Þjóðmál - 01.09.2016, Page 92

Þjóðmál - 01.09.2016, Page 92
Leyniræðan um Stalín Níkíta Khrústsjov Heimurinn stóð á öndinni, þegar fréttist vorið 1956, að Níkíta Khrústsjov, aðalritari kommúnistaflokks Ráðstjórnarríkjanna, hefði haldið leyniræðu um ódæði Stalíns, þ. á m. pyndingar og aftökur á saklausu fólki og nauðungar-flutninga heilla þjóð- flokka auk vítaverðrar vanrækslu í upphafi heimsstyrjaldarinnar. fsraelsku leyniþjónustunni tókst að útvega eintak af ræðunni, sem kom út í þýðingu Stefáns Pjeturssonar 1957 og með formála eftir Áka Jakobsson. Nú er aukið við svokallaðri Erfðaskrá Leníns, sem íslenskir kommúnistar höfðu sagt falsaða, en Khrústsjov vitnaði óspart í. Ótrúleg lesning. Með formála og skýringum eftir prófessor Hannes H. Gissurarson. Konur í þrælakistum Stalíns Elinor Lipper og Aino Kuusinen Frásagnir, sem birtust í íslenskum blöðum af þrælkunarbúðum Stalíns. Lipper hafði aðeins verið þrjá mánuði í Moskvu 1937, þegar hún var tekin föst í hreinsunum Stalíns, og hún var næstu ellefu ár í fangelsum og vinnubúðum, lengst í Kolyma í Síberíu. Kuusinen hafði verið gift einum nánasta samstarfsmanni Stalíns og stundað njósnir fyrir Rússa í Japan, en hún var í fangelsum og vinnubúðum í samtals fimmtán ár, aðallega Vorkúta nyrst í Rússlandi. Með formála og skýringum eftir prófessor Hannes H. Gissurarson. STALÍNS ELINOR LIPPER! AINO KUUSINEN Örlaganótt yfir Eystrasaltslöndum Ants Oras Höfundurinn var enskuprófessor íTartu í Eistlandi, sem tókst að flýja til Svíþjóðar 1943 og settist síðan að í Banda- ríkjunum. Hann lýsir beiskum örlögum ættjarðar sinnar, sem varð fullvalda sama árog ísland, 1918, en nautekki sjálf- stæðis nema til 1940, þegar rússneska ráðstjórnin hernam landið og við tók einsflokkskerfi, leynilögregla, aftökur, fjöldabrottflutningar, ritskoðun og þjóðnýting. Bókin er skrifuð af mælsku og ástríðuþunga og var fyrsta útgáfurit Almenna bókafélagsins eftir stofnun þess árið 1955. Með formála og skýringum eftir prófessor Hannes H. Gissurarson. 90 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.