 18 ISK/kWh. Þetta er hærra verð en almenningur greiðir með flutningsgjaldi og virðisaukaskatti um þessar mundir. Þegar orkuverð á Englandi í GBP/MWh er til skoðunar, er nauðsynlegt að taka gengis- sveiflur með í reikninginn. Árin 2007-2008 var raforkuverð hátt á Englandi eða yfir 90 58 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.