Morgunblaðið - 29.07.2021, Qupperneq 29
29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021
Fróðleikur Það eru ekki bara fossar, eldfjöll og náttúrulaugar sem vekja áhuga hjá erlendum ferðamönnum hér á landi. Þessi tók sér tíma til að kynna sér sögu landsins í miðbænum í gær.
Árni Sæberg
Fyrir skömmu fjallaði ég um
breytingarreglu stjórnarskrár-
innar í grein hér í blaðinu. Annars
vegar vitnaði ég til umfjöllunar
Kristrúnar Heimisdóttur um mik-
ilvægi núgildandi reglu og hins
vegar vék ég að tillögu nokkurra
stjórnarandstöðuflokka á þingi um
breytingar í þessu sambandi. Ég
tel ríkt tilefni til að ræða þetta
nánar, enda er við því að búast að
umræðurnar haldi áfram í aðdrag-
anda kosninga.
Núgildandi regla
hefur reynst vel
Áður en lengra er haldið vil ég
ítreka það sjónarmið, að núgild-
andi breytingarregla hafi reynst
vel. Hún felur í sér innbyggða
varnagla gagnvart því að stjórn-
arskránni sé breytt í miklum
ágreiningi, án fullnægjandi und-
irbúnings eða í fljótræði, en er þó
á sama tíma þannig að stjórn-
arskrárbreytingar eru vel mögu-
legar, eins og fjölmörg dæmi
sanna. Ef talin yrði ástæða til að
breyta breytingarákvæðinu væri
því grundvallaratriði að viðhalda
ákveðnum þröskuldum, til að
tryggja sömu meginsjónarmið um
málsmeðferð, umþóttunartíma og
hvata til víðtækrar samstöðu, en
þó auðvitað þannig að vandaðar
stjórnarskrárbreytingar verði
áfram raunhæfur möguleiki.
Tilefni til
breytinga á
ákvæðinu?
Í gagnrýni á nú-
verandi fyr-
irkomulag hafa
þrenns konar sjón-
armið einkum verið
færð fram. Í fyrsta
lagi er því haldið
fram að núgildandi
fyrirkomulag sé of
þungt í vöfum og
feli í sér of miklar
hindranir. Í öðru lagi að reglan
um að rjúfa skuli þing og efna til
kosninga strax að lokinni fyrri
samþykkt Alþingis búi til of mikla
pólitíska pressu í lok kjörtímabils
og sé þannig sjálfstætt vandamál
þegar kemur að því að leiða
stjórnarskrárbreytingar til lykta.
Í þriðja lagi er svo oft nefnt, að
eðlilegt sé að þjóðin eigi að eiga
beina aðkomu að endanlegri af-
greiðslu stjórnarskrártillagna og
best fari á því á að því það gerist
með því að úrslitin ráðist í þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Það á að vera erfitt að breyta
stjórnarskrá
Eins og áður hefur komið fram
get ég alls ekki tekið undir að
ferlið samkvæmt núgildandi reglu
sé of þungt í vöfum eða geri
stjórnarskrárbreytingar óeðlilega
erfiðar. Til þess að stuðla að
stjórnskipulegri festu
þarf að vera erfiðara að
breyta stjórnarskrá en
öðrum lögum og það er
í sjálfu sér æskilegt en
ekki óæskilegt að það
ferli sé þannig úr garði
gert að breytingarnar
krefjist meiri aðdrag-
anda og fleiri skrefa í
málsmeðferð en al-
mennt gerist um laga-
setningu. Samhliða er
auðvitað mikilvægt að
málsmeðferðarregl-
urnar hvetji til samstöðu um
breytingar frekar en sundrungar.
Varnagla má ekki fjarlægja
nema aðrir komi í staðinn
Varðandi þá röksemd, að æski-
legt sé að rjúfa tengsl stjórn-
arskrárbreytinga við þingrof og
kosningar, er mikilvægt að horfa á
samhengi hlutanna. Núverandi
fyrirkomulag felur það í sér, að
þingmeirihluti, sem vill breyta
stjórnarskrá, verður að vera tilbú-
inn til þess þegar í stað að bera
verk sín undir kjósendur og afla
sér umboðs til starfa á nýju kjör-
tímabili, meðal annars til að af-
greiða stjórnarskrárbreytingarnar
aftur í óbreyttri mynd. Þetta hef-
ur meðal annars þau áhrif, að
dregið er úr líkum á umdeildum
stjórnarskrárbreytingum. Jafnvel
þótt kosningar snúist um margt
annað en stjórnarskrárbreytingar
þá er engu að síður ljóst, að
meirihluti þings myndi að jafnaði
hika við að fara í stjórnarskrár-
breytingar, sem gætu mætt veru-
legri andstöðu kjósenda í kosn-
ingum, og að krafan um að nýtt
þing samþykki tillögurnar
óbreyttar að kosningum loknum
felur líka í sér ríkan hvata til víð-
tækrar samstöðu; samstöðu sem
getur haldist milli kjörtímabila.
Ef þessum tengslum við þingrof
og kosningar er kippt úr sam-
bandi er óhjákvæmilegt annað en
að setja í staðinn önnur skilyrði,
sem líkleg eru til að stuðla að
sömu markmiðum. Þar væri meðal
annars hægt að hugsa sér kröfu
um aukinn meirihluta á þingi og/
eða þjóðaratkvæðagreiðslu, þar
sem gerð væri krafa um lág-
marksþátttöku kjósenda eða lág-
marksstuðning við viðkomandi
breytingar. Það má með öðrum
orðum ekki kippa þessum var-
úðarreglum úr sambandi öðruvísi
en að aðrar, jafngóðar eða betri,
komi í staðinn.
Einföld þjóðaratkvæða-
greiðsla nægir ekki
Af þeim sjónarmiðum, sem færð
hafa verið fram gegn núverandi
fyrirkomulagi, hef ég mesta sam-
úð með hugmyndinni um að breyt-
ingarferlið eigi að enda á bindandi
þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú er það
auðvitað svo, að í núverandi
breytingarreglu felst að þjóðin
hefur, eða getur haft, úrslitaáhrif
á það hvort stjórnarskrárbreyt-
ingar nái fram að ganga eða ekki.
Þegar stjórnarskrárbreytingar
eru háðar samþykki tveggja þinga
með þingrofi og kosningum á
milli, er auðvitað verið, að
minnsta kosti með óbeinum hætti,
að leita til kjósenda og fá fram af-
stöðu til breytinganna. En það má
líka gera með beinum hætti í
þjóðaratkvæðagreiðslu. En þá
væri að mínu mati alveg afdrátt-
arlaus krafa að annaðhvort væri
krafist lágmarksþátttöku í at-
kvæðagreiðslunni eða ákveðins
lágmarksstuðnings við breyting-
arnar.
Leið stjórnarandstöðunnar um
einfaldan meirihluta á þingi og
einfalt samþykki í þjóðaratkvæða-
greiðslu, án frekari skilyrða, er að
mínu mati alveg ófær í þessu sam-
bandi.
Eftir Birgi Ármannsson » Það má ekki kippa
stjórnskipulegum
varúðarreglum úr sam-
bandi öðruvísi en að aðr-
ar, jafngóðar eða betri,
komi í staðinn.
Birgir Ármannsson
Höfundur er formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Það á að vera erfitt að breyta stjórnarskrá