Morgunblaðið - 26.06.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2021
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik
máfinnaávefokkar
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
697.500kr.
25%
afsláttur
BREKKA34 - 9 fm
Tilboðsverð
369.750kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
449.400kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einndag
TILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Félag atvinnurekenda (FA) hefur
farið þess á leit við Póst- og fjar-
skiptastofnun að hún fylgi því eftir
að Íslandspóstur breyti gjaldskrá
fyrir alþjónustu til samræmis við ný-
lega breytingu á lögum um póst-
þjónustu og á lögum um Byggða-
stofnun.
Fjallað hefur verið um málið í
Morgunblaðinu. Með lagabreyting-
unni verður ekki
lengur sama verð
fyrir pakkasend-
ingar um land
allt, að 10 kg., líkt
og verið hefur frá
ársbyrjun 2020.
Þá flyst eftirlit
með Póstinum frá
PFS til Byggða-
stofnunar.
Eftir stendur
að gjaldskrá fyrir allt að 50 gramma
bréf innan alþjónustu skal vera hin
sama um land allt.
Guðný Hjaltadóttir, lögfræðingur
FA, rifjar upp í bréfi til PFS að skv.
lagabreytingunni skuli breytt gjald-
skrá fyrir alþjónustu taka gildi eigi
síðar en 1. nóvember. Að mati Guð-
nýjar þolir málið ekki bið, enda hafi-
gjaldskráin valdið fyrirtækjum tjóni.
Gangi gegn póstlögunum
„Núgildandi gjaldskrá hefur haft
gríðarlega slæm áhrif á önnur fyrir-
tæki á póstmarkaðnum enda felur
hún í sér undirverðlagningu. Að
mati FA hefur gjaldskráin allt frá
ársbyrjun 2020 verið ólögmæt, enda-
gengur hún beint gegn 3.mgr. 17.gr.
laga um póstþjónustu, um að gjald-
skrár fyrir alþjónustu skuli taka mið
af raunkostnaði við að veita þjón-
ustuna, að viðbættum hæfilegum
hagnaði,“ skrifar Guðný.
„Það er því brýnt að Póst- og fjar-
skiptastofnun fylgi því eftir við Ís-
landspóst að gjaldskránni sé breytt
hið fyrsta enda engin rök fyrir að
draga breytingu á langinn þó lög-
bundinn frestur sé til 1. nóvember.
Þannig má draga úr hinum sam-
keppnislega skaða, sem ólögmæt
gjaldskrá Íslandspósts hefur vald-
ið.“
Pósturinn breyti
verðskrá án tafar
- FA skrifar Póst- og fjarskiptastofnun
Guðný
Hjaltadóttir
Steinullarmótið í fótbolta fer fram nú um helgina á
Sauðárkróki, þar sem 6. flokkur kvenna etur kappi.
Vegna veðurs þurfti samstillt átak bæjarbúa til þess að
tryggja öllum skjól.
„Við fullorðna fólkið getum ekkert gefist upp og far-
ið að aflýsa, við bara keyrum þetta í gang í samein-
ingu,“ segir Helgi Freyr Margeirsson, formaður móts-
stjórnar. Heimamenn hafa boðið upp á gistingu og allir
þeir sem ferðuðust með tengivagna hafa þurft að
leggja þeim í stæði við sundlaugina og grunnskólann.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Samstillt átak heimafólks þurfti til
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
harmar að Orka náttúrunnar (ON),
dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur,
skuli hafa ákveðið að slökkva á
hleðslustöðvum sínum í kjölfar þess
að kærunefnd útboðsmála úrskurðaði
að samningur borgarinnar við ON
skyldi ógiltur. Mun ON endurgreiða
raforku á hleðslustöðvunum frá og
með 11. júní vegna þessa.
Átti að þjóna íbúunum
Dagur rifjar upp markmið um-
rædds útboðs.
„Markmiðið með útboðinu var að
setja upp hleðslustaura víðs vegar um
borgina fyrir þá borgarbúa sem ekki
eru í aðstöðu til að hlaða heima hjá
sér eða á vinnustað. Borginni finnst
því bagalegt að kærunefnd útboðs-
mála kveði á um fyrirvaralausa
óvirkni samnings sem er jafnmikil-
vægur fyrir orku-
skipti í borginni og
raun ber vitni.
Kærunefnd nýtti
ekki heimildir laga
til að kveða á um
óvirkni samnings-
ins frá síðara tíma-
marki. Borgarlög-
maður hefur
óskað eftir því við
kærunefnd út-
boðsmála að réttaráhrifum úrskurðar
um óvirkni verði frestað en þangað til
að afstaða nefndarinnar liggur fyrir
verður gripið til allra nauðsynlegra
ráðstafana til að framfylgja úrskurð-
inum.“
– Hvað telur þú rétt að ON geri
næst í málinu?
„Borgin hefur í ljósi úrskurðarins
og stöðunnar beint því til ON að
slökkva á hleðslustöðvunum. Vonandi
fæst þó sem fyrst niðurstaða um
beiðni okkar um frestun réttaráhrifa.“
– Nú er þetta ekki fyrsta útboðs-
málið hjá borginni sem gerðar eru at-
hugasemdir við. Er tilefni til að
endurskoða hvernig borgin stendur
að útboðsmálum?
„Reykjavíkurborg hefur um ára-
tugaskeið verið í fararbroddi um fag-
lega innkaupahætti og staðið almennt
mjög vel að innkaupum sínum. Á
undanförum árum hafa að meðaltali
verið framkvæmd um 300 innkaupa-
ferli hjá Reykjavíkurborg árlega. Þau
mál sem undanfarið hafa verið gerðar
athugasemdir við hafa varðað laga-
tæknileg atriði sem ekki hefur reynt á
áður. Í hvert skipti sem við fáum
ábendingar eða úrskurði förum við
vandlega yfir þau atriði með það að
markmiði að gera alltaf betur og bet-
ur,“ sagði Dagur sem óskaði eftir því
að fá að svara spurningum Morgun-
blaðsins skriflega.
Hafa aldrei krafist lokunar
Þegar ON greindi frá því að slökkt
yrði á hleðslustöðvunum var málið
rakið til kvartana Ísorku.
Sigurður Ástgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Ísorku, vildi koma á
framfæri athugasemd við þessa fram-
setningu á málavöxtum.
„Í tilkynningu frá ON er sagt að
slökkva verði á stöðvum sökum þess
að Ísorka hafi kvartað. Hvergi hefur
Ísorka lagt fram kröfu um beitingu
dagsekta líkt og fram kemur í yfirlýs-
ingu Reykjavíkurborgar. Ísorka lagði
fram kvörtun til kærunefndar útboðs-
mála 2020. Samhliða rannsókn þeirr-
ar kæru ákvað Reykjavíkurborg að
krefja ON um að setja stöðvarnar upp
vitandi að málið var í rannsókn.
Kærunefnd ógilti samninginn og
sektaði Reykjavíkurborg. Borgin er
því rót vandans. ON setti stöðvarnar
upp að beiðni Reykjavíkurborgar.
Ég harma að Ísorka sé gerð ábyrg
fyrir afleiðingum á brotum og ákvörð-
un Reykjavíkurborgar. Ísorku er það
alveg að meinalausu að stöðvarnar
standi og hlaði bíla rafbílaeigenda þar
til Reykjavíkurborg býður út að
nýju,“ sagði Sigurður í yfirlýsingu.
Hann segir í samtali við Morgun-
blaðið að borgarstjóri hafi ekki orðið
við beiðnum um fund til að skýra af-
stöðu Ísorku í málinu.
Málin varði „lagatæknileg atriði“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ON Samningur var ógiltur.
Dagur B.
Eggertsson
- Borgarstjóri segir borgina hafa staðið vel að útboðsmálum - Slökkt verði á hleðslustöðvum ON
- Bagalegt að farið sé fram á fyrirvaralausa óvirkni - Framkvæmdastjóri Ísorku andmælir ON
Hátt á annað hundrað björg-
unarsveitarfólks leituðu í gær-
kvöldi erlends ferðamanns sem
varð viðskila við eiginkonu sína í
grennd við gosstöðvarnar í Geld-
ingadölum á Reykjanesskaga um
miðjan dag í gær.
Maðurinn hafði enn ekki komið í
leitirnar þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
„Það er ekkert skyggni á svæð-
inu og leiðinlegt veður, þannig að
við erum að leita allt í kringum gos-
svæðið og alls staðar þar sem við
teljum að hann gæti hafa farið,“
sagði Jónas Guðmundsson, verk-
efnastjóri hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg í samtali við mbl.is í
gærkvöldi.
Allar björgunarsveitir á Suð-
urnesjum voru kallaðar út, auk leit-
ar- og sporhunda af fleiri svæðum,
ásamt öllum björgunarsveitum á
höfuðborgarsvæðinu.
Leituðu erlends
ferðamanns