Þjóðmál - 01.09.2016, Page 86

Þjóðmál - 01.09.2016, Page 86
Eyfirðingurinn Guðbergur Egill Eyjólfs- son sem seinna átti eftir eins og svo margir að segja skilið við VG skrifar vorið 2009: Hvernig á flokkurinn sem heild þá að koma fram, bæði sem umsóknaraðili og sem harður talsmaður þess að við göngum ekki í ESB. Þar með væri Vinstri hreyfingin - grænt framboð búið að missa þann trúverðugleika sem hefur komið honum í þá stöðu að vera einn stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Flokkurinn hamraði á því í kosningabaráttunni að hann væri eini heiðarlegi flokkurinn og að honum væri treystandi. stjórnarmyndunarviðræðunum." Og síðar er bætt við: Það var því ekki gegn hans [þ.e. Stein- gríms] vilja að það [aðildarumsóknin] vará verkefnalista ríkisstjórnarinnar. Guðbergur Egill Eyjólfsson bóndi í Eyjafirði og þá frammámaður VG í Norðurlands- kjördæmi eystra, öflugur andstæðingur ESB-aðildar, skilgreinir vanda Vinstri hreyfing- arinnar þetta vor: Flokkur sem hefur það á stefnuskrá sinni að standa utan ESB getur ekki staðið að því að sækja um aðild að ESB. Hvernig á flokkurinn sem heild þá að koma fram, bæði sem umsóknaraðili og sem harður talsmaður þess að við göngum ekki í ESB. Þar með væri Vinstri hreyfingin - grænt framboð búið að missa þann trúverðugleika sem hefur komið honum í þá stöðu að vera einn stærsti stjórnmála- flokkur landsins. Flokkurinn hamraði á því í kosningabaráttunni að hann væri eini heiðarlegi flokkurinn og að honum væri treystandi. Ég vona að ég geti haldið áfram að treysta Vinstri hreyfingunni - grænu framboði.... Það er klárlega gríðarlegt tækifæri sem okkur býðst nú til þess að mynda fyrstu alvöru vinstri stjórn á fslandi. En hún má ekki verða of dýru verði keypt. Það er ekki þess virði að stofna til vinstri stjórnar ef það hefur í för með sér aðild íslands að Evrópu- sambandinu. Fleiri félagsmenn lýstu svipuðum viðhorf- um, töldu að flokkurinn hefði misst heiðar- leika og brugðist trausti kjósenda sinna. Steingrímur rekur í bók sinni hvernig forysta VG hörfaði úr einu víginu í annað í málinu, fyrst að samþykkja að sækja um aðild. Síðan að krefjast þess ekki að byrjað yrði á að fara í„könnunarviðræður við Evrópusam- bandið til að athuga hvernig landið lægi og sjá hvaða kostir væru í stöðunni." Sumir félag- ar ÍVG gátu fellt sig við„könnunarviðræður" þótt þeir væru á móti aðild að ESB, það væri leið til að„fá alla kosti upp á borðið,... að um verði að ræða könnunarviðræður án nokkurra skuldbindinga." Samfylkingin mátti ekki heyra á slíkt minnst enda er ekkert til sem heitir„könnun- arviðræður," slíkt tal er aðeins fyrirsláttur. Annað hvort er sótt um aðild í þeim tilgangi að ganga í ESB eða menn setjast niður og lesa sáttmála sambandsins og samþykktir til að kynna sér hugmyndafræði og skipulag þess og geta þá metið hvort þeim lýst vel eða illa á. Umsóknarlönd geta ekki samið um að breyta reglum ESB, aðeins um það hversu hröð eða hæg aðlögunin skuli vera. Allt tal um„könnunarviðræður" er því út í hött, byggist annað hvort á vísvitandi blekkingum eða mikilli vanþekkingu. Hér má einnig m.a. vísa í skýrslu utanríkis- ráðherra til Alþingis 2014, sem undirstrikar að„könnunarviðræður" eru ekki til í orðabók Evrópusambandsins: Þau lönd sem óska eftiraðild að Evrópu- sambandinu gangast undir ákveðin 84 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.