Morgunblaðið - 29.07.2021, Síða 20
Árás Krían getur verið talsvert ágeng við þá sem fara um golfvöllinn og
gerir sig líklega til að gogga aðeins í kollinn á þeim með tilheyrandi gargi.
„Þetta virðist ætla að verða fínasta kríusumar þar sem
ég hef skoðað kríuna í vor og sumar. Það er óvenjugott
varp hjá henni,“ segir Jóhann Óli Hilmarsson, fugla-
fræðingur á Stokkseyri. Ástandið er með betra móti á
Innnesjum og mjög gott í Grímsey, þar sem hann var
staddur í gær.
„Seltjarnarnesið er mjög fínt. Ég held að varpið þar
hafi lengi ekki verið jafn gott og það er nú,“ sagði Jó-
hann Óli. Eins var kríuvarpið ágætt á Stokkseyri. Ný-
lega var hann á Snæfellsnesi og þar voru komnir ungar
og krían að bera í þá æti. Hann fór meðal annars að Rifi
en þar er mikið kríuvarp. Þar var mikið líf.
„Þar sem krían verpir hér er ástandið á henni mjög
gott,“ segir Brynjúlfur Brynjólfsson, fuglaáhugamaður
á Höfn í Hornafirði. Stærsta kríuvarpið í Austur-
Skaftafellssýslu er við Hala í Suðursveit og gróft áætlað
urpu þar meira en 2.000 pör í vor.
„Það er ekki óvenjulegt að um 40% af ungunum drep-
ist í þokkalegu ári. Annar unginn étur þá hinn út á
gaddinn. Núna er alger undantekning að finna dauða
unga,“ sagði Brynjúlfur. Varpið var um viku seinna en
venjulega, líklega vegna kulda í vor. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seltjarnarnes Mikið kríuvarp er í næsta nágrenni við Nesvöll, sem er mjög vinsæll golfvöllur. Þeir sem spila á vellinum verða vel varir við kríurnar sem eru næstu nágrannar golfvallarins.
Kríuungi Margir ungar eru komnir á legg og orðnir
fleygir. Þessi fann golftí og var að skoða það.
Þetta virðist vera fínt kríuár
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
GRAND CRU
TÍMALAUS KLASSÍK