Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 STOÐ Bíldshöfða | STOÐ Hafnarfirði | stod.is CEP þrýstingssokkar blóðflæði í fótleggjum þannig haft góð áhrif nir auka og geta á líkamann. • Falla vel að fætinum • Auka stöðugleika • Auka blóðflæði • Örva liðskyn • Hraða endurheimt • Góð raka- og hitastjórnun • Margar gerðir og litir • Þýsk gæðavara EKKI BARA SOKKAR ÞRÝSTINGSSOKKAR VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Hjarta Sigurbjarnar Bjarnasonar, 55 ára gamals búfræðings og raf- virkja úr Hafnarfirði, til heimilis í Lillestrøm í Noregi, stöðvaðist í ell- efu mínútur aðfaranótt 14. júlí vegna stíflaðrar æðar. Hann hafði þá fundið fyrir ýmsum óþægindum, sem að lokum voru komin á það stig, að sambýliskona hans krafðist þess að hann hringdi á sjúkra- bifreið. Ekki mátti það tæpara standa og voru sjúkraflutn- ingamennirnir viðstaddir á heimili Sigurbjarnar þegar hjarta hans stöðvaðist. Segja má að rafvirkinn hafi marga fjöruna sopið á vettvangi hjartans mála, því sumarið 1990 fékk hann veirusýkingu í hjarta, sem þá kvað nokkuð að á Norður- landi, en Sigurbjörn var þá búsettur á Akureyri. Fór hjartsláttur hans þá niður í fjögur slög á mínútu þar sem hann lá á sjúkrahúsinu og fékk hann í kjölfarið gangráð, sem síðan hefur fylgt honum. En byrjum í Lillestrøm fyrir hálfum mánuði. Fékk að heyra það á rúmensku „Þetta byrjaði með því að ég fékk mikla verki í báða handleggi, bringu og bak og neðri kjálka,“ segir Sigur- björn af nóttinni sem hjarta hans stöðvaðist. „Svo þurfti ég að fara á dolluna og bara geri það, tæmi mig vel, og við það hverfa verkirnir. Ég fer þá bara að sofa í rólegheitum og vakna svo aftur um fjögurleytið um nóttina og þá með sömu verki, bara sinnum hundrað,“ segir Sigurbjörn. Hann hugðist þá leysa málið með annarri salernisför, en þá greip sambýliskona hans, Gianina Calug- aru, inn í og skipaði Sigurbirni að hringja á sjúkrabíl. „Hún sagði eitt- hvað á rúmensku sem ég held að þýði ekki neitt rosalega fallegt og það varð til þess að ég hringdi á sjúkrabíl,“ segir Sigurbjörn og hlær. Í kjölfarið hafi hann verið orð- inn verulega þungt haldinn af verkj- um þegar tveir sjúkraflutn- ingamenn komu á heimili hans skömmu síðar og voru þeir við- staddir þegar hjarta hans hætti að slá. „Þeir eru komnir hérna inn og eru við hliðina á mér þar sem ég sit í sófanum og þá stoppar hjartað, klukkan 04:42 og þeir komu mér í gang 04:53, þannig að ég var ellefu mínútur á einhverju bölvuðu flakki,“ segir hann frá. Sjúkraflutningamennirnir lögðu búfræðinginn íslenska í skyndi á gólfið og hófu lífgunaraðgerðir með þeim búnaði sem þeir höfðu með- ferðis. „Ég man ekki baun eftir þessu, ég datt alveg út þessar ellefu mínútur,“ segir Sigurbjörn. „Þegar ég rankaði við mér leið mér samt bara vel, það fyrsta sem ég kom auga á var arinninn í stofunni hjá mér, en enginn reykur og enginn með heykvísl nálægur svo ég sá strax að ég væri alla vega ekki kom- inn í neðra enn þá,“ segir hann og hlær svo bergmálar í símanum. Sjúkraflutningamennirnir voru, þegar þarna var komið sögu, orðnir sex og þrjár sjúkrabifreiðar fyrir ut- an heimilið. „Ég bý uppi á annarri hæð og er náttúrulega hátt í núll komma eitt tonn að þyngd og það þurfti að koma mér niður. Þeir settu mig bara í einhvern poka sem þeir voru með og báru mig niður í honum, út í bíl og beint upp á sjúkrahús,“ rifjar hann upp. Ekki forðast neitt nema heimsku Farið var með Sigurbjörn rakleið- is á hjartadeild Rikshospitalet í Ósló þótt Ahus, Háskólasjúkrahúsið í Akershus, fylki sem nú heitir reynd- ar Viken, sé nær Lillestrøm. „Hjartadeildin er öflugri á Riks- hospitalet var mér sagt og þarna var ég sem sagt kominn í fullorðinna manna tölu aftur,“ segir Sigurbjörn. Komið var fyrir svokölluðu stoðneti, eða „stent“, í æðinni, sem hafði nær algjörlega lokast, og var hann í kjöl- farið fluttur yfir á Ahus-sjúkrahúsið þar sem hann lá í rúma viku í góðum höndum og voru æðar hans þar víkk- aðar út. Sigurbjörn situr í góðu yfir- læti á heimili sínu þegar hann segir Morgunblaðinu af hremmingum sín- um. Hann er í nokkurra vikna fríi frá vinnu, en má þó gera nánast það sem hann lystir. „Ég á ekki að forðast neitt nema bara heimsku og þar undir eru reyk- ingar,“ segir Sigurbjörn, sem var ekki lengi að drepa í eftir að hafa fengið gula spjaldið með svo afger- andi hætti. „Svo er bara að koma sér á lappir og hreyfa sig, ég er að éta einhverjar sex-sjö tegundir af pill- um, sem ég verð á mislengi, blóð- þynningarlyfjunum verð ég á ævina á enda.“ Þá víkur sögunni aftur á horfna öld, til sumarsins 1990, þegar Sigur- björn var tæplega 25 ára gamall nemi í rafvirkjun við störf í Blöndu- virkjun. „Þetta gerðist á föstudegi, ég man það nú alla vega þótt það séu komnar nokkrar vikur síðan. Þá var ég búinn að vera þarna í Blöndu- virkjun frá því á mánudeginum og var farinn að fá einhverja leiðinda- verki þegar ég hallaði mér fram. Svo ég fór til læknis á Akureyri, þegar ég kom aftur þangað þennan sama dag, og hann sá strax að eitt- hvað mikið amaði að mér og ætlaði bara að hringja á sjúkrabíl strax, en ég sagði honum að það gengi engan veginn, ég yrði að fara í bankann, þurfti að framlengja þar víxil,“ rifj- ar Sigurbjörn upp, og er sá fjármálagerningur meðal annars til vættis þess hve langt er um liðið. Sigurbjörn fékk með eftirgangs- munum leyfi til að framlengja víx- ilinn, en slapp ekki við sjúkrahúsið. Þar kom í ljós, að hann var með veirusýkingu í gollurshúsinu, band- vefspokanum sem umlykur hjartað, og leið ekki á löngu uns sýkingin náði hjartavöðvanum. „Þeir voru nokkuð margir, sem fengu þessa sömu sýkingu þarna um þetta leyti og sumir fengu þetta í heilann, þar á meðal einn vinur minn, en það fór nú sem betur fer allt á besta veg hjá honum,“ segir Sigurbjörn frá. Svo mjög hafi verið dregið af hon- um sjálfum, eftir að hann var lagður inn, að hjartsláttur hans hafi á tíma- bili verið kominn niður í fjögur slög á mínútu. „Nær dauðanum verður ekki komist, eða ekki mikið alla vega. Þetta var þannig á tímabili, að ef ég lagðist út af hætti hjartað nán- ast að slá. Þá þurfti einhver að koma og „ýta mér í gang“. Í fyrstu var ekkert vitað hvað þetta var svo ég var þarna í lyfjagjöf og yfirsetu í einar fimm vikur á sjúkrahúsinu fyrir norðan.“ Fékk ranga rafhlöðu Sigurbjörn var undir miklu eftir- liti næstu misserin og að lokum var ákveðið, að bestu manna yfirsýn, að honum væri best borgið með gang- ráð sér til fulltingis og var slíkt tæki grætt í hann. „Þetta er bara eins og að vera með farsíma í vasanum, eða í raun mun minna mál, maður finn- ur ekkert fyrir þessu fyrir utan að skipta þarf um rafhlöðu í tækinu annað veifið. Þetta háir manni ekki neitt,“ segir Sigurbjörn af áratuga sambúð sinni við tækið. Eitt sinn hafi þó snurða hlaupið á þráðinn, en það var þegar skipt var um rafhlöðu í rafvirkjanum og fyrir handvömm sett í hann röng rafhlaða. Þá var Sigurbjörn kominn til Noregs og vann að smíði olíuborpalls á eynni Stord árið 2009. „Svo skrapp ég í frí til Íslands og fór þá í gangráðstékk í leiðinni. Þá var mér sagt að raf- hlaðan væri um það bil búin og ég settur beint í skipti með skurð- aðgerð. Svo fæ ég símtal daginn eftir og mér sagt að koma strax, ég hafi fengið vitlausa rafhlöðu. Þannig að ég fór beint í aðgerð aftur og það var stysti tíminn sem ég upplifði milli þess sem skipt hefur verið um batt- erí í mér, einn dagur,“ segir Sig- urbjörn og hlær við upprifjunina. Eftir síðara hjartaatvikið nú í júlí má Sigurbjörn ekki aka bifreið um tíma og kveðst, til að auðvelda sér búðaferðirnar í þeirri nýju, en tíma- bundnu, tilveru, hafa látið nokkuð eftir sér, sem hann lengi hafi dreymt um í laumi, en aldrei bein- línis fundið rétta tilefnið til að taka skrefið. „Ég keypti mér svona inn- kaupakerru á hjólum, svona sem fólk dregur á eftir sér,“ segir hann frá, „þetta er til svona í köflóttu og ég var fyrst að leita að svoleiðis, en svo keypti ég mér svona meira ný- móðins tösku. Maður kemur leik- andi kassa af bjór í þetta og hellingi að auki. Svo nú er ég bara stolt gamalmenni,“ segir Sigurbjörn Bjarnason, búfræðingur og rafvirki úr Hafnarfirði, sem oftar en einu sinni hefur staðið á mörkum tveggja heima, en er þó enn á sínum stað í Lillestrøm í Noregi. Hjartað stopp í ellefu mínútur - Sjúkraflutningamenn nýkomnir á vettvang þegar hjartað stöðvaðist - Ekki fyrsta upplifunin af hjartans málum - „Ég á ekki að forðast neitt nema bara heimsku“ - Fékk ranga rafhlöðu í gangráð Batavegur Ekki verður ófeigum í hel komið segir máltækið og þessi íslenski búfræðingur og rafvirki stendur hér glaðbeittur í báða fætur á sjúkrastofu sinni eftir að hafa verið í hjartastoppi í ellefu mínútur aðfaranótt 14. júlí. Unnustan Sigurbjörn og Gianina Calugaru búa í Lillestrøm í Noregi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.