Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 93
Greinar um kommúnisma
Bertrand Russell
Greinasafn eftir einn kunnasta og virtasta heimspeking Breta
á 20. öld. Allar birtust þessar greinar í íslenskum blöðum og
tímaritum tímabilið 1937-1956. Russell var andstæðingur
alræðisstefnunnar, hvort sem hún kallaðist kommúnismi eða
nasismi, og eindreginn talsmaður vestrænnar upplýsingar
og frjálslyndis. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum
1950. Hann fylgdi alla ævi ritningarorðunum, sem amma
hans hafði skrifaði inn í biblíu handa honum:„Þú skalt ekki
fylgja fjöldanum til illra verka." Með formála og skýringum
eftir prófessor Hannes H. Gissurarson.
Þjóðmálarit AB
lcesave-samningarnir
- afleikuraldarinnar?
SigurðurMár Jónsson
lcesave-málið er
fordæmalaust í
íslenskri sögu.
Sigurður Már
Jónsson,
fyrrum ritstjóri
Viðskipta-
blaðsins,
skyggnist á
bakviðtjöldin
og lýsir vinnu-
brögðum og
niðurstöðum
samninga-
nefnda Svavars
Gestssonarar og Lees Buchheit. Deilurnar
um samningana eru raktar sem og afskipti
forseta íslands af málinu.
Þá er farið yfir ýmis stóryrði sem féllu á
Alþingi og í fjölmiðlum um lcesave, klofning-
inn vegna málsins í röðum Vinstri grænna og
gjörólíka afstöðu margra kunnustu fræði-
manna landsins. Veruleikinn er lygilegri en
nokkur skáldskapur! Þessi bók á vakti mikla
athygli og er skyldulesning.
Andersenskjölin
- rannsóknir eða ofsóknir?
Eggert Skúlason
Brottrekstur Gunnars Andersen forstjóra
fjármálaeftirlitsins og í kjölfarið fangelsis-
dómur Hæstaréttar yfir honum er fordæma-
laus kafli í íslenskri réttarfarssögu. Eftirfall
bankanna stóðu öll spjót á fjármálaeftirlitinu,
sem hóf við hvatningu stjórnmálamanna,
fjölmiðla
og háværra
álitsgjafa
rannsóknirá
orsökum hruns-
ins. Eggert
Skúlason,
fyrrverandi
ritstjóri DV,
fjallar hér um
vinnubrögð
og árangur
þessara
rannsókna
sem náðu til
hundruða einstaklinga. Þar kemur
Ijölmargt athyglisvert fram.
Niðurstaðan er einstæð bók um einstakt
tímabil í sögu þjóðarinnar.
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 91