Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 78
kynslóðanna út frá hefðbundnum fyrirmynd-
um. Áherslur á siðrænt atferli hafa mótað
mannfólkið í að minnsta kosti 100.000 ár. Eigi
enn að heita svo, að áunnir eiginleikar erfist
ekki, má vel vísa til skýringa líffræðinnar á því
hvers vegna tegundir breytast samt í aðrar.
Um menn gildir, hvað sem öðru líður, að þeir
hæfustu endast lengur, geta af sér burðugri
afkvæmi, komast frekar til þroska og áhrifa
en aðrir sem ekki eru sömu kostum búnir.
Þessir yfirburðir auka líkurnar á, að mann-
fólkið í sömu byggðum taki á sig einkenni
þeirra hæfustu við þær aðstæður sem þar
ríkja og þróun manngildis beinist í þá átt.
Mökun fer fram samkvæmt ströng rítúali hjá
öllum skepnum og í sama tilgangi, að þeir
hæfustu nái lengst. Ólíkt öðrum dýrum koma
menn sér af ásetningi upp reglum sem beina
þróun mannsins á valinn veg og telst vera
menning.
Lífsnautn dýra hefur augljóst markmið,
hún beinir skepnunni að því að uppfyll-
ingu náttúrlegra þarfa sinna. Þessu er ekki
á þann veg varið með menn. Þeim hæfustu
voru kennd meinlæti. í nútímaþjóðfélagi er
lífsnautn markmið manna en þó ekki hinn
náttúrlegi tilgangur hennar eins og á hinn
bóginn gildir um skepnur. Mótun menningar
markaðsþjóðfélags ræðst af því að njóta leið-
sagnar nautna en sleppa við afleiðingarnar.
Samtakamáttur manna beinist að því að
blekkingar standi undir vellíðan að öllu leyti.
Reynslan sýnir að því flóknari sem hinn menn-
ingarlegi vefnaður er, sem maðurinn á allt sitt
undir, þeim mun líklegri er sá vefnaður til að
skapa mönnum betri lífsskilyrði fyrir hinar
sértæku þarfir sínar, án tillits til hins náttúru-
lega samhengis. Dýr hafa arfbundið kerfi
eðlisávísana sem halda þeim við að vera það
sem þau eru. Þau hafa tegundarminni. Menn
voru á einhverju stigi málsins undir sömu
lögmál settir. Forfeður og formæður okkar
tóku svo að tala saman á mannlegu máli,
tóku að mynda orð úr náttúruhljóðum með
talfærum og svo í framhaldi af því draga upp
tákn. Frummenn ekki síður en okkur nútíma-
menn dreymdi myndríka drauma í óræðu
samhengi. Drauma sem urðu frummönnum
í stað milljóna ára sem náttúran
þarf til að búa til dýrategund koma
kynslóðir manna sem komist hafa
upp á lag með að stýra hegðun sinni
og markmiðum eftir menningarlega
fyrirskrifuðum ímyndum, núorðið
tískubundnum, óháð því hverjar
eðlisávísanir manna eru. Kynslóðir
koma og fara og búa með skipu-
lögðum lifnaðarháttum sínum
framtíðinni enn ríkulegri skilyrði en
þeirra sjálfra til frjálsræðis manna
gagnvart náttúrulögmálunum.
að leiðum til að lifa í fjölræðari veruleika en
skepnur geta gert. Þeir draumar dags og
nætur gera frelsistilfinningar að meginmark-
miði mannlífs og menn láta í framhaldi af því
stjórnast af menningu í stað eðlisávísunar.
Frumbyggjar víðsvegar um heiminn drógu
upp hellamyndir, þeirtöluðu með líkams-
tjáningu og þegar lengra leið með orðum
sem þeir mynduðu eins og við nútímamenn
með talfærum sínum og hugsunum. Því fylgir
að okkur seinni tíma mönnum er uppálagt að
auka við þessar lærðu merkingar kynslóð eftir
kynslóð eftir aðstæðum og afkomendum. í
stað milljóna ára sem náttúran þarf til að búa
til dýrategund koma kynslóðir manna sem
komist hafa upp á lag með að stýra hegðun
sinni og markmiðum eftir menningarlega
fyrirskrifuðum ímyndum, núorðið tísku-
bundnum, óháð því hverjar eðlisávísanir
manna eru. Kynslóðir koma og fara og búa
með skipulögðum lifnaðarháttum sínum
framtíðinni enn ríkulegri skilyrði en þeirra
sjálfra til frjálsræðis manna gagnvart náttúru-
lögmálunum.Tegundin maðurerað þessu
leyti einstök í lífríkinu. Maðurinn fer sínu
fram í blóra við lögmál samræmis sem allt
kvikt og dautt hefur lotið fram að tilvist okkar
mennskra manna. Núorðið stríða að minnsta
kosti vestrænir menn við náttúruna og um
tilvistarrétt sinn og hverjir við aðra í heimi
rafrænna eftirlíkinga náttúrufyrirbrigða sem
enga merkingu hafa fyrir neitt íjurta-, dýra-
76 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016